Samvinnan


Samvinnan - 01.03.1965, Síða 11

Samvinnan - 01.03.1965, Síða 11
AÐGANGSEYRIR Smásaga eftir Alexander Woollcott Hér kemur þá sagan af Cosettu og herskólasveinin- um í Saint-Cyr, nokkurn veginn eins og hún er sögð (og hefur verið sögð um ára- bil) í reykmettuðum mat- skálum franska hersins. Á ofanverðri nítjándu öid, þegar minna bar á háværum munnsöfnuði á kaffihúsum, hlaut talið fyrr eða síðar að berast að Cosettu. — Cosetta í Fjölleikahúsinu var al- mennt talin eftirsóknar- verðust kvenna í Frakklandi. Hún var sannarlega ekki skyndikona yfirstéttanna, eins konar endurfædd du Barry, en hinn sanni vin- ur lýðræðis. Enginn vissi hvaðan hún kom. Sumir töldu hana vera fiskimannsdóttur frá Bret- agne-skaga, aðrir héldu á loft þeirri sögu, að hún væri ávöxtur ásta frægrar leik- konu og velþekkts kóngs. Hvað sem því leið, var hún, begar hér er komið sögu, orðin þjóðsagnapersóna, og Frakkar, sem ekki höfðu að fullu náð sér eftir langæjar styrjaldir, fundu í yfirburð- um hennar eins konar bals- am særðu stolti. Á myndum sást hún venjulega sitja tæl- andi á borðbrún, og mynd- irnar voru klipptar út úr L’Illustration og hengdar á veggi í öllum herskálum. Sér- hvern franskan pilt dreymdi um hana, og hver einasta skvnsöm frönsk stúlka skildL að ástvinur hennar sagði raunverulega: „Viltu koma með mér niður á árbakka um sólarlag, fyrst ég get engar vonir gert mér um ástir Cosettu? Já, hún skildi hann og ásakaði hann ekki. Allir höfðu séð myndir af skrauthýsi Cosettu, þar sem vínviður las sig um veggi og margraddaður fuglasöngur ómaði úr búrum. Og jafnvel þeir, sem aldrei áttu í vænd- um að yfirstíga háan múr- inn umhverfis garðinn, voru sjúklega stoltir af því atriði þjóðsögunnar, að enginn hefði nokkru sinni gist að Cosettu án þess að geta reitt fram fimm þúsund franka, — og verið þess minnug, að þetta var á of- anverðri nítjándu öld, þeg- ar franki var franki, og karl- menn af vissum ástæðum karlmenn. Töfrar Cosettu og sú hag- sýni, sem henni var í blóð borin, gerðu nýliðana á Saint-Cyr ofurlítið þung- lynda. í hvíldartímanum á vökunni skeggræddu þeir þetta, og öllum þótti þeim miður, að málinn skyldi vera svo rýr, að enginn þeirra, sem einn góðan veðurdag áttu eftir að veita forystu i hefndinni miklu, ætti nokkru sinni eftir að leggja til orrustu með minninguna um fegurstu konu Frakk- lands. Hvaða herskólasveinn gat svo sem gert sér vonir um að geta dregið saman fimm þúsund franka? Það var sannarlega sorgarefni. En, hrópaði einn þeirra titrandi röddu með leiftur í augum, það væru þúsund skólasveinar við Saint-Cyr, og enginn þeirra svo aumur, að hann gæti ekki á nokkr- um tíma aurað saman fimm frönkum. Það var á þennan hátt, sem Cosettu-samskotin hóf- ust. Og í kjölfarið fóru þung- ar áhyggjur og víðtæk leit að leiðum. Þeir sýndu frábæra sjálfsafneitun, reyndu öll vinasambönd til þrautar, og rituðu frænkum og guð- mæðrum hjartnæm bæna- bréf, — vitanlega undir fölsku yfirskini. Annað eins hafði aldrei sézt við Saint- Cyr. Og á settri stundu gat hver einasti lagt fram fimm franka, — sína eigin eða einhvers annars. Útdráttur númera var vel á veg kominn, þegar einn kennaranna komst að öllu saman, og bar söguna felmtri sleginn til skólastjórans. Þegar hinn aldni herforingi heyrði söguna, varð hann svo djúpt snortinn, að hann mátti ekki mæla um hríð. „Sá sem happið hlýtur," sagði hann loks, „verður öf- undaður af allri sinni kyn- slóð. En sá sem átti hug- myndina, — já, hann, vin- ir mínir, verður einhvern tíma marskálkur yfir öllu Frakklandi.“ Svo skellti hann upp úr, þegar hann sá fyrir sér við dyr Fjölleikahússins star- eygan ungling með ekkert veganesti nema æsku sína og aðgangseyrinn. Á hinni einföldu fjárhagsáætlun var ekki gert ráð fyrir ferðaiagi til Parísar, ekki vagnkostn- aði, blómvendi né heldur hugsanlegu kvöldverðarboði, en skólastjóri kvaðst reiðu- búinn að greiða allan auka- kostnað úr eigin vasa. ,.Það geta orðið ýmis útgjöld" sagði hann, „sendið fíflið, Höfundur þessarar sögu, Alexander Woollcott, fæddist árið 1887 í Phalanx í New Jersey, Bandaríkjunum. Settur var hann til mennta, og lag’ffi aff loknu námi gjörva hönd á margt. Leikari er hann góffur, þekktur rithöfundur, blaffamaffur, útvarpsmaff- ur o. fl. Nú mun hann þó einna kunnastur í lieimalandi sínu sem „The Man Who Came to Dinner“, þ. e. maðurinn sem kom til miffdegisverðar, en þaff er nafn á Ieikriti eftir þá Georg S. Kaufmann og Moss Hart, tileinkaff Woollcott og talin frábær lýsing á honum. Leikrit þetta hefur veriff svnt hérlendis undir nafninu Gestur til miffdegisverffar. Sagan um Cosettu er tekin úr bók Woollcotts, While Rome Burns effa Meffan Róm brennur. Er þaff safn greina og sagna eftir hann. H.P. Á myndum sást hún venjulega sitja tælandi á borðbrún . . . sem vinnur, til mín, áður en hann leggur upp.“ Það var nýliði frá Vendée, sem knúði dyra hjá skóla- stjóranum kvöldið eftir. Hann var mjög snyrtilegur á rauðum buxum og bláum frakka; hvítir hanzkarnir voru tandurhreinir og gljáði á skjaldarmerki hans, en hj artslátturinn var eitthvað óeðlilegur. Skólastjórinn sagði ekkert, en rétti hon- um pyngju með Hlöðvéspen- ingum, kyssti hann á báðar kinnar, bað honum blessun- ar og stóð voteygður og bros- leitur við glugga sinn, unz hann sá hann hverfa niður trjágöngin. Sólskinið smaug milli rimlanna fyrir glugganum, og dansaði fiörlega á gólf- teppi Cosettu morguninn eftir, er hún settist upp í rúmi sínu og velti fyrir sér. hvernig deginum yrði bezt Framh. á bls. 30. SAMVINNAN 11

x

Samvinnan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Samvinnan
https://timarit.is/publication/340

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.