Fréttablaðið - 21.08.2009, Side 36
24 21. ágúst 2009 FÖSTUDAGUR
■ Pondus Eftir Frode Øverli
■ Gelgjan Eftir Jerry Scott & Jim Borgman
■ Handan við hornið Eftir Tony Lopes
■ Kjölturakkar Eftir Patrick McDonnell
■ Barnalán Eftir Jerry Scott & Rick Kirkman
Hve lengi
hefurðu séð
þessar ofsjónir,
herra minn?
Hana,
búinn!
Glæsilegt! 2 klukku-
tímar, 34 mínútur
og 15 sekúndur!
Ég hef verið að
bæta mig mikið
undanfarið!
Jahá!
Taktu skóna þína af
gólfinu, Palli.
Ókei.
Bara til að
pirra mig.
Kannski var þetta allt
einn stór draumur og ég
vakna sem manneskja!!!
GUÐI SÉ LOF!
Sjáðu
allt þetta
nammi!
Þú færð ekki
neitt. Ég er að
selja það í fjár-
öflun skólans.
Hvað
kostar það?
Þúsundkall
kassinn, eða
tveir á 1800 og
svo tíu prósent
afsláttur ef þú
kaupir fyrir
meira en fimm
þúsund.
Ó.
Hvað kostar
að fá bara að
sleikja smá?
Hreiðar Már Sigurðsson, fyrrum for-stjóri Kaupþings, var í sjónvarpsvið-tali á miðvikudaginn. Og hann hafði
varla sleppt síðasta orðinu þegar netið var
farið að fljóta í alls kyns færslum um hvers
konar glæpamaður þessi náungi væri. Sem
er ekki einu sinni auðmaður lengur. Hvort
lög hafi verið brotin í hinu mikla banka-
hruni er fyrir sérstakan sak-
sóknara að svara og norsk-
ættuðu vinkonu hans. En
menn eru sem betur fer sak-
lausir uns sekt þeirra er sönn-
uð. Auðmenn Íslands eru engin
undantekning frá þeirri reglu.
En maður velti óneitanlega fyrir
sér siðfræðinni á bakvið bankahrunið.
Getur verið að jafn stór hópur og auð-
menn Íslands voru hafi tekið sig saman
og brotið lög og reglur vísvitandi? Svar-
ið við því hjá Hreiðari í Lúxemborg er
eflaust nei. Honum finnst hann ekki hafa
brotið nein lög. Í hans huga er hann ekki
glæpamaður eins og netverjar halda fram.
Regluverkið, sem hefði bundið banka-
mennina í báða skó, var einfaldlega ekki
fyrir hendi heldur kaus löggjafarvaldið að
leggja allt kapp á að greiða götur fjármála-
lífsins enda nýtt síldarævintýri í fæðingu
með hlutabréf í stað silfurs hafsins. Skelfi-
legustu afleiðingarnar af þeirri firru eru
Icesave-samningarnir.
Svar Hreiðars við spurningum um lög-
brot í sjónvarpi gat því aldrei orðið neitt
annað en nei. Ef einhver hefði spurt banka-
forstjórann hvort það hefði verið siðferðis-
lega rétt að lána jafn háar fjárhæðir
aðilum tengdum bankanum og Kaupþing
gerði rétt fyrir hrun bankans er ekki víst
að svarið hefði verið jafneinfalt. Enda var
hugtakinu „siðferðislega rétt“ haldið sem
lengst frá íslensku útrásinni.
Siðferðislega rétt
NOKKUR ORÐ
Freyr Gígja
Gunnarsson
Helgarblaðið:
Heimili og hönnun:
Menning:
Kolbrún Halldórsdóttir í helgar-
viðtali.
Beinta Maria Didriksen og Levi
Didriksen: Levi níu ára er stoð
og stytta tvíburasystur sinnar
sem er með sjúkdóm sem
aðeins fimm manns í heiminum
þjást af.
Íslensk hönnun eins og hún
gerist best. Húsgögn, arkitek-
túr og vöruhönnun í Listasafni
Reykjavíkur á Kjarvalsstöðum.
Þrjár óperufrumsýningar í maí.
Mest seldu bókmenntaverk
Evrópu í fyrra.
Íslenska ímyndin á viðreisnar-
árunum.
Allt um Listahátíðina.