Fréttablaðið - 21.08.2009, Side 13
FÖSTUDAGUR 21. ágúst 2009 13
RÚSSLAND, AP Ellefu menn úr
áhöfn rússneska flutningaskips-
ins Arctic Sea voru samstundis
færðir til yfirheyrslu eftir að
áhöfnin kom til Moskvu með
flugi í gær.
Enn er margt á huldu um ferðir
skipsins, sem fannst út af Græn-
höfðaeyjum síðastliðinn mánu-
dag nokkrum vikum eftir að það
týndist.
Átta manns eru í haldi, sakað-
ir um að hafa rænt skipinu. Sak-
borningarnir eru í hinu alræmda
Lefortovo-fangelsi í Moskvu, þar
sem arftakar leyniþjónustunnar
KGB ráða ríkjum.
Skipstjórinn og þrír aðrir úr
áhöfninni eru enn á skipinu. - gb
Áhöfnin á Arctic Sea:
Strax færð til
yfirheyrslu
KOMNIR TIL MOSKVU Nokkrir úr áhöfn
týnda skipsins Arctic Sea. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
SAMFÉLAGSMÁL Sigursteinn Más-
son, fyrrverandi formaður
Öryrkjabandalags Íslands, hefur
ákveðið að gefa
aftur kost á sér
til embættisins.
Sigursteinn
segir stór og
mikilvæg verk-
efni framundan
við að verja vel-
ferðarþjónust-
una, en sækja
jafnframt fram
með nauðsyn-
legar breytingar á þjónustu við
fatlaða. Hann hafi því ákveðið að
taka þeirri áskorun að gefa aftur
kost á sér. Guðjón Sigurðsson for-
maður MND félagsins og Evald
Krog formaður samtaka fólks
með vöðvarýrnunarsjúkdóma í
Danmörku skoruðu á þriðjudag á
hann að gera það. - þeb
Öryrkjabandalag Íslands:
Sigursteinn
gefur kost á sér
SIGURSTEINN
MÁSSON
Grjóthrun úr Súðavíkurhlíð
Tveir bílar skemmdust mikið eftir að
þeir óku á grjót sem féll úr Súðavíkur-
hlíð á miðvikudagskvöld. Tveggja til
þriggja tonna steinn féll einnig úr
hlíðinni gegnt Súðavík svo önnur
akreinin lokaðist um tíma.
VESTFIRÐIR
FJÖLMIÐLAR Jóhanna Sigurðardótt-
ir forsætisráðherra er í 74. sæti á
lista tímaritsins Forbes yfir 100
valdamestu konur heims. Í sæt-
inu fyrir neðan er ein valdamesta
kona Mið-Austurlanda, Ranía Jór-
daníudrottning.
Ástæða þess að Jóhanna er á
listanum er að „allra augu bein-
ast að henni þar sem hún reyn-
ir að koma Íslandi á kjölinn eftir
efnahagshrunið“, að sögn Forbes.
Einnig er hún helsti talsmaður inn-
göngu Íslands í Evrópusambandið
og að taka upp evru þrátt fyrir að
sú skoðun eigi „ekki hljómgrunn
meðal allra Íslendinga“, eins og
segir í umsögn Forbes.
Angela Merkel, kanslari Þýska-
lands, vermir efsta sæti listans
fjórða árið í röð og gæti það komið
sér vel í komandi kosningabaráttu í
Þýskalandi í september. Í öðru sæti
er Sheila Blair, stjórnarformaður
tryggingasjóðs innstæðueigenda í
Bandaríkjunum. Forstjóri Pepsi-
keðjunnar, Indra Nooyi er í því
þriðja, Cynthia Carroll, forstjóri
Anglo-American, í fjórða og Ho
Ching, kaupsýslukona frá Singa-
púr, í fimmta.
Mat Forbes byggist á tveimur
þáttum; hversu áberandi konurn-
ar eru í fjölmiðlum og hversu stór
fyrirtækin eða löndin eru sem þær
stjórna. - vsp
Angela Merkel er valdamesta kona í heimi samkvæmt tímaritinu Forbes:
Jóhanna ein þeirra valdamestu
JÓHANNA SIGURÐARDÓTTIR Ranía
Jórdaníudrottning, ein valdamesta kona
Mið-Austurlanda, nær ekki að skáka
Jóhönnu.
H
V
ÍT
A
H
Ú
S
IÐ
/
S
ÍA
-
A
c
ta
v
is
9
0
8
0
9
1
Íbúfen®
– Bólgueyðandi og verkjastillandi
Njóttu
stundarinnar
án verkja
Notkunarsvið: Íbúfen inniheldur íbúprófen sem er bólgueyðandi, verkjastillandi og hitalækkandi lyf.
Íbúfen er notað við liðagigt, slitgigt, tíðaverkjum, tannpínu og höfuðverk. Einnig eftir minniháttar aðgerðir,
t.d. tanndrátt. Varúðarreglur: Fólk sem hefur ofnæmi fyrir íbúprófeni eða öðrum skyldum lyfjum (NSAID),
með skerta lifrarstarfsemi eða alvarlegan hjarta- eða nýrnasjúkdóm á ekki að nota lyfið. Fólk sem fengið hefur
astma, nefslímubólgu eða ofsakláða eftir töku acetýlsalicýlsýru eða annarra bólgueyðandi lyfja á ekki að nota
lyfið. Gæta þarf varúðar við gjöf lyfsins hjá fólki með tilhneigingu til magasárs eða með sögu um slík sár, aukna
blæðingartilhneigingu eða helluroða (SLE). Einnig hjá sjúklingum með veilt hjarta, nýrna- eða lifrarsjúkdóm,
sérstaklega ef meðhöndlað er með þvagræsilyfi samtímis, þá þarf að fylgjast með mögulegri minnkaðri
nýrnastarfsemi og vökvasöfnun. Lyfið er ekki ætlað barnshafandi konum. Aukaverkanir: Íbúfen getur valdið
aukaverkunum eins og t.d. meltingaróþægindum, niðurgangi, ógleði, útbrotum, þreytu og höfuðverk.
Skammtastærðir: Fullorðnir: Venjulegir skammtar eru 600-2000 mg á dag í 3-4 jöfnum skömmtum.
Ekki er mælt með stærri dagskammti en 2400 mg. Börn: Venjulegir skammtar eru 20 mg/kg líkamsþunga á
dag í 3-4 jöfnum skömmtum. Börnum <30 kg skal eigi gefa meira en 500 mg á dag. Lesið vel leiðbeiningar
sem fylgja lyfinu. Lyfið skal geymt þar sem börn hvorki ná til né sjá. Janúar 2009
Laga fáfarna vegi
Stefnt er að því að lagfæra um tíu til
tólf vegaspotta í Borgarbyggð með
styrk frá Vegagerðinni. Um er að
ræða fáfarna vegi, heim að eyðibýl-
um, gangnamannakofum og öðru.
Ákveðið verður á næstunni hvaða
vegir verða fyrir valinu.
VESTURLAND
NÁTTÚRA Fuglaverndunarfélag
Íslands hefur skorað á Svandísi
Svavarsdóttur umhverfisráð-
herra að grípa til ráðstafana til
að vernda sjófuglastofna.
Nýlegar rannsóknir benda til
þess að mikil fækkun eigi sér
stað meðal íslenskra sjófugla.
Þess vegna skorar félagið á ráð-
herra, og bendir á að á Íslandi
séu margir stærstu sjóuglastofn-
ar í Evrópu. Félagið leggur til að
komið verði á lágmarksgrunn-
rannsóknum á stofnbreytingum
sjófugla. Þá er einnig lagt til að
tegundir á válista verði friðaðar,
sem og varpstaðir þeirra, fugla-
björg og aðrar byggðir. - þeb
Fuglaverndunarfélag Íslands:
Vilja friða fugla
og fuglabjörg
DANSAÐ Í SYDNEY Ástralskur frum-
byggi dansar framan við trúarlíkneski á
menningarhátíð í borginni Sydney.
FRÉTTABLAÐIÐ/AP