Fréttablaðið - 21.08.2009, Síða 2
2 21. ágúst 2009 FÖSTUDAGUR
Maðurinn
sem lést í
bifhjólaslysi
á Þingvalla-
vegi á mánu-
dag hét
Ágúst Björn
Hinriksson.
Ágúst var
fæddur 6.
nóvember árið 1960 og var til
heimilis í Hafnarfirði. Hann
lætur eftir sig eiginkonu, tvo
uppkomna syni og tvö uppkom-
in fósturbörn.
Ágúst var í hópi nokkurra
bifhjólamanna á Þingvalla-
vegi skammt frá Kárastöðum
á mánudagskvöld. Hann missti
stjórn á hjólinu með þeim
afleiðingum að hann ók út af
veginum. Hann var úrskurð-
aður látinn á slysadeild Land-
spítalans.
Lést í slysi
Jóhann, ertu að leita að til-
brigði við STEF?
„Það er STEF-nan.“
STEF vill rukka aðstandendur bekkjar-
móts um gjald fyrir að leika tónlist á
mótinu. Jóhann Hlíðar Harðarson, einn
aðstandenda bekkjarmótsins, er ósáttur
við þau vinnubrögð.
REYKJAVÍK Hugmyndin um 186.000
króna lífskjaratryggingu gæti kost-
að Reykjavíkurborg 760 milljónir á
ári, miðað við kostnað borgarinnar
við fjárhagsaðstoð til einstaklinga á
fyrstu sex mánuðum ársins, að sögn
Jórunnar Frímannsdóttur, formanns
Velferðarráðs borgarinnar.
„Það er ekkert smáræði. Þetta
er voða falleg hugsun, en hún þýðir
annaðhvort hærri skatta eða skerta
þjónustu annars staðar,“ segir hún.
Lúðvík Geirsson, bæjarstjóri
Hafnarfjarðar, segir sveitarfélög-
in ekki vel í stakk búin til að taka
á sig auknar álögur: „Þá þurfa þau
auðvitað að fá auknar tekjur á móti.“
Krónutalan, 186.000 krónur sé hins
vegar ekki óeðlileg.
„Þetta er bara það sem fólk þarf
til að lifa af. Það er alveg fullur
skilningur á því hver þörfin er, en
sveitarfélögin hafa ekki í neina sjóði
að sækja,“ segir Lúðvík.
Áætlaðar skatttekjur á Reykjavík-
ur eru um 49 milljarðar og þyrfti að
hækka útsvar um 1,5 prósent til að
standa undir tryggingunni, að öðru
óbreyttu, segir Jórunn. Hún bendir
þó á að fjárhagsaðstoð til einstakl-
inga hafi verið að aukast jafnt og
þétt og því sé líklegt að kostnaður
borgarinnar verði enn meiri.
„Tekjur borgarinnar hrökkva
varla til fyrir þessum kostnaði í
dag, en auðvitað væri frábært ef
hægt væri að tryggja öllum 186.000
krónur í lágmarksframfærslu,“
segir Jórunn.
Lúðvík segir sömuleiðis að „sú
stórfellda aukning sem er í
félagslega aðstoð, henni er
ávísað á sveitarfélögin. Þetta
er tvöföldun að lágmarki.“
Hann bindur vonir við Tekju-
stofnanefnd ráðherra sveitarstjórn-
armála. „Þar er verið að fara heild-
stætt í gegnum skiptingu tekna
ríkis og sveitarfélaga. Það þarf að
stokka þetta kerfi upp frá grunni,“
segir Lúðvík og minnir á að „fullt af
fólki með miklar [fjármagns]tekjur
greiðir ekkert í útsvar.“
Sem stendur eru sveitarfélög
skuldbundin til að tryggja einstakl-
ingum allt að 115.000 krónur á mán-
uði, hafi þeir engar tekjur eða bætur
frá ríki.
Í skýrslu nefndar um sálfélagsleg
viðbrögð við kreppunni, sem unnin
var að beiðni Guðlaugs Þórs Þórðar-
sonar, fyrrum heilbrigðisráðherra,
var meðal annars lagt til að lág-
markslífeyrir, yrði 186.000 krónur
á mánuði, til þess þurfi að auka fjár-
hagsaðstoð sveitarfélaga.
Ögmundur Jónasson heilbrigðis-
ráðherra hefur lýst yfir ánægju
með skýrsluna.
klemens@frettabladid.is
Lífskjaratrygging of
dýr fyrir sveitarfélög
Formaður Velferðarráðs segir hugmyndir um 186.000 króna lífskjaratryggingu
kosta minnst 760 milljónir á ári og þýða 1,5 prósenta hækkun útsvars. Bæjar-
stjóri Hafnarfjarðar segir þessa upphæð bara það sem fólk þarf til að lifa af.
EKKI KRÓNA MEÐ GATI Sveitarfélög er skuldbundin til að veita íbúum sínum 115.000
krónur á mánuði í framfærslu. Bæjarstjóri Hafnarfjarðar segir hugmyndir um 186.000
krónur ekki óeðlilegar, en sveitarfélögin hafi ekki í neina sjóði að sækja. MYND/ÚR SAFNI
LÚÐVÍK GEIRSSON OG
JÓRUNN FRÍMANNSDÓTTIR
BANKAHRUNIÐ Ríkisstjórnin á að gera ráð-
stafanir um að þeir sem bera ábyrgð á
Icesave-skuldunum axli hana.
Þetta ákvæði í nefndaráliti meiri-
hluta fjárlaganefndar er yfirlýsing um
að þetta sé brýnt að gera til að ná sátt
við samfélagið.
Svo segir formaður nefndarinnar,
Guðbjartur Hannesson.
„Menn ætla að fylgja því eftir
að draga menn til ábyrgðar ef
hægt er,“ segir hann.
Eins og greint var frá á Stöð
2 í gær þýðir þetta að helstu
stjórnendur Landsbankans
gætu þurft að greiða upp í
Icesave-skuldirnar úr eigin
vasa.
Spurður hvort þetta eigi við um
alla stjórnendur Landsbankans, frá
því að Icesave-reikningarnir voru
settir á markað, segir Guðbjartur
að þetta hafi ekki verið útfært
nákvæmlega.
„Það gilda ákveðin lög um það
hvaða hlutverk stjórnir svona
fyrirtækja hafa og það
verður auðvitað að skoða það, hvaða ábyrgð
menn bera,“ segir hann.
„Við óskum eftir því að ríkisstjórnin
útfæri þetta í framhaldinu og til dæmis í
sambandi við sérstakan saksóknara,“ segir
hann. Fyrst þurfi að kanna hver sé réttar-
staða ríkisins til að endurheimta þau verð-
mæti, sem tapast hafa.
Meðal stjórnenda á þessu tímabili voru
þeir Sigurjón Þ. Árnason, Halldór Kristj-
ánsson, Björgólfur Guðmundsson, Kjart-
an Gunnarsson og Þór Kristjánsson. Einnig
Þorgeir Baldursson,forstjóri Odda, og Svafa
Grönfeldt, rektor Háskólans í Reykjavík.
Fordæmi fyrir slíkum málshöfðunum
kann að finnast í Danmörku, þar sem slita-
stjórn Hróarskeldubanka krefst skaðabóta
frá fyrrum bankastjóra hans. - kóþ
Formaður fjárlaganefndar segir ákvæði í Icesave-áliti gert til að skapa sátt:
Stjórnendur verði dregnir til ábyrgðar
GUÐBJARTUR HANNESSON
Formaður fjárlaganefndar
segir að fara skuli eftir lögum
um ábyrgð stjórnenda
Landsbankans. Nefndin vill
að ríkisstjórnin endur-
heimti eins og hægt er
það fé sem tapast hefur.
LÖGREGLUMÁL Annað stóra kjötránið í vikunni var
tilkynnt til lögreglu í gær. Brotist hafði verið inn í
frystigám fyrir utan Kjötbankann í Hafnarfirði að
næturlagi og þaðan stolið talsverðu magni af dýru
kjöti.
Að sögn Kristins Sævars Jónssonar, verkstjóra
hjá Kjötbankanum er enn verið að reikna út og taka
saman hversu miklu var stolið. „Eina sem við sáum
var að það vantar helling af lundum, bæði nauta- og
kálfalundum, sem er náttúrulega fjári dýrt.“
Aðfaranótt síðasta sunnudags var á bilinu sjö til
átta hundruð kílóum af kjöti stolið úr gámi við Kjöt-
húsið á Smiðjuvegi. Hjá bæði Kjötbankanum og
Kjöthúsinu hefur verið brotist inn áður á þessu ári
og kjöti stolið.
Gámarnir eru jafnan vel lokaðir og læstir. Tals-
verð átök virðist hafa þurft til að opna gáminn. „Það
var búið að djöflast á hurðinni og hún var svolítið
skemmd,“ segir Kristin. Svo virðist sem þjófarnir
hafi fyrst reynt að spenna gáminn upp með járn-
karli, svo með því að nota tóg og bíl, og að lokum var
notaður slípirokkur til að opna gáminn.
Enginn þessara fjögurra þjófnaða hefur verið
upplýstur. Þá má geta þess að samkvæmt heimild-
um Fréttablaðsins var fokdýru gasgrilli stolið úr
verslun Garðheima í vikunni. - þeb, sh
Miklu magni af kjöti stolið úr gámi í annað sinn í þessari viku:
Stórtækir kjötþjófar ganga lausir
KJÖT Á GRILLI Það er engu líkara en að einhverjir óprúttnir
aðilar séu að undirbúa heljarinnar grillveislu.
FRÉTTABLAÐIÐ / ARNÞÓR
BANKAHRUNIÐ Langflug, fyrirtæki
Finns Ingólfssonar, fyrrum ráð-
herra og seðlabankastjóra, gæti
kostað ríkisbankana fjórtán millj-
arða króna.
Frestur rann
út á miðviku-
dag til að lýsa
kröfu í þrota-
bú fyrirtækis-
ins og krefst
Landsbanki
átta milljarða
en Íslandsbanki
fimm. Skipta-
stjóri fyrirtæk-
isins sagði fréttastofu Stöðvar tvö
að litlar sem engar eignir væri
til skiptanna. Þrotið lendi því að
mestu á bönkunum.
Finnur Ingólfsson var iðnaðar-
og viðskiptaráðherra fyrir Fram-
sókn frá 1994 til 1999, áður en
hann varð seðlabankastjóri. Hann
eignaðist svo hlut í Búnaðarbank-
anum. - kóþ.
Fyrrum ráðherra Framsóknar:
Finnur kostar
fjórtán milljarða
FINNUR
INGÓLFSSON
DANMÖRK Tíu til tólf skotum var
hleypt af við Nørrebro í Kaup-
mannahöfn í gær og þurfti að
flytja óeinkennisklæddan lög-
reglumann á sjúkrahús.
Sá særðist á hendi og í maga, en
var ekki talinn í lífshættu. Einn-
ig munu tveir almennir borgar-
ar hafa særst, hugsanlega vegna
endurkasts kúlna.
Skothríðin var á Jægerborgs-
gade, þar sem vímuefnasalar hafa
haft bækistöðvar sínar. Ekstra-
bladet.dk segir rapparann Niarn
vera annan hinna særðu borgara,
en lögreglan gat ekki staðfest þetta
við Berlingske Tidende.
Sjónarvottar sögðu þrjá menn
hafa flúið af vettvangi. - kóþ
Skothríð í Kaupmannahöfn:
Lögreglumaður
varð fyrir skoti
219 óku of hratt
Tvö hundruð og nítján voru staðnir að
hraðakstri á Vesturlandsvegi í Reykja-
vík á þriðjudag á móts við Vínlands-
leið í Grafarholti. Á einni klukkustund,
eftir hádegi, fóru 1.151 ökutæki þessa
akstursleið. Meðalhraði hinna brot-
legu var 95 kílómetrar en þarna er
80 kílómetra hámarkshraði. Sá sem
hraðast ók mældist á 132.
Hraðakstur á Hringbraut
434 ökumenn óku of hratt vestur
Hringbraut á þriðjudag og miðviku-
dag. Meðalhraði hinna brotlegu var
75 kílómetrar á klst. en þarna er 60
km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók
mældist á 108.
UMFERÐ
Fræðsla gegn utanvegaakstri
Vegagerðin, tryggingafélög og
bílaleigur undirrituðu í gær samstarfs-
samning um gerð og uppsetningu
skilta með fræðslu gegn akstri utan
vega sem sett verða upp á tíu helstu
leiðum inn á hálendi Íslands.
SAMGÖNGUR
SPURNING DAGSINS