Samvinnan


Samvinnan - 01.03.1964, Blaðsíða 20

Samvinnan - 01.03.1964, Blaðsíða 20
STAFRÓF HEIMILISSTiÚRNAR VERÐUR AD UERAST DÆMIÐ ER AUÐREIKNAÐ OTKOMAN ER BETRI ARANGUR MED PERLU ÞVOTTADUFII Þegar þér hafið einu sinni þvegið með PERLU komizt þér að raun um, hve þvotturinn getur oröib hvítur og hreinn. PERLA hefur sérstakan eiginieika, sem gerir þvottinn mjallhvítan og gefur honum nýjan, skýnandi blæ sem hvergi á sinn líka. PERLA er mjög notadrjúg. PERLA fer sérstaklega vel meö þvottinn og PERLA léttir yður störfin. Kaupið PERLU í dag og gleymið ekki, að með PERLU fáið þér hvítari þvott, með minna erfiöi. $ skemmtunar og hressingar. Kom hann þá að læk nokkr- um ekki litlum. Óx kjarr á bökkunum. Hann nam staðar og virti fyrir sér fegurð lækj- arins og umhverfisins alls, varð litið niður í silfurtæran strauminn og sá þá hvar könguló hafði spunnið net sitt með undursamlegum hagleik yfir lækinn. Netið sjálft var yfir miðjum strauminum, því þar var veiðivon, en það var borið uppi af þráðum sem festir voru í kjarrið á lækjarbökk- unum og brúaði þannig læk- inn. Gat köngulóin sótt til fanga af hvorum lækjar- bakkanum sem var. Hann kvaðst vitanlega oft hafa séð köngulóarvef áður. En skyndilega varð hann gripinn hugsun um það, hví- líkt þrekvirki og hugvit væri 1 þvi fólgið, fyrir þessa undurlitlu skepnu, að byggja brú yfir lækinn, sem í henn- ar augum hlyti að vera stór- fljót. Og honum varð hugsað til allra elfanna heima. Og honum varð hugsað til þeirra möguleika, sem maðurinn hefði yfir að ráða, vegna kunnáttu, áhalda og þjálf- aðra handa sinna. Hann sggði að sér hefði þá á þeirri stundu opinberast, hversu frgleitt það væri, að láta fljótin vera lengur brúarlaus og hver smán það væri, þegar sjálf köngulóin miklaði ekki fyrir sér að sigrast á stór- fljótinu. Og þennan morgun í Guðbrandsdalnum tók hann þá ákvörðun, að einn- ig brúarsmíði skyldi verða eitt af þeim umbótamálum, sem hann beitti sér fyrir. Þannig verður til vakning í huga umbótamannsins. Sjálfur varð Tryggvi Gunn- arsson vakningamaður sinn- ar þjóðar. Og eins og lækur- inn í Guðbrandsdal hafði verið brúaður með töfrum einhvers konar hugvits og tækni, þá kunni Tryggvi Gunnarsson ekki svo lítið fyrir sér, til þess að vinna stórvirki. Hann fléttaði sam- an þræði félagshyggju og samvinnu. Eins og hann hafði boltað saman trén í brúna, til þess að gera stór- 20 SAMVINNAN

x

Samvinnan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Samvinnan
https://timarit.is/publication/340

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.