Samvinnan - 01.06.1958, Síða 21
Samvinnuskólinn
Samvinnuskólinn varð 40 ára nú í vor og var þess minnzt með
hófi að Bifröst í Borgarfirði. I síðasta hefti Samvinmmnar var get-
ið um afmœli skólans og birt mynd af fyrsta og öðrum árgangi skól-
ans, sem boðið var til hófsins í tilefni af afmcelinu. Þann sama dag,
1. mat s.l., fóru einnig fram skólaslit og voru 35 nemendur útskrif-
aðir.
Árangur nemenda var yfirleitt
mjög góður og framúrskarandi hjá
nokkrum. Af þeim er útskrifuðust
varð hæst Guðriður Benediktsdótt-
ir frá Bolungavik með 9.42. Hún
hlaut einnig bókfærslubikarinn,
sem veittur er fyrir bezta árangur
í þeirri námsgrein. Annar varð
Húnbogi Þorsteinsson frá Jörva í
Dalasýslu með 9,36. Þriðja varð
EJsa S. Jónsdóttir frá Borgamesi
með 9.35, fjórði Jónas Jóhannsson,
Reykjavik, með 9.09, fimmta íris
Fanndal frá Bíldudal með 9.04 og
sjötti Steinþór Þorsteinsson, Rvík,
með 9.00. Af þeim, er luku námi
fyrri vetrar, varð hæst Margrét
Örnólfsdóttir úr Reykjavík með
9.24.
Hér að ofan er skólaspjaldið með
öllum nemendum og kennurum. Þar
fyrir neðan eru þrjár myndir, sem
teknar vom skólaslitadaginn. 1
aprilhefti Samvinnunnar birtist
sýnishom af ljóðagerð nokkurra
nemenda í Samvinnuskólanum.
Blaðið barst til Bifrastar þennan
dag og þar var að vonum áhugi
fyrir því að sjá, hvernig skáld-
in tækju sig út á prenti.
í miðið er mynd af fyrsta og
fertugasta umsjónarmanni skólans,
en það er Benedikt Gislason frá
Hofteigi, sem hafði þessa virðing-
arstöðu fyrsta veturinn. Umsjón-
armaðurinn í vetur heitir Steinþór
Þorsteinsson og útskrifaðist nú í
vor.
Jónas Jónsson var sjálfsagður
heiðursgestur á fertugsafmæli skól-
ans og á neðstu myndinni sést hann
tala við gamlan nemanda og einn
úr fyrsta árganginum, Hannes
Jónsson.
SAMVINNAN 21