Samvinnan


Samvinnan - 01.03.1964, Síða 5

Samvinnan - 01.03.1964, Síða 5
Hallgrímskirkja á Skólavöröu- holti, líkan. Arkitekt: Guöjón Samúelsson. Ljósm.: Þorvaldur Ágústsson. ljóði Matthíasar um Hall- grim. Matthías var að setj- ast við hlið Hallgríms Pét- urssonar sem annar fremsti maður íslenzkrar ljóðagerðar um trúarleg málefni, gegn- sýrður af undrun og aðdáun á yfirburðum prestsins, sem orti Passíusálmana. Afmæl- isljóð Matthlasar verður um allan aldur það bezta, hátið-’ legasta og listrænasta sem sagt verður um Hallgrím Pétursson. Eftir nokkur ár er komið að þríggja alda ár- tíð Hallgríms skálds i Saur- bæ- Þessa afmælis munu andríkir vinir íslenzkrar kirkju minnast á margan hátt. Eitt af átökum þeim sem nú er unnið að í sam- bandi við þriggja alda ártíð skáldsins er Hallgrímskirkja í Reykjavík. Hún er í smíð- um, en svo mikið hefur verið unnið að því verki, að nú er öilum lýðum ljóst, að sú kirkja mun um langan aldur verða veglegasta guðshús á íslandi og að makleikum kennd við hið mikla trúar- skáld. Hallgrímur Pétursson var umkomulítill drengur, fædd- ur í Skagafirði árið 1614, ná- frændi Guðbrands biskups. Pétur faðir hans var hringj- ari á Hólum vegna skyldleika við hinn mikla kirkjuhöfð- ingja. Menn vita það eitt um æsku Hallgríms, að hann var vaskur og fjörugur ungur maður. Ljóðgáfa hans hef- ur verið snemma vakin og ertin gamanerindi eftir hann um áhrifamenn á staðnum, en þó ekki biskupinn, urðu til þess að hann var ekki lát- inn fara í Hólaskóla, sem þó hefði átt að vera hægur leik- ur, heldur sendur til út- landa til iðnnáms. Hallgrím- ur var mikill vexti, rammur að afli og ekki léttur í hreyf- ingum. í Kaupmannahöfn og þýzkum bæ við Eyrarsund, vann hann um stund að ýmsum iðnverkum, einkum járnsmíði. Það varð íslandi til gæfu að Brynjólfur Sveinsson biskup var um þær mundir við nám og andleg störf i Kaupmannahöfn. — Biskupsefnið skildi, að skag- firzki unglingurinn gæti orð- ið góður járnsmiður, en líka andans maður. Hann kom Hallgrími í Latínuskóla í Kaupmannahöfn. Gekk nám hans þar vel, þó að undir- búningur væri í brotum. Ár- ið 1636 hafði Hallgrímur ver- ið fjögur ár við skólanám í Kaupmannahöfn og kominn í efsta bekk. Þá kom til Kaupmannahafnar sunnan frá Alsír hópur íslendinga, sem hafði verið rænt í Vest- mannaeyjum 1627 og verið síðan þræikaður hjá Aröb- um suður á Miðjarðarhafs- strönd. Nú hafði danska stjórnin keypt þessa fanga fyrir nokkurt fégjald og skyldi flytja þá heim til ís- lands, en þar sem sennilegt þótti, að trú þeirra kynni að, hafa raskazt í nokkurra ára. sambúð við villutrúarmenn,, var íslenzkur námsmaður í Kaupmannahöfn fenginn til að kenna þessu fólki góða og rétta mótmælenda trú. Sá,, sem valinn var til kennsl- Framhald á þls. 26. SAMVINNAN S.

x

Samvinnan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Samvinnan
https://timarit.is/publication/340

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.