Samvinnan


Samvinnan - 01.06.1958, Qupperneq 27

Samvinnan - 01.06.1958, Qupperneq 27
Grímur Thomsen (Frí.mh. af bls. 15) varð þeim Grími barna auðið, en þau ólu upp tvö fósturbörn. ★ I skrifstofu Gríms Thomsens á Bessa- stöðum stóð lengi brjóstmynd af ungri og fríðri konu. Höfðu menn fyrir satt, að (stftM/v -týÁowJ / A jéfo/ A /7 /j Ji’ 5tiJJt.fr tHstV / fr ^sJröy^/t/l Vkv/ T ej iMF fu/sttft «fft* yJttrs- j«' }'« /; ’// , 'fr J 4™+* ' Sj’roJ-/lVjy«* >- SÍUt •'/</< /. tj. O/f ^ /rv>'/'fr 'fr/'ájA >, > ”'ÍT ‘Jtfr' ^//' VU,}' e /7//^ //./> V'Jj-’ fr ft ^ /A' Sýnishorn af rithönd Grims. myndin væri af ástmey hans frá æsku- árunum, Magdalene Thoresen. Ein- hverju sinni — Grímur var þá kominn fast að sjötugu — datt myndin niður og brotnaði. Varð þá Grími þetta að orði: „Svona fer allt, sem mér þykir vænt um.“ Þetta eru einu orðin, sem varðveitzt hafa eftir Grími og benda til ástarævin- týris hans og Magdalene Thoresen. ★ Þrátt fyrir þungar áhyggjur gullsmiðs- ins á Bessastöðum um framtíð hins gáf- aða en einþykka sonar, er um skeið urðu svo ásæknar, að gamli maðurinn dró mjög í efa, að hann yrði fósturjörð sinni til heiðurs og foreldrunum til gleði, skipuð- ust málin á þá lund, að Grímur Thom- sen varð einhver hinn merkilegasti ís- lendingur sinnar samtíðar og hefur lengi skipað með sæmd sæti í fremstu röð meðal hirðmanna Braga. Bein hans hvíla í kirkjugarðinum á Bessastöðum, en kvæðin, sem hann gaf þjóð sinni, munu varðveita minningu hans um aldir. Mormónar (Framh. af bls. 7) sé frá að segja mundi það gleðja mig ef ég rækist á sannfærandi skýrslur um fá- tækt og eymd, sukk og svall í Utahríki. Mér er ekki nema í meðallagi Ijúft að verða að játa að flokkur sem hefur svo gerólíkar hugmyndir mér sjálfum um það hvernig efla skuli alsnægtir og ham- íngju í mannlegu félagi, skuli bera góð- an ávöxt, og jafnvel betri en ég þyrði að láta mig dreyma um. í þessum fljót- heitum skal ég ekki fara út í að gagn- rýna mormónatrú, nóg er að gera við skynsemina samt, ef nokkur væri; um ávextina er hinsvegar ekki að efa ef nraður á að taka mark á slíku. Kanski er það ekki merkilegast í mor- mónatrú að Drottinn alsherjar skyldi hafa opinberast Jós- epi Smið og upprisu- maðurinn Moroni vís- að honum á gulltöfl- ur, heldur hitt að nægilegur fjöldi fólks upp og ofan skuli á þessum síðustu og verstu tímum hafa gerst tryggur að trúa nýrri opinberun guðs undir beinbrot og skúfslit, og leggja þarmeð grundvöll að nýum heimstrúar- brögðum (að vísu ekki mjög frumlegum, en þó síst ófrumlegri en kristindómurinn var þá er hann kom upp). Mormónisminn virð- ist kasta ljósi á nokk- ur sígild atriði í upp- komu trúarbragða. Uppruni kristninnar hefur verið viljandi almyrkvaður snemma á öldum og sagnfræði- legar staðreyndir sem að honum leiða eru sveipaðar guðfræðileg- um huliðshjúpi; mik- ilvægir hlutir í sam- bandi við kristinn dóm, einsog til dæmis persóna trúarhöfund- arins sjálfs, hafa með vél verið gerðir ótil- kvæmir allri raunsærri rannsókn; við eigum ekki staf um Krist ut- an guðfræðilegar kerf- anir og helgirit. Svipuðu máli gegnir um Búddhismann. Búddha er líka næst- um eintóm helgirita- fígúra. Múhameð hef- ur hér sérstöðu að því leyti sem op- inberun hans gerist fyrir opnum tjöldum í birtu sögunnar. Jósep Smið- ur og trúarsköpun hans hefur lagt rannsóknunum um uppkomu trúar- bragða álíka mikilsverð hjálpargögn og Múhameðstrú, eða jafnvel mikils- verðari. Mormónisminn eykur að minsta kosti vitneskju manna um upphaf opinberunartrúarbragða, þar á rneðal sjálfs kristindómsins, einmitt vegna þess, að persóna Jóseps Smiðs, aungu síður en Múhameðs, er rannsókn- aranum tilkvæm í ljósi sagnfræðinnar. M bakí qódum hafftbolla ef> BRAGA haffi SAMVINNAN 27

x

Samvinnan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Samvinnan
https://timarit.is/publication/340

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.