Fréttablaðið - 21.08.2009, Blaðsíða 29
21. ágúst föstudagur 5
✽ algjört möst
1 „Fyrir nokkrum árum kynntist ég fötlunarfræði og í kjölfarið hugmyndafræði um sjálfstætt líf. Hugmyndafræðin er mótuð af fötluðu fólki og felur í sér að það hafi tækifæri til sjálfstæðis, jafnréttis, virðingar, sjálfsákvörðunar, valfrels-
is og valds á eigin lífi jafnt og ófatlað fólk.
Sjálfstætt líf er ekki yfirlýsing um að við viljum
gera allt upp á eigin spýtur og lifa í einangrun.
Það er krafa okkar um stjórn og val á eigin lífi.
Hugmyndafræðin ögrar í raun þeirri sýn
að vandi sem fatlað fólk tekst á við stafi af
skerðingunni sem býr í líkama þess. Hug-
myndafræðin er uppspretta félagslega líkans-
ins um fötlun sem bendir á að vandinn stafar
af galla í hönnun bygginga, skorti á aðgengi-
legum upplýsingum og fáfræði stjórnvalda og
almennings. Slíkt stuðlar ekki síður að mis-
munun og útilokun fatlaðs fólks.
Áður samþykkti ég þau skilaboð samfélags-
ins að ég væri gölluð og líkaminn ekki eðli-
legur og ég gæti því ekki gert kröfu um sömu
réttindi og lífsgæði og aðrir. Með kynnum
mínum af þessum fræðum geri ég mér grein
fyrir að mitt líf er jafn mikilvægt og allra ann-
arra og enginn galli í skerðingunni fólgin. Gall-
ana getum við fjarlægt en þeir búa í umhverfi
og hugarfari okkar allra. Það ætlast ég til að
við gerum því þannig getur fatlað fólk lifað
lífi sem það velur sér sjálft og verið jafngilt
öðrum í samfélaginu.“
FÖTLUNARFRÆÐI OG SJÁLFSTÆTT LÍF
Freyja Haraldsdóttir þroskaþjálfanemi
ÁHRIFA-
valdurinn
Gerðu varirnar
ómótstæðilegar
með Gloss Pur-
varaglossinum frá
Yves Saint Laur-
ent. Glossinn
gefur mátulegan
gljáa með mildum
ilmi af mangó.
Litadagkremið
frá Lancome
klikkar ekki.
Hydra Zen
Teinte Neuro-
calm-kremið
gefur fallegan
lit, hefur róandi
áhrif og inni-
heldur sólvörn
númer 15.
Fáðu þér frískandi
sítrus-úða frá
L‘Occitane. Hann
viðheldur raka húð-
arinnar og má nota
hvenær dags sem
er bæði á andlit og
líkama.
4
5Rifnar galla-buxur eru alveg
málið þessa
dagana, hvort
sem þær eru
bláar, hvítar,
svartar eða
gráar. Þú getur
sjálf gert bux-
urnar snjáðar
og búið til göt,
en best er að
fara varlega svo
götin verði ekki
allt of stór.
3Rokkaðu upp lúkkið með áber-andi hálsmeni úr mörgum mis-
munandi keðjum. Þú getur
einnig blandað saman nokkr-
um af þínum uppáhaldsháls-
menum.
2