Samvinnan - 01.03.1964, Page 18
Plastpípur
eru nú alls staðar notaðar sem efni í vatnsleiðslur
Síðan 1959 hefur VINNUHEIMILIÐ Á REYKJALUNDI framleitt plastpípur af þeim flokki gerviefna, sem
nefnist POLYETHELYN. Notkun þess fer vaxandi frá ári til árs og varla er sú vatnsveita lögð nú hér á
landi, að ekki sé notuð þessi gerð af vatnsveitupípum, enda hafa plastpípur alla kosti fram yfir járn-
pípur til þessarar notkunar.
Samanlagt hefur VINNUHEIMILIÐ framleitt og selt hundruð km af rörum úr plasti. Mestu kostir þeirra
felast í eftirfarandi atriðum.
ÞYNGDIN er tæplega 1/8 af því sem jafnvíðar járnpípur vega. Það sparar flutningskostnað og erfiði.
LAGNING er auðveld því að rörin eru svo sveigjanleg Sé steinn í rásinni má beygja fram hjá honum og
auðvelt er að sveigja um horn. í gljúpan jarðveg, sem ekki er grýttur, má draga plastpípur með kílplóg.
RENNSLI vatns í plastpípum er mjög ört ,því að þau eru vel slétt innan, viðnám því lítið, og í þau sezt
hvorki hrúður né ryð svo að þau þrengjast ekki með aldrinum eins og vatnspípur úr járni. Straummótstaða
og þrýstingstap er því jafnan minna en í pípum úr öðru efni.
ENDING plaströra er góð þvi að þau þola
hnjask, högg og þrýsting að innan sem utan.
Þau springa ekki þótt vatn frjósi í þeim. Þau
tærast ekki þótt um þau leiki ýmis þau
efni og efnablöndur, sem þau kunna að koma
í snertingu við, þar sem veifur eru lagðar, og
veitur liggja.
LENGD geta menn fengið eftir óskum, allt
að 300 metra heila og tengingalausa. Ekki þarf
fagmenn til að leggja plastpípur. Tengistykki
af öllu tagi seljum vér einnig, svo sem minnk-
anir, stækkanir ,greinirör, tengi í tvö jafnvið
rör og tengi milli málms og plasts.
KOSTIR plaströra eru fleiri, Má til þeirra telja
að plast veldur engum efnabreytingum í vatni
og breytir því hvorki bragði þess né lykt. Úr
þeim losnar aldrei neitt, sem mengar vatnlð
á neinn hátt. Plastpípur eru góðir einangrarar
og fylgja því hægt hitabreytingum. Þær upp-
fylla vel allar kröfur um hreinlæti og hell-
brigði.
VINNUHEIMILIÐ
AÐ REYKJALUNDI
Aðalskrifstofa að Reykjalundi, sími um Brúarland.
Skrifstofa í Reykjavík Bræðraborgarstíg 9, sími 22150.
18 SAMVINNAN