Samvinnan


Samvinnan - 01.03.1965, Blaðsíða 12

Samvinnan - 01.03.1965, Blaðsíða 12
Jón Sigrurðsson. Sjötíu Norffmenn komu á Reykjavíkurflugvöll 5. ágúst 1964 til þess aff planta skógi á íslandi. Jafnmargir Islend- ing-ar fóru til Noregs meff sömu flugvél í sömu erindum. I þeim hópi voru þau í aldursforsæti, Jón Sigurffsson í Yztafelli og kona hans, Helga Friffgeirs- dóttir. Jón segir hér ferffasöguna: Svifið var á loft síðdegis. Sól skein í heiði. Við áttum von á að stefna í suð-austur með útsýn til Surtseyjar og suður- strandarinnar. En Þingvalla- vatn var fyrsta kennileitiff, síffan öræfi og jöklar undir vængjvm og loks d’mmblátt hafið. Enginn hafði hugleitt þá staðreynd, aff beinasta leiðin milli tveggja staða á sama breiddarbaug fylgir ekki baugnum, heldur sveigir að heimsskauti. Þetta veldur því, aff landið okkar er svo mjög í þjóðbraut flugvéla. Viff kviðum fábreytni langa leið, þar sem aðeins sæi him- in og haf. Hér voru 70 manns, ungir og gamlir, karlar og kon- ur, flestir ókunnugir, sinn af hvoru landshorni, og valdist í sæti af handahófi. Brátt voru bornar fram veitingar, og mátti heita veizlukostur í mat og drykk. Samneyti matar og nautnar hefur frá aldaöffli veriff bezti mannakynnir, og ennþá varir þetta. Karlarnir bjóða í nefiff, unga fólkiö vindlinga. Nú hófst kynningin. Hópur- inn varff glaffur og hávær með söng og samræðum. Áður en varffi var ferðinni lokiff. Framherjar flugvélar- innar sáu land fyrir stafni. En við höfðum flogiff á móti nóttinni. Þaff var komið sól- setur. . Það roðaffi á dökka^i Jón Sigurðsson, Yztafelli: NOREGI FRÁ hnjúka í fjarska, sem óffu blá- móffuna upp á axlir. Nær voru silfurbjört eyjasund og eyjarn- ar með hvít timburhús í skóg- arlundum. Fæst okkar höfðu áður stig- ið fæti á erlenda jörð. Land- takan var í huga okkar fyll- ing æskudrauma. En hún reyndist býsna raunhæf. Jörff- in togaði í fæturna á sama hátt og heima. Loftið var eins að anda að sér. Grösin á vegar- köntunum voru gamlir kunn- ingjar aff heiman. Eyjaklasinn gat verið breiðfirzkur og hnjúkarnir í fjarska Dalafjöll- in og Barðaströnd. Fólksþyrp- ing beiff til móttöku. Engan mun var aff sjá á því og ó- kenndum íslenzkum hóp. Það var eitt sem skildi, hér voru tré hvar sem rót á festi og landiff hafði ekki verið tekið undir byggingar eða til rækt- unar. Viff lentum á eyjunni Vigra á Sunnmæri og vorum leidd að veizluborði þegar í staff. Ung- mennafélag staffarins var veit- andi. Ungar konur í þjóðbún- ingum stóðu fyrir beina og skemmtu með leikþætti úr sögu eftir Björnson, söng og gítarle;k. Oddviti héraðsins sagffi frá byggð sinni. Sveita- skipan er önnur í Noregi en hér heima. Landið skiptist í fylki, en fylkin í héruð, sem svara víffast til sýslnanna heima að mannfjölda. Eyjan Vigra er í héraði með þrem öðrum eyjum og mannfjöldinn á fimmta þúsund. Þetta gerir sveitarfélögin míklu öflugri til menningarátaka en litlu hreppana okkar. Viff komum snöggvast á dansleik í samkomuhúsi eyjar- innar. Síðan var stigið upp í „bussa“ (rútu). „Bussarnir" voru síffan affalfarartæki okk- ar fram og aftur um byggðir Noregs í hálfan mánuð. Þetta eru stórir vagnar með sæti fyr- ir 35—40 manns, hæfilegir fyr- ir hálfan hópinn og leiðsögu- mann, og allir voru þeir aff heita mátti eins, hvar sem við fórum. — Bussinn var fulla klukkustund á leiðinni fram og aftur um eyna, skilaffi tveim til fjórum gestum til náttstaff- ar á heimili. — Loksins var „gömlu hjónunum" vísað til næturgistingar í stóru timbur- húsi. Klukkan var eitt á Vigra, en raunar ekki nema ellefu heima. Viff litum út um glugga á þriðju hæð morguninn eftir. Miklar bjarkir sveigðu grein- ar niður á móts við húsþakið og skýldu grasbletti, berja- runnum og blómabeði. Niðri Dómkirkjan í Þrándheimi. FYRRI HLUTI 12 SAMVINNAN

x

Samvinnan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Samvinnan
https://timarit.is/publication/340

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.