Samvinnan


Samvinnan - 01.03.1964, Blaðsíða 11

Samvinnan - 01.03.1964, Blaðsíða 11
KVEÐID A SKJAINN vísur, sem heyrandi í holti hefur tínt saman Svo sem þeir eflaust muna, sem fylgzt hafa með þessum þáttum, var því heitið í sumar, að sá, sem sendi bezta veðravísu skyldi hljóta værðar- voð frá Gefjuni að launum. Nokkuð dróst að nefndin gæti komið saman til að dæma milli vísnanna. Og þó veður yrði henni sízt til tafar voru þó all- margar vikur af vetri þegar hún loks mætti til fundar. Að heilabrotum loknum dæmdi nefndin einróma, að værðarvoðin skyldi falla í hlut Val- borgar Guðmundsdóttur, Tungufelli í Breiðdal S-Múl., fyrir vísurnar: Ein á ágústkveldi. Og þær eru þannig: Kve'öa á skjáinn kuldi og regn, kveina strá og runnar. Nepja lifsins næðir gegn- um nœlon tilverunnar. Úti um dimma ágústnótt ýmsar vættir sveima. Börnin sofa blítt og rótt — bóndinn ekki heima. Hér koma svo nokkrar fleiri veöra- vísur: Ingólfur Davíðsson kveður um páskahretið mikla 1963: Römmum Norðra rann í skap — rofnar páskafriður — Angraði fénað, aspir drap, urtir barði niður. Um umhleypinginn kveður Ingólfur: Þetta er leiður allra átta fjandi, útsynningur gleiður tvístígandi. Austan garri, norðan náhraglandi. Nú er varla hundi útsigandi. Una Sveinsdóttir, Sunnuhvoli, Vest- mannaeyjum, kveður um sólskinsdag á vori eftir kuldahret: Nú er vorsins Ijómi um lönd líf og fjör í hjarta, ýmsum gleymist ómjúk hönd ísakóngsins bjarta. Ingibjörg vinkona okkar á Refsteins- stöðum kveður í góðviðri: Hörpu skær er sálmur sunginn, sól í tœru heiði skin. Andar blærinn ilmi þrunginn unað fœrir heim til mín. En ekki hlær sólin alltaf viö Ingi- björgu. Henni er þó visa á munni þeg- ar veður er svalt: Norðan hreggið fargar frið i fjötra leggur vorið. Þokuveggur þrengir svið. Þyngist seggjum sporið. Bjarni Jóhannsson í Miðhúsum sendir vísu í tilefni af því, sem Guðmundur á Höfða orti um hann í sumar, 6—7 tbl. 1963: Að botninn vœri í Borgarfirði bagi þótti í gömlum sögum. En hafa ’ann suður í Hafnarfirði hentugt þykir nú á dögum. í vorblíðunni kveður B.jarni: Perlur glitra um grund og hlíð, i gulli tindar loga. Geislum sinum glóey blið gyllir sund og voga. Bjarni fullyrðir að veður hafi spillzt til muna í Skagafirði, þegar skipt var um veðurstofustjóra. Þeim veðrabrigð- um lýsir hann þannig: Sólin hylur sínar brár sorgarblæju varin. Skýin fella tregatár, Teresia er farin. Margrét Guðmundsdóttir, Höfn í Hornafirði veit sem er, að sá er vel gegn kuldanum varinn, sem hefur værðarvoð frá Gefjun til að vefja um sig. Hún kveður: Þó að svarri brim á boðum og byrgi sólu hríðin grá, þá er sveipast vœrðarvoðum veður engin bíta á. Ásta Gísladóttir, Mið-Kanastöðum í Húnavatnssýslu, kann líka að meta hlýja værðarvoð: Féll á bylur, fórust gnoð, frostið nœddi aö hjarta. Ef að œtti vœrðarvoð vœri ég ekki að kvarta. Guðmundur á Höfða sendi Ingibjörgu á Refsteinsstöðum beztu þakkir fyrir vísuna í sumar og svarar henni á þessa leið: Yfir heiöar, firði, fjöll finn ég leiðir, svanni, þar sem greiðist gangan öll gömlum veiðimanni. Ef þina skal ég fundi fá frjálsu hjali lofa, en brennt og malað þyrfti þá þar í Dalakofa. Jón Sigfússon, Eiðum, S-Múl., lýsir þokunni á þann veg: Illa rœmd að allri gjörð, á sér vini fáa, votum armi vefur jörð vetrarþokan gráa. Dalalæðan fær betri lýsingu hjá Jóni: Felur hlíð og fjallaskörð fram við bláa hnjúka, dregur vœng og döggvar jörö dalalæðan mjúka. Þegar Jón lítur til hafs verður honum að orði: Æðir noröan gegnum grár, geymir vetrarsnjóa. Eru á lofti illar spár yfir Héraðsflóa. Hlýrra verður þó í hug, ef litið er til fjalla: Gamla smalans léttist lund, Ijómar salur viður. Heiðarsvalinn hans á fund heim í dalinn líður. Kristján frá Hamri sendir þessa vor- visu: Veðragarpur gleymist þá gjólusnarpur vetur, þegar Harpa blið á brá blóm í varpann setur. Heyrandi í holti þakkar ánægjuleg bréf og góðar óskir og vonar, að fram- hald verði á því, að þið sendið bréf og vísur. Sérstaklega þakkar hann henni Stínu fyrir ljóðabréfið. Það verður birt í næsta þætti. SAMVINNAN 11

x

Samvinnan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Samvinnan
https://timarit.is/publication/340

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.