Samvinnan


Samvinnan - 01.03.1964, Blaðsíða 18

Samvinnan - 01.03.1964, Blaðsíða 18
Plastpípur eru nú alls staðar notaðar sem efni í vatnsleiðslur Síðan 1959 hefur VINNUHEIMILIÐ Á REYKJALUNDI framleitt plastpípur af þeim flokki gerviefna, sem nefnist POLYETHELYN. Notkun þess fer vaxandi frá ári til árs og varla er sú vatnsveita lögð nú hér á landi, að ekki sé notuð þessi gerð af vatnsveitupípum, enda hafa plastpípur alla kosti fram yfir járn- pípur til þessarar notkunar. Samanlagt hefur VINNUHEIMILIÐ framleitt og selt hundruð km af rörum úr plasti. Mestu kostir þeirra felast í eftirfarandi atriðum. ÞYNGDIN er tæplega 1/8 af því sem jafnvíðar járnpípur vega. Það sparar flutningskostnað og erfiði. LAGNING er auðveld því að rörin eru svo sveigjanleg Sé steinn í rásinni má beygja fram hjá honum og auðvelt er að sveigja um horn. í gljúpan jarðveg, sem ekki er grýttur, má draga plastpípur með kílplóg. RENNSLI vatns í plastpípum er mjög ört ,því að þau eru vel slétt innan, viðnám því lítið, og í þau sezt hvorki hrúður né ryð svo að þau þrengjast ekki með aldrinum eins og vatnspípur úr járni. Straummótstaða og þrýstingstap er því jafnan minna en í pípum úr öðru efni. ENDING plaströra er góð þvi að þau þola hnjask, högg og þrýsting að innan sem utan. Þau springa ekki þótt vatn frjósi í þeim. Þau tærast ekki þótt um þau leiki ýmis þau efni og efnablöndur, sem þau kunna að koma í snertingu við, þar sem veifur eru lagðar, og veitur liggja. LENGD geta menn fengið eftir óskum, allt að 300 metra heila og tengingalausa. Ekki þarf fagmenn til að leggja plastpípur. Tengistykki af öllu tagi seljum vér einnig, svo sem minnk- anir, stækkanir ,greinirör, tengi í tvö jafnvið rör og tengi milli málms og plasts. KOSTIR plaströra eru fleiri, Má til þeirra telja að plast veldur engum efnabreytingum í vatni og breytir því hvorki bragði þess né lykt. Úr þeim losnar aldrei neitt, sem mengar vatnlð á neinn hátt. Plastpípur eru góðir einangrarar og fylgja því hægt hitabreytingum. Þær upp- fylla vel allar kröfur um hreinlæti og hell- brigði. VINNUHEIMILIÐ AÐ REYKJALUNDI Aðalskrifstofa að Reykjalundi, sími um Brúarland. Skrifstofa í Reykjavík Bræðraborgarstíg 9, sími 22150. 18 SAMVINNAN

x

Samvinnan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Samvinnan
https://timarit.is/publication/340

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.