Samvinnan - 01.06.1958, Qupperneq 16
íþróttaþáttur Samvinnunnar:
Æfingin skapar meistarann
Að baki góðum árangri í íþróttum
liggur mikið starf við þrotlausar æfingar
Samvinnan brá sér á dögunum í forvitnisferS
á nckkra æfingastaði íþróttamanna í Reykjavík.
Og þar var ekki annað að sjá en það forna
spakmæli, að æfingin skapi meistarann, væri í
heiðri haft.
I Sundhöllinni var Jónas Halldórsson að þjálfa
sundfolkið og þar var unnið eftir fyrirfram gerðri
áætlun. Lítum til dæmis á efstu myndina: Þar
eru frá vinstri Helgi Sigurðsson, Ágústa Þorsteins-
dóttir og Guðmundur Gíslason. Þau nota ekki
hendurnar í þetta sinn, heldur æfa þau eingöngu
fótatökin og synda þannig fleiri hundruð metra.
A myndinni þar fyrir neðan hafa þau sezt upp
á bakkann til að blása mæðinni fyrir næsta sprett
og þar hefur bætzt f hópinn hinn ágæti skrið-
sundsmaður Pétur Þorsteinsson (lengst t. h.). Á
myndinni til hægri er Jónas þjálfari að ræða við
Guðmund Gíslason, sem ef til vill er einn okkar
efnilegasti sundmaður. Þeir horfa á klukkuna og
virðast ánægðir með árangurinn.
Svo kemur handboltinn. Sú íþrótt er sívax-
andi og hefur alhliða æfingargildi. Handbolta-
menn þurfa að vera ákaflega fljótir og liprir.
Eins og í öllum knattleikjum hefur samspilið
mikla þýðingu. Þarna sjáum við líka stúlkur í
handbolta, en þessi íþrótt virðist einnig vera vel
við kvenna hæfi og ólíkt betur en t. d. frjálsar
íþróttir.
Báðar neðstu myndirnar og sú næstneðsta t. h.
eru af knattspyrnumönnum úr Val. Knattspyrn-
an nýtur mikilla vinsælda hér og knattspymu-
menn þurfa að æfa mikið ekki síður en aðrir. Þeir
þurfa að æfa spretthörku, þol og ekki sízt sam-
leik. Knattspyrnumenn æfa hlaup yfir veturinn,
en taka til við boltann, þegar snjóa leysir.
Á hægri síðunni eru myndir af nokkrum beztu
frjalsiþrottamönnum okkar við æfingar. Frjálsar
íþróttir virðast falla einna bezt við skapgerð ís-
lendinga og í mörgum greinum hefur náðst af-
burða góður árangur. Frjálsíþróttamenn slaka
helzt á æfingum að haustinu, en byrja snemma
vetrar að „byggja upp“, bæði innanhúss og ut-
an. Margir iðka körfubolta sem lið í þjálfuninni
og neðst til vinstri eru þeir Pétur Rögnvaldsson,
tugþrautarmaður og Sigurður Gíslason, sprett-
hlaupari, á körfuboltaæfingu.
Efst t. v. á síðunni eru nokkrir ungir menn,
sem hafa brugðið á sprett og til hægri er hópur
KRinga að mýkja sig upp á grasvelli vestur í
Kaplaskjóli. Næst efst t. v. sést ungverski þjálfar-
inn Gabor að æfa með Vilhjálmi tæknilegt atriði
við miðstökkið í þrístökkinu. Þrístökkvari æfir
ef til vill minnst sjálft þrístökkið, heldur ýmis
tæknileg atriði og atrennuna. I miðið eru tveir
af ágætustu afreksmönnum okkar: Hilmar Þor-
björnsscn, bezti spretthlaupari okkar fyrr og síð-
ar og rétt á eftir honum stangarstökkvarinn Val-
björn Þorláksson. Til hægri er íslandsmethafinn í
kringlukasti, Þorsteinn Löve, í sjálfu útkastinu.
Til vinstri í miðið er Huseby að æfa snúning með
kringluna. Hann er Iiðtækur með hana og kúl-
unni hefur hann aldrei varpað lengra að vori til.
SAMVINNAN