Fréttablaðið - 21.08.2009, Blaðsíða 16
16 21. ágúst 2009 FÖSTUDAGUR
greinar@frettabladid.is
FRÁ DEGI TIL DAGS
FRÉTTABLAÐIÐ Skaftahlíð 24, 105 Reykjavík SÍMI: 512 5000, ritstjorn@frettabladid.is FRÉTTASTJÓRAR: Arndís Þorgeirsdóttir arndis@frettabladid.is, Kristján Hjálmarsson, kristjan@frettabladid.is Trausti Hafliðason trausti@frettabladid.is og Höskuldur Daði Magnússon (dægurmál) hdm@frettabladid.is
MENNING: Páll Baldvin Baldvinsson fulltrúi ritstjóra pbb@frettabladid.is VIÐSKIPTARITSTJÓRI: Óli Kr. Ármannsson olikr@markadurinn.is HELGAREFNI: Anna Margrét Björnsson amb@frettabladid.is og Sigríður Björg Tómasdóttir sigridur@frettabladid.is ALLT OG SÉRBLÖÐ: Roald Eyvindsson roald@frettabladid.is
og Sólveig Gísladóttir solveig@frettabladid.is ÍÞRÓTTIR: Henry Birgir Gunnarsson henry@frettabladid.is LJÓSMYNDIR: Pjetur Sigurðsson pjetur@frettabladid.is FRAMLEIÐSLUSTJÓRI: Kolbrún Ingibergsdóttir kolbrun@frettabladid.is
ÚTGÁFUFÉLAG: 365 miðlar ehf. STJÓRNARFORMAÐUR: Ingibjörg S. Pálmadóttir FORSTJÓRI OG ÚTGÁFUSTJÓRI: Ari Edwald
RITSTJÓRI: Jón Kaldal jk@frettabladid.is AÐSTOÐARRITSTJÓRI: Steinunn Stefánsdóttir steinunn@frettabladid.is
Fréttablaðið kemur út í 90.000 eintökum og er dreift ókeypis á heimili á höfuðborgarsvæðinu og Akureyri. Einnig er hægt
að fá blaðið í völdum verslunum á landsbyggðinni. Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins í stafrænu
formi og í gagnabönkum án endurgjalds. Issn 1670-3871
Frá því í mars síðastliðnum hef ég ásamt öðrum stjórnend-
um Straums unnið að endurskipu-
lagningu bankans í nánu samráði
við kröfuhafa og skilanefnd. Um
nokkurt skeið hafa legið fyrir og
verið aðgengilegar á vef bank-
ans tillögur um skiptingu bank-
ans í tvö félög. Annað félagið mun
hafa umsjón með eignum bankans
og hámarka söluandvirði þeirra á
komandi árum. Hitt félagið mun
einbeita sér að endurreisn hóf-
stilltrar fjárfestingabankastarf-
semi á Íslandi. Tillögurnar og öll
sú vinna sem að baki þeim liggur
miða að því að hámarka endur-
heimtur kröfuhafa og þar með tak-
marka tjón þeirra af greiðsluþroti
bankans.
Kröfuhafar Straums skiptast í
tvo megin hópa. Tryggðir kröfu-
hafar, meðal annars Seðlabanki
Íslands, ríkissjóður og Íslands-
banki, hafa forgang vegna veða
og fá kröfur sínar greiddar að
fullu. Ótryggðir, almennir kröfu-
hafar, sem eru að einum þriðja
hluta íslenskir lífeyrissjóðir og að
tveimur þriðju erlend fjármála-
fyrirtæki, hafa val um að hafna
eða samþykkja nauðasamninga
fyrir Straum. Samkvæmt áætlun-
um bankans má gera ráð fyrir að
verði nauðasamningar felldir fái
almennir kröfuhafar 8% af fé sínu
til baka. Verði nauðasamningar
hinsvegar samþykktir eigi kröfu-
hafar von á að endurheimta ríflega
helming krafna. Jafnframt eignist
þeir bæði eignaumsýslufélagið og
fjárfestingabankann óskipt og taki
yfir stjórn þeirra. Straumur verði
með öðrum orðum alfarið í eigu og
undir stjórn almennra kröfuhafa
að lokinni endurskipulagningu
bankans.
Við framangreint mat á lík-
legum endurheimtum kröfuhafa
þurftu stjórnendur Straums meðal
annars að gefa sér forsendur um
rekstrarkostnað vegna eignaum-
sýslu og sölu eigna á komandi
árum. Hafa ber í huga að yfir 90%
af eignum Straums eru erlendar
og áætlanir bankans gera ráð fyrir
að umsjón með þeim að lokinni
endurskipulagningu verði einkum
á könnu erlendra stjórnenda í
gegnum starfstöðvar í London og
Kaupmannahöfn. Í ljósi þess virt-
ist óraunhæft að taka einvörðungu
mið af sérstökum aðstæðum á
Íslandi við áætlun launakostnaðar
af þessari starfsemi. Óhjákvæmi-
legt er að sú áætlun fari fram í víð-
ara samhengi og í takt við það sem
annars staðar þykir eðlilegt, eftir
atvikum með árangurstengingu
launa. Er þá einkum að því stefnt
að halda í lykilstarfsfólk sem býr
við annað launa- og samkeppnis-
umhverfi en er til staðar hér á
landi.
Óháðir ráðgjafar voru fengnir
að verkinu og var það mat þeirra
að óformlegar hugmyndir um
árangurstengdar greiðslur til
starfsmanna Straums á næstu
árum væru innan eðlilegs ramma
í ljósi markaðsaðstæðna þar sem
vinnan fer fram og til þess fallnar
að tengja saman hagsmuni kröfu-
hafa og starfsmanna. Þetta mat er
umdeilanlegt, sérstaklega á Íslandi
í ljósi alls þess sem hér hefur af-
laga farið. Að þessu sögðu þykir
þó mikilvægt að árétta að hvorki
stjórnendur Straums né aðrir
hafa gert þá kröfu að framtíðar-
fyrirkomulag launa verði hluti
af nauðasamningum félagsins.
Ávirðingar um siðlausar þvinganir
stjórnenda eða að kröfuhafar eigi
að hafna hugmyndum um endur-
skipulagningu Straums vegna
krafna um óhæfilegar greiðslur til
starfsmanna eiga því varla rétt á
sér. Full sátt ríkir um að greiðslur
til starfsmanna við eignaumsýslu
markist af stefnu nýrrar stjórn-
ar að endurskipulagningu lokinni.
Þessi stjórn verður alfarið skipuð
fulltrúum almennra kröfuhafa.
Þannig munu kröfuhafarnir sjálfir
fara með fullt forræði yfir félag-
inu, þar með talið ákvarðanavald
um launastefnu þess og samninga
við stjórnendur.
Í ljósi þeirrar umræðu sem átt
hefur sér stað undanfarna daga er
ég ekki í nokkrum vafa um að ég
og aðrir sem að endurskipulagn-
ingunni koma hefðum átt að gefa
aðstæðum hér á landi betri gaum.
Ég tel einnig mikilvægt að fram
komi að aldrei hefur staðið til að
ég verði þátttakandi í eignaum-
sýslu Straums að endurskipulagn-
ingu lokinni og hef ég því engra
persónulegra hagsmuna að gæta
í tengslum við launafyrirkomu-
lag þeirrar starfsemi. Sem starf-
andi forstjóri félagsins ber ég hins
vegar ríka ábyrgð á því sem frá
félaginu kemur og biðst afsökunar,
fyrir eigin hönd og félagsins, á að
þær forsendur sem áætlanir mínar
og annarra stjórnenda voru reistar
á hafi einblínt um of á erlendar
aðstæður og ekki verið í nægjan-
legum tengslum við þann veru-
leika sem við Íslendingar búum nú
við sem þjóð.
Framhald málsins verður í hönd-
um nýrrar stjórnar og nýrra eig-
enda bankans. Það er þeirra að
meta hvernig hagsmunir þeirra
verða best tryggðir.
Höfundur er forstjóri Straums-
Burðaráss fjárfestingabanka hf.
Rangt mat á veruleikann
Árangurstengdar greiðslur
ÓTTAR PÁLSSON
UMRÆÐAN |
UMRÆÐAN
Sigríður Ingibjörg Ingadóttir
Hver vill ekki lækka skuldir sínar á tímum hækkandi höfuðstóls, minnkandi
tekna og lækkandi eignaverðs? Við aðstæð-
ur sem þessar verða þau sem ábyrgð bera
á stjórn ríkisins að stíga varlega til jarðar
og lofa ekki meiru en hægt er að standa við.
Annað er ábyrgðarleysi. Þetta sjónarmið á
Guðmundur Steingrímsson greinilega erfitt
með að skilja. Ríkisstjórnin hefur í sínum
aðgerðum lagt áherslu á að aðstoða fólk í greiðslu-
vanda, m.a. vegna tekjutaps og hækkandi greiðslu-
byrði. Hér er það greiðslugetan sem skiptir máli.
Í vor voru einnig sett lög um greiðsluaðlögun sem
m.a. felur í sér niðurfellingu skulda.
Framsóknarflokkurinn hefur boðað almenna
20% niðurfellingu skulda einstaklinga og fyrir-
tækja. Þessi almenna töfralausn átti þess utan ekki
að kosta neitt! Gallinn við þessar tillögur blasir við:
Sum fyrirtæki og einstaklingar þurfa meira en 20%
niðurfellingu skulda á meðan aðrir þurfa minna eða
alls ekkert. Það er ljóst að bankarnir hafa afskrifað
og munu á næstu misserum afskrifa mikið
af skuldum, en getan til afskrifta er tak-
mörkuð og því nauðsynlegt að nýta hana
með skynsamlegum hætti. Það er því ekki
annað en ódýrt mælskubragð af hálfu Guð-
mundar að gefa í skyn að ríkisstjórnin legg-
ist „gegn því að afföll fasteignalána renni til
íslenskra heimila“.
Alvarlegasti annmarkinn á tillögum
Framsóknarflokksins er þó sá að hafa aldrei
útskýrt hvernig ætti að fjármagna almenna
niðurfærslu á lánum Íbúðalánasjóðs,
lífeyrissjóðanna eða Lánasjóðs íslenskra
námsmanna. Ég skora hér með á Guðmund að hætta
nú gasprinu og útskýra hvar hann ætlar að sækja
fjármagn til almennrar niðurfærslu hjá þessum aðil-
um. Þegar hann hefur útskýrt það getur hann sakað
mig um skilningsleysi. Fyrr ekki.
Stjórnarflokkarnir leggja áherslu á að vinna á
skuldavanda heimilanna. Staðan er erfiðust hjá þeim
sem eru með gengisbundin lán og þeim sem fjár-
festu í húsnæði á hátindi eignabólunnar og áttu lítið
eigið fé. Það tekur tíma að leysa þennan vanda en
skilningsleysi stjórnvalda er ekki fyrirstaðan.
Höfundur er þingkona.
Skuldir og ábyrgðarleysi
SIGRÍÐUR
INGIBJÖRG
INGADÓTTIR
Ímyndinni allt
Íslenskir ímyndasmiðir hafa staðið í
ströngu undanfarið við að sannfæra
almenning og sérílagi stjórnvöld um
að á eftir vatni séu almannatenglar
líklega verðmætasta auðlind þjóð-
arinnar og megi ekki fara til spillis.
Nokkur árangur hefur orðið af þessu
markaðstátaki, að minnsta kosti ef
marka má fréttatilkynningu frá
Innheimtustofnun sveitarfélaga,
sem send var á fjölmiðla í gær,
um að nýr forstjóri hefði tekið
við stjórnartaumunum þar á bæ.
Fréttatilkynninguna sendi
Eggert Skúlason, sem hefur
starfað sem fjölmiðlafulltrúi
Eiðs Smára Guðjohnsen,
fótboltamanns hjá Barce-
lona. Ljóst er að engin tilkynning er
of smá hjá hinu opinbera til að leitað
sé á náðir sérfræðinga til að koma
henni á framfæri.
Einn er eyland
Enginn er eyland segir einhvers
staðar en nú hefur annað komið í
ljós. Þór Saari, þingmaður Borgara-
hreyfingarinnar, upplýsti nefnilega
þingheim í gær um að eftirnafn
hans þýddi eyja á finnsku. Hvort
hann muni standa sem
eyland eftir í þinghópi
hreyfingarinnar,
sem fer óðum
minnkandi,
skal ósagt
látið.
Rasmussen og kreppan
Samtök hernaðar andstæðinga hafa
sent frá sér ályktun þar sem komu
Anders Fogh Rasmussen, aðalritara
Atlantshafsbandalagsins, hingað til
lands, er mótmælt.
Í ályktuninni segir að sjaldan sé
ein báran stök, kreppa hafi dunið
á þjóðinni, kvikusöfnun sé í helstu
eldstöðvum landsins og síðan hafi
Anders Fogh komið. Samtökin
segja vandséð hvernig íslenskir
ráðamenn geti frábeðið sér
heimsókn ísraelsks ráðherra
vegna árása Ísarelsmanna, en
fundað síðan með „aðalritaran-
um vígfúsa“.
kolbeinn@frettabladid.is
Opið virka daga kl. 8:00 til 17:00
www.velaland.is
VESTURLANDSVEGUR
VAGNHÖFÐI
VÉLALAND
HÚSGAGNA-
HÖLLIN
TANGARHÖFÐI
BÍlDSHÖFÐI
H
Ö
FÐ
A
B
A
K
K
I
REYKJAVÍK
Vélaland - VAGNHÖFÐA 21
Sími 577-4500
Vélaland sérhæfir sig í tímareimum.
Komdu í Vélaland og fáðu ráðgjöf um skiptingu
á tímareim. Vélaland skiptir fljótt og vel um
tímareimina fyrir þig, á föstu verði.
Fáðu ráðgjöf um tímareimaskipti
Er tímareimin komin á tíma?
Fast verð hjá Vélalandi
Skoðaðu fast verð hjá Vélalandi. Hringdu
núna í síma 577-4500 og pantaðu tíma.
Verðdæmi um tímareimaskipti:
Nissan Patrol 2,8 dísil Árgerð 1992-2000
Heildarverð, varahlutur og vinna: 50.805 kr.
Toyota Land Cruiser 90 3,0TD Árgerð 1997-2002
Heildarverð, varahlutur og vinna: 40.780 kr.
Toyota Corolla 1,6 bensín Árgerð 1997-2001
Heildarverð, varahlutur og vinna: 38.870 kr.
VW Golf 1,6AEE bensín Árgerð 1997-2006
Heildarverð, varahlutur og vinna: 46.774 kr.
Ford Focus 1,6 bensín Árgerð 1998-2005
Heildarverð, varahlutur og vinna: 38.948 kr.
Sjáðu hvar við erum. Hringdu núna í síma
577-4500 og pantaðu tíma.
H
ugmynd stjórnenda Straums um árangurstengdar
greiðslur til starfsmanna bankans hafa vakið upp
mikið hneykslunarbál. Menn hafa keppst hver um
annan að henda sinni spýtu á köstinn, fullir vandlæt-
ingar á tillögunni.
Bónushugmyndin er hins vegar langt í frá óskynsamleg á alla
kanta.
Hvatakerfi eru þekkt á ýmsum sviðum athafnalífsins, til dæmis
í sjómennsku svo stuðst sé við hina gömlu undirstöðuatvinnugrein
þjóðarinnar. Ef vel fiskast fær öll áhöfnin hærri laun, og stærð
hlutarins fer eftir stöðu og ábyrgð hvers og eins.
Þetta er gott kerfi því allir græða. Sjómennirnir sem eru uppi í
brú, á dekki og kokkurinn í eldhúsinu. Og auðvitað útgerðin líka.
Aflaháir og reynslumiklir skipstjórar eru fyrir vikið eftirsóttir og
dýrmætir starfskraftar.
Vandamálið við hugmynd stjórnenda Straums er að hún var viðr-
uð af röngu fólki á röngum tímapunkti. Ef nýir eigendur bankans,
sem eru að stærstum hluta erlendir kröfuhafar en líka íslenskir
lífeyrissjóðir, hefðu metið stöðuna sem svo að þeir gætu náð mestu
af verðmætum sínum til baka frá Straumi, með því að innleiða
launakerfi með bónusum, hefði það tæplegast valdið viðlíka við-
brögðum og stjórnendur bankans hafa mátt reyna á sínu skinni.
Það þarf varla nema í meðallagi góða dómgreind til þess að átta
sig á að það hljómar hörmulega að sama fólk og var við stjórn þegar
bankinn féll, sé höfundar að áætlunum um að það fái tugmilljóna
verðlaun fyrir að endurheimta hluta af eigum hans til baka.
Þau hörðu viðbrögð sem hugmyndir stjórnenda Straums hafa
vakið, gefa tilefni til að rifja upp vangaveltur sem birtust hér á
þessum stað fyrir réttum sjö vikum. Þær snúa að uppgjöri annars
banka sem skiptir þjóðina töluvert meira máli en Straumur.
Samkvæmt frumvarpi um ríkisábyrgðina á Icesave-reikningn-
um verður það hlutverk skilanefndar Landsbankans að hámarka
virði eigna bankans með því að ráðstafa þeim á sem hagkvæmast-
an hátt þegar það er talið tímabært, eins og það er orðað.
Þetta þýðir að skilanefndin á að selja eignir Landsbankans fyrir
hæsta mögulega verð á næstu sjö árum. Ekki þarf að fara mörgum
orðum um hversu mikilvægt verkefni það er. Hver afraksturinn
verður mun ráða úrslitum um þær upphæðir sem lenda á þjóðar-
búinu vegna Icesave þegar upp er staðið.
Mikilvægt er að stjórnvöld átti sig sem fyrst á að þetta er verk-
efni fyrir fólk sem er þaulvant alþjóðlegum viðskiptum. Það þarf
vanan aflaskipstjóra og áhöfn, svo kunnugleg hugtök séu notuð.
Því fólki þarf að greiða góð laun og einmitt hafa að auki einhvers
konar hvatakerfi sem miðar að því að sem hæst verð fáist fyrir
eignirnar. Til dæmis með því að fastsetja að ef hærra verð fæst
fyrir þær en tiltekið metnaðarfullt markmið, geti þau, sem starfa
við umsýslu og sölu eignanna, uppskorið ríkulega.
Mjög auðvelt er að gera sér í hugarlund að þessi lýsing á mögu-
legri útfærslu nefndar um sölu eigna Landsbankans, hljómi skelfi-
lega í eyrum þorra almennings.
Hitt er þó alveg á hreinu að þjóðin hefur ekki efni á öðru en að
öllum ráðum verði beitt til að tryggja hæsta mögulega verð fyrir
eignir Landsbankans. Tugum milljarða getur munað á því hvernig
til tekst.
Hvatakerfi fyrir skilanefndina.
Jákvæðir bónusar
JÓN KALDAL SKRIFAR