Samvinnan - 01.03.1965, Síða 8
Rétt fyrir jólin bárust Sam-
vinnunni nokkrar bækur frá
Bókaforlagi Odds Björnssonar
á Akureyri. Forlagið er sem
fyrr stórvirkt og vandar frá-
gang bóka og gefur út lesefni
við margra hæfi.
Ármann Kr. Einarsson:
VÍKINGAFERÐ TIL
SURTSEYJAR
Og
ÓLI OG MANNI I ÓBYGGÐUM
Þetta eru 18. og 19. barna-
og unglingabók höfundarins.
Ármann hefur mjög stóran
lesendahóp og á slíkum höf-
undum hvílir mikil ábyrgð.
Bækur hans eru á góðri ís-
lenzku.
Jenna og Hreiðar Stefánsson:
ADDA LÆRIR AÐ SYNDA
Höfundarnir hafa skrifað
margar barnabækur, sem eru
mjög vinsælar. Þetta er þriðja
útgáfa bókarinnar. Hin mikla
sala barnabóka bendir til þess,
að börn og unglingar lesi mik-
ið. Það sannar aftur á móti
hitt, hve stórmikla þýðingu
það hefur, að slíkar bækur
séu vandaðar að frágangi, efni
og máli.
Jón H. Þorbergsson:
ÆVIDAGAR
Þetta er sjálfsævisaga, all-
stór bók 355 bls. með mörgum
myndum. Hefir hún að geyma
mjög mikinn fróðleik, ekki að-
eins um ævi Jóns á Laxamýri,
heldur og einnig búnaðar- og
menningarsögu þjóðarinnar.
Þeir bræður Þorbergssynir, Jón
á Laxamýri, Hallgrímur á Hall-
dórsstöðum og Jónas fyrrv. út-
varpsstjóri. eru allir þjóðkunn-
ir menn og ævi hvers um sig
efni 1 bók.
Páll Guðmundsson frá Rjúpna-
felli:
Á FJALLA- OG DALASLÓÐUM
Bók þessi er „endurminning-
ar og sagnaþættir“ og er búin
til prentunar af Benedikt
Gíslasyni frá Hofteigi. Höfund-
urinn flutti til Kanada 24 ára
árið 1911 og hefur lengst af
verið bóndi vestur þar. Hefur
hann af mik!lli elju aflað sér
þekkingar á þjcðlegum fróð-
leik auk þess sem hann bygg-
ir þætti sína á minningum frá
þeim árum sem hann ólst upp
og vann fyrir sér heima á Is-
landi áður en hann flutti vest-
ur. Sögusvið er að mestu
Vopnafjörður, Hólsfjöll og
Möðrudalur á Efra-Fjalli. Bók-
in er 261 bls. Páll er bróðlr
Björgvins tónskálds Guð-
mundssonar.
Sigurður Jónsson frá Brún:
STAFNSÆTTIRNAR
Af bókartitli mætti ætla að
hér væri um venjulega ætt-
fræði að ræða. Svo er ekki.
Bókin er frásagnir af reið-
hestum Sigurðar, hverjum af
öðrum og að vísu grafist fyrir
um ættir þeirra eftir heimild-
um og líkum og að lokum ætt-
artala nokkur. Nokkrir af hest-
u.m S'gurðar voru landsþekkt-
ir vegna mikilla kosta og eigi
síður hins, hversu lítt þeir voru
við alþýðuskap. Hestasálum er
þessi bók kærkomin. Hún er
151 bls.
Benjamín Kristjánsson:
VESTUR-ÍSLENZKAR ÆVI-
SKRÁR
II. bindi.
Bókin er með svipuðu sniði
og fyrsta bindi þessa mikla
ritverks. Er þar greint frá
fjölda Vestur-íslendinga, ætt-
um þeirra og aðstöðu og birt-
ar myndir af þeim. Fylgir að
lokum nafnaskrá. Er bókin
náma mikils fróðleiks. Hún er
425 bls. í stóru broti.
AÐALFUNDUR !
SAMBANDS ÍSL. SAMVINNUFÉLAGA |
verður huldinn uð Rifröst í Borgurfirði
dugunu 11. og 12. júní n.h. og hefst föstu-
duginn 11. jtcnt kt. 9 úrdegis. j
Dugshrú sumkvwmt sumþgkhtum
Sumbundsins.
Stjóriiiii j
I
_____________________ _________
8 SAMVINNAN