Samvinnan - 01.03.1965, Page 18
FRÁ NOREGI
Framh. af bls. 15.
voru auðvitað seldar hressing-
arvörur og minjagripir. Þar
sem við fórum efst, voru
hnjúkar margir og fjallaskörð
með vötnum. Ekki sást snjór,
svo sem hjá Dalnibbu. Ibsen
lætur Pétur Gaut gerast í Guð-
brandsdal ofanverðum og í
fjöllum þessum. Okkur var
sýndur tindurinn, þar sem Pét-
ur þóttist hafa stokkið framaf
á hreininum, og fjallavatnið,
sem hann kom niður. En ekki
hittum við þá grænklæddu, eða
komum í höll Dofrakonungs.
Á heimleiðinni var snæddur
miðdegisverður á miklu fjalla-
hóteli, sem nefnist Bessheim.
Það stendur á flatlendi ofar
skógarmörkum. Skammt frá er
stórt vatn. Þarna var ös á hlaði
úti og í sölum inni af ferðafólki
ýmsra þjóða. Samt fengum við
salarhorn fyrir okkur. Á borð-
um var silungur úr vatninu,
og gaf hann ekki eftir Mý-
vatnssilungi. Ein af dásemdum
staðarins er stangveiði í vatn-
inu. Við sáum marga báta
frammi. Veiðin hlýtur að vera
allmikil, því margir voru mett-
aðir af fiski þennan dag, en
varla þó fimm þúsundir. Hér
er allt í gamalnorskum stíl
eins og endranær á gestastöð-
um. Bessheimur er frægur
staður, og þykir frægð að hafa
heimsótt Jötunheima. Þarna
er minjagripasala, og allir
hlutir merktir Bessheimi, svo
vitni ber um það, er heim kem-
ur, að þessi staður hafi verið
heimsóttur. Mörg sel eru þarna
á hálendinu. Við heimsóttum
eitt þeirra. Selsmalinn var að
mjólka kýrnar um miðaftan-
leytið. Milli 20 og 30 geitur
voru á selstúninu. Þær komu
á móti okkur og sníktu eftir
brauði og sælgæti. Úr norsk-
um bókum og sögum geyma
margir mynd selstúlkunnar,
ungrar og fríðrar með seiðandi
ástarþrá. Selráðskonan hérna
var um sjötugt, og hafði hún
verið í seli um 40 sumur. Hún
sýndi okkur selhúsin, öll úr
„stokkverki“, mjög þrifaleg og
snotur.
Nú gengur mjólkurpóstur
upp í selin, og hætt er miólk-
urvinnslu þar efra. Seltíminn
er frá miðjum júní fram í
október, en var hann áður
lengri, meðan seltúnið var
heyjað og selheyið gefið fram-
an af vetri.
Selkonan leiddi okkur til hý-
býla. Mavgt var þar gamalla
muna með listabragði, en
merkilegust hennar eigin
handarverk. — Einirætur fúna
seint. Þarna var dálítill upp-
blástur og auðfundin hvít
sprek einiróta, sem alla vega
höfðu snúist um aðrar rætur
og steina í leit að mold. Þetta
notaði selkonan, fann myndir
í sprekunum, skar af auka-
kvisti, málaði svarta eða rauða
díla, þar sem við átti. Þarna
komu fram hreindýr, elgir
fuglar og norrænar dreka-
myndir, álfar og tröll. Niður
úr rjáfrinu hékk „hez (galdra-
kerling) ríðandi á sópskafti til
Blokbjerg". Þetta er eitt dæmi
um listhæfni og listhneigð al-
mennings í Noregi, sem sást á
flestum heimilum í einhverri
mynd, frumleg og þjóðleg.
Við héldum niður sömu gróð-
urbeltin, björkina, furuna og
grenið. Furan er margbreytt,
og sums staðar ófögur, með
kræklugreinar og greinabrot.
Sumar þeirra minntu á galdra-
kerlinguna í selinu. Líklega er
furan mesta galdrakerling
bessa lands. Hún klifrar fjöll-
in, og virðist festa rætur í ber-
um klöppum.
Næsta morgun var hald’ð
skamman veg inn með vatninu
að bæ. sem heitir Strönd. Hjón-
in þar heita Pétur og Ástríður
Nesange. Hjá þeim var unnið
um daginn.
Við fórum upp með vatns-
miklum bæjarlæk í djúou,
s^arbröttu, skógivöxnu gili.
Lækiarniðurinn var heimaleg-
ur. samstilltur hljómleikur.
bótt hver foss og buna eigi s:tt
hljóðfæri. Sums staðar faldi
skrgur og blómstóð lækinn.
Undir hávöxnum bíörkum og
grenitrjám vafðist sigurskúfur
og venusvagn, sem hér eru að-
al skógarblómin. Þess á milli
sá hvíta fossa falla í bláa hylji.
Beint uppfrá útihúsum jarðar-
innar var breið graslág, skóg-
laus. Við plöntuðum þar um
daginn, beggjavegna lágarinn-
ar.
Um hádegi komu þau Pétur
bóndi og Ástríður húsfreyja.
Pétur hafði á baki sér 30 1.
brúsa með súrmjólk, en Ást-
ríður bar kaffiketil og bolla-
körfu í höndum. Hún hitaði
ketilkaffi við eld þar efra.
Langa hríð var setið, etið og
drukkið á grænni hæð, þar
sem byggðin blasti við.
Við hjónin sömdum við Ást-
ríði húsfreyju um að mega sjá
bæinn hennar á heimleiðinni.
Okkur hafði sýnst hann girni-
legur til fróðleiks um morgun-
inn. Bærinn á Strönd er um
200 ára gamall. Forfaðir Pét-
urs byggði hann um 1760, á
sama tíma og konungur og
biskup þjökuðu norðlenzka
bændur til þess að brjóta grjót
úr Hólabyrðu og hlaða dóm-
kirkjuna á Hólum. Þá var all-
ur hagur almennings á íslandi
í eymd og vesöld. — Strand-
arbærinn í Ottadal ber vott um
ættarrisnu. Hann er hlaðinn
úr tr;'ám, svo sem Klóneshúsin.
„Storstuva“ (stórastofan) er
12x7 metrar. Þar inni er hinn
forni svipur enn í heiðri hafð-
ur. Arinninn er á sínum stað
og enn notaður, þegar meira er
við haft. Þarna er og „kamina"
frá 19. öld. Þar eru málaðar
myndir forfeðranna á veggj-
unum. Þarna siafnaðist allt
fólkið að vinnu á löngum vetr-
arkvöldum. Ennþá fær allt hið
gamla að halda sínum heiðurs-
sessum. En nútímaþægindin
eiga sér þar nóg rými, t. d.
rafmagnseldavél og ísskápur.
Fólkið heldur enn gömlum sið-
um að mestu. Þessi tveggja
alda hýbýli voru hlýleg og
vistleg, einnig í augum okkar
nútímamanna.
Við komum út í „stafbúrið"
á Strönd. Þar var margt gam-
alla muna, sem hætt var að
nota. Við sáum einnig að
mörgum gömlum búvenjum var
við haldið, t. d. var enn eftir
sem svaraði meters háum hlaða
af norsku flatbrauði, sem gert
var á síðasta vetri.
Þetta heimili bar vott um
miklu meiri festu við forna
menningu og þjóðarsiði en ger-
ist til sveita á íslandi. Eflaust
hjálpar þessi festa við hið
forna fólki efnalega, því prjál-
ið og öpun nýrrar tízku kostar
stórfé.
Þess má geta, að um kvöldið
var íslendingum fagnað með
samkomu niðri á Vágámo. Þar
mætti Ástríður á Strönd í þjóð-
búningi.
Daginn eftir unnum við á
Upp úr ólestri
Ég held ei betri liðnar aldir en
þau ár, sem líða nú og reyna mig
og rista hug og hjarta marga ben
og hrekja lítinn karl á flóttastig.
En þúsund ár og áður hundruð slík
þau áttu fjölda bœði vonds og góðs.
Af spökum mönnum mörg var öldin rík
og margt þá gert til varnaðar- og hnjóðs.
Af dœmum þeim ég ekkert missa má,
af máli og sögu engu týna niður,
því hvorki um of er bent né varað við.
Ég fagna þeim, sem eru vegi á,
ef einhver staðar hittist fagur siður,
en reyndar erfðir veita vœnsta lið.
Sigurður Jónsson frá Brún
18 SAMVINNAN