Fréttablaðið


Fréttablaðið - 21.08.2009, Qupperneq 28

Fréttablaðið - 21.08.2009, Qupperneq 28
4 föstudagur 21. ágúst Stjörnumerki: Steingeit. Uppáhaldsmatur: Hrátt hangikjöt. Uppáhaldsversl- un: Hornbúðin GMS hjá Jafari vini mínum. Diskurinn í spilaranum: Melchior. Mesta dekrið: Að koma heim. Draumafríið: Akkúrat núna langar mig eiginlega bara í útilegu. Líkamsræktin: Afró. Hverju myndirðu sleppa til að spara? Hverju sleppi ég ekki til að spara? Áhrifavaldurinn: Foreldrar mínir, al- gjörlega.✽ ba k v ið tjö ldi n Hera Hilmarsdóttir var tilnefnd til Eddu- verðlauna sem leikkona ársins í aðalhlutverki árið 2007 fyrir hlutverk sitt í myndinni Veðra- mót. Í kjölfarið komst hún inn í leiklistardeild Listaháskóla Íslands en ákvað að freista gæfunnar í London þar sem hún stundar nú nám við LAMDA- leiklistarskólann. Viðtal: Alma Guðmundsdóttir Ljósmyndir: Arnþór Birkisson É g man eftir að hafa viljað verða búðar- kona þegar ég yrði stór, eins og svo margir, og ég tók svo tímabil sem mig langaði að vera tannlæknir,“ segir Hera og bros- ir. „Ég byrjaði ung að spila á selló og þegar ég varð eldri hugsaði ég um að leggja tónlistina fyrir mig. Ég fór í Tónlistarskóla Reykjavík- ur og lærði hjá frábærum kenn- ara, Gunnari Kvaran, en ég fann ég var ekki með nógu mikinn metn- að í tónlistarnámið eingöngu svo ég hætti þegar ég átti að fara að taka sjötta stigið. Ég spilaði ekki á sellóið fyrst eftir að ég hætti, en nú gríp ég reglulega í það,“ segir hún. Aðspurð segir Hera leiklistar- áhugann hafa kviknað snemma. Hún var aðeins fimm ára þegar hún lék sitt fyrsta hlutverk, en hún á ekki langt að sækja hæfi- leikana því að móðir hennar er Þórey Sigþórsdóttir leikkona og faðir hennar er Hilmar Oddsson kvikmyndaleikstjóri. „Ég held að fyrsta hlutverkið mitt hafi verið í Hvíta dauða þar sem ég lék dóttur mömmu. Mig langaði alltaf lúmskt að verða leikkona, en var feimin að láta það í ljós við foreldra mína,“ út- skýrir Hera. „Þegar ég var um fimm ára gerði pabbi Tár úr steini sem var eiginlega fyrsta myndin sem ég fylgdist með honum gera. Ég fékk að leika eitthvert rosa- lega lítið hlutverk í myndinni. Stelpan sem lék eitt aðalhlutverk- ið var bara aðeins eldri en ég og ég skildi ekki alveg þá af hverju hann var að láta einhverja aðra stelpu en mig leika hlutverkið. Ég sagði það samt ekki við hann, en mig grunar að mamma hafi fatt- að það því við pabbi áttum svo samtal uppi í Sagafilm þar sem hann útskýrði fyrir mér að stelp- an væri eldri og með meiri reynslu en ég. Hann gerði mér líka ljóst að það væri ekki sjálfsagt að ég fengi hlutverk þótt ég væri dóttir hans,“ segir Hera brosandi. „Ég held að mamma og pabbi hafi bæði hugs- að að ef ég myndi vilja leggja leik- listina fyrir mig yrði það á mínum eigin forsendum.“ Á BAK VIÐ TJÖLDIN Eftir grunnskóla fór Hera á mála- braut í Menntaskólanum við Hamrahlíð. Þar tók hún þátt í leiksýningu sem varð til þess að hún fékk sitt stærsta hlutverk til þessa. „Ég var að leika í sýningu í MH sem hét Íslenski fjölskyldu- sirkusinn og Sigrún Sól Ólafsdóttir leikstýrði, þegar Guðný Halldórs- dóttir, leikstjóri Veðramóta, kom að horfa á. Hún var þá á höttun- um eftir krökkum í myndina og bauð mér hlutverkið,“ segir Hera sem var tilnefnd til Edduverð- launa sem besta leikkonan fyrir túlkun sína á Dísu sem lendir á upptökuheimilinu Veðramótum. Eftir að Hera útskrifaðist úr MH um jólin 2007 fór hún að vinna hjá Zik-Zak kvikmyndum ehf. „Ég vann á bakvið tjöldin við upptök- ur á Brimi, mynd sem Árni Óli Ás- geirsson var að leikstýra, og The Good Heart í leikstjórn Dags Kára, og vann þá aðallega í framleiðslu- og leikmyndadeild. Það er allt önnur stemning að vera í „krúinu“ en að vera leikari á setti. Það er mun meiri hópstemning og maður lærir mikið af því,“ segir hún. Í ÓTAL PRUFUR Á meðan Hera vann hjá Zik-Zak lék hún í Svörtum englum og Hamrinum auk þess sem hún sótti um í leiklistarskólum í Bretlandi og í leiklistardeild Lista-háskóla Íslands. „Ég var alltaf að hoppa út og eyddi öllum peningum mínum í að fara út í prufur því ég var ekki nógu skynsöm að skipuleggja og nýta ferðirnar. Ég fékk svo að vita að ég væri komin inn í Leiklistar- skólann hérna heima, en var þá ekki búin að fá svar úti og átti enn eftir að fara í nokkrar pruf- ur þar. Ég var orðin mjög spennt fyrir skólanum hér og var búin að borga staðfestingargjald þegar ég fékk að vita að ég væri komin inn í LAMDA – The London Academy of Music and Dramatic Arts. Þá fann ég að ég myndi hafa gott af því að fara út,“ útskýrir Hera sem fór í gegnum strangt inntökupróf, en um 4000 manns sóttu um og aðeins 29 komust inn. „Ég er á þriggja ára „acting course“ sem er venjulega leikaranámið í skólan- um. Aðaláherslan er lögð á sviðs- leik og tæknilega vinnu, en við förum líka í kvikmynda- og sjón- varpsleik,“ segir hún. Hera hefur nú lokið einu ári í skólanum og líkar vel, en við- urkennir að það sé dýrt að vera námsmaður erlendis um þess- ar mundir. „Ég er með námslán, en þetta er mjög dýrt nám og það er svolítið töff núna þegar pundið er búið að vera fast í kringum 215 krónur. Ég þekki nokkra sem eru að hætta í námi úti og koma heim, en ég næ að minnsta kosti enn þá að hanga þarna úti.“ SPUNAKVÖLD OG AFRÓDANS Hera er nú stödd hér á landi í sum- arfríi og segist njóta þess að vera í faðmi fjölskyldu og vina. „Það eru mjög stífar annir í skólanum, en við fáum svo gott frí inn á milli sem ég fíla mjög vel. Það er mjög erfitt að fá vinnu hérna heima í svona stuttan tíma svo ég er bara að taka að mér lítil verkefni hér og þar. Svo er ég líka bara aðeins að hvíla mig eftir tólf tíma skóla- daga alla daga vikunnar og njóta þess að vera heima og hitta fólk- ið mitt,“ segir Hera. Hún situr þó ekki auðum höndum því að með fram vinnu stundar hún afródans og skipuleggur spunakvöld. „Vinkona mín sagði mér að það væri sumarnámskeið í afró í Kramhúsinu sem ég er á núna og það er alveg geðveikt. Á artFart erum við svo nokkrir vinir saman með Spunakvöld. Við vorum með tvö kvöld um síðustu helgi sem heppnuðust mjög vel og verðum einnig í kvöld og annað kvöld á Batteríinu klukkan 21. Þetta er svolítið byggt á Who‘s Line Is It Anyway og það fer svo eftir því hvaða fólk er í salnum hvað áhorf- endur taka mikinn þátt, en fólk er alls ekki pínt til að fara upp á svið,“ segir hún og brosir. HAMARINN Þótt Hera sé í fullu námi erlend- is líður ekki á löngu þar til hún mun sjást í Sjónvarpinu í saka- málaþáttaröðinni Hamrinum. „Við tókum þættina upp síðasta sumar, en þeir gerast úti á landi þar sem verið er að rannsaka dularfullt dauðsfall og ýmsir yfirnáttúruleg- ir hlutir spila inn í. Ég leik dótt- ur hóteleiganda á svæðinu sem er mikill náttúruverndarsinni og veit hvað hún vill,“ segir Hera. Spurð hvort sviðið eða kvik- myndaleikur heilli meira segir hún erfitt að gera upp á milli. „Ég get ekki valið það núna. Draumur- inn er að geta gert bæði því það er svo ólíkt. Sumt sem maður upplif- ir í leikhúsi er ekki hægt að upp- lifa í bíói og öfugt. Ég ætla bara að sjá hvað gerist þegar ég útskrifast. Þó það væri spennandi að komast betur inn í senuna úti, mun ég allt- af vilja leika hérna heima líka.“ Á MÍNUM EIGIN FORSENDUM Efnileg „Ég held að mamma og pabbi hafi bæði hugsað að ef ég myndi vilja leggja leiklistina fyrir mig yrði það á mínum eigin forsendum,“ segir Hera.

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.