Fréttablaðið - 21.08.2009, Side 11
FÖSTUDAGUR 21. ágúst 2009 11
NÁTTÚRA Veiðitímabilið á grá-
gæs og heiðagæs hófst í gær
og nokkur fjöldi skyttna fór til
veiða. Illa viðraði og óvíst er
hverjar gæftir voru.
Helsingja má veiða frá og með
1. september, þó ekki fyrr en 25.
september í Skaftafellssýslum,
en verið er að reyna að vernda
varpstofn fuglsins. Helsingi
verpir eingöngu í Skaftafells-
sýslum. Blesgæs er áfram friðuð.
Grágæsastofninn er áætlaður
100.000 dýr sem er svipað og árið
2007, heiðagæsastofninn 350.000
dýr og helsingjastofninn 70.000
dýr. - kóp
Skotveiðimenn kætast:
Gæsaveiðar
hafnar á ný
GÆSIR Illa viðraði á veiðimenn sem
gengu til gæsa í gær, á fyrsta degi veiði-
tímabilsins.
SKOTLAND, AP Kenny MacAskill, dómsmála-
ráðherra Skotlands, tók í gær þá ákvörðun
að Líbíumaðurinn Abdel Baset al-Megrahi
yrði látinn laus eftir að hafa afplánað átta
ár af lífstíðarfangelsisdómi.
Megrahi sat í fangelsi fyrir aðild sína
að Lockerbie-málinu, þegar bandarísk
farþegaflugvél var sprengd í loft upp yfir
skoska bænum Lockerbie árið 1988.
Megrahi er krabbameinsveikur og á ekki
langt eftir. Hann féll í vikunni frá áfrýjun
dómsins, gegn því að fá að fara heim til
Líbíu áður en hann deyr.
MacAskill tók ekkert mark á mótmælum
bandarískra ráðamanna, sem sumir hverj-
ir hafa sagt að ekki ætti að sýna neina
miskunn manni sem ber ábyrgð á dauða
270 manns.
„Ekki er hægt að búast við því að þeir
sem eiga um sárt að binda geti gleymt því
sem gerðist, hvað þá fyrirgefið,“ sagði
MacAskill. „Hins vegar stendur al-Meg-
rahi nú frammi fyrir dómi frá æðri mátt-
arvöldum.“
Al-Megrahi er 57 ára. Hann er eini mað-
urinn sem hlotið hefur dóm í Lockerbie-
málinu. Í Bretlandi eru margir sannfærðir
um að hann sé saklaus, en aðstandendur
þeirra sem létust mótmæltu í gær harðlega
úrskurði dómsmálaráðherrans. - gb
Líbíumaðurinn, sem hlaut dóm fyrir Lockerbie-sprengjuárásina, látinn laus:
Abdel Baset al-Megrahi fær að deyja í Líbíu
Á LEIÐ TIL LÍBÍU Abdel Baset al-Megrahi
gengur um borð í flugvél á flugvelli í
Glasgow í Skotlandi.
FRÉTTABLAÐIÐ/AP
KJARAMÁL Kjaraviðræður hófust
í gær á milli lögreglumanna og
ríkisins hjá ríkissáttasemjara.
Lögreglumenn felldu í síðustu
viku kjarasamninga við ríkið
með miklum meirihluta, yfir 90
prósent felldu samninginn.
Í yfirlýsingu sem Landssam-
band lögreglumanna sendi frá sér
í kjölfar atkvæðagreiðslunnar
var ástandið innan lögreglunn-
ar harmað. Þá sagði að lög-
reglumenn veltu því nú fyrir
sér hvoru megin línunnar þeir
myndu standa, kæmi til nýrrar
búsáhaldabyltingar. Lögreglu-
menn hafa ekki verkfallsrétt, en
hafa rætt sín á milli um aðrar
aðgerðir í kjarabaráttu sinni.
- kóp
Kjaraviðræður hefjast:
Lögreglumenn
ræða við ríkið
LÖGREGLUSTÖÐ Lögreglumenn telja kjör
sín hafa versnað undanfarin ár og eru
nú í kjaraviðræðum við ríkið.
FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
FJÁRMÁL Mosfellsbær hefur efnt til
skuldabréfaútboðs á verðtryggð-
um skuldabréfum til lífeyrissjóða.
Boðinn var út milljarður króna
á fimm prósenta vöxtum til tíu
ára. Samkvæmt upplýsingum frá
Mosfellsbæ er sölunni að mestu
lokið.
Lánsféð verður notað til að end-
urfjármagna skuldir bæjarins og
einnig til þess að ljúka uppbygg-
ingarverkefnum í bænum, meðal
annars að byggja nýjan skóla sem
taka á í notkun á næsta ári.
Mosfellsbær hefur ekki tekið
langtímalán síðan árið 2004, og
hefur greitt niður skuldir síðustu
ár. - þeb
Mosfellsbær bauð út milljarð:
Skuldabréfasölu
nánast lokið
Nýr forstjóri ráðinn
Jón Ingvar Pálsson hefur verið ráðinn
forstjóri Innheimtustofnunar sveitarfé-
laga. Hann hefur starfað hjá stofnun-
inni í níu ár, síðast sem yfirlögfræð-
ingur. Sóttu 32 um stöðuna. Hilmar
Björgvinsson, fyrrum forstjóri, lét af
störfum vegna aldurs.
STJÓRNSÝSLA
Aukakrónur
fyrir Námufélaga
Ahd Tamimi,
Námufélagi á
málabraut
La
us
n:
Es
p
er
an
tó
Kynntu þér Námuna á landsbankinn.is,
í síma 410 4000 eða í næsta útibúi.
*
G
ild
ir
í L
au
g
ar
ás
b
íó
i,
S
m
ár
ab
íó
i,
R
eg
n
b
og
an
u
m
, H
ás
kó
la
b
íó
i o
g
B
or
g
ar
b
íó
i m
án
.-
fim
. s
é
g
re
it
t
m
eð
N
ám
u
ko
rt
i
ÞAÐ ER LEIKUR AÐ LÆRA MEÐ NÁMUNNI
Náman leggur námsmönnum lið með því að bjóða hagstæðari kjör,
betri yfirsýn yfir fjármálin, 2 fyrir 1 í bíó*, 150 fríar færslur á ári,
Námu A-kort með Aukakrónusöfnun auk fjölda annarra fríðinda.