Fréttablaðið - 21.08.2009, Síða 44
21. ágúst 2009 FÖSTUDAGUR
[up
pl‡s
inga
-
sím
i sk
ólan
s
er 5
68.3
725]
[veldu
gó›an
jar›veg
fyrir
barni›
flitt] -veldu Su›urhlí›arskóla!
„Þetta hefur gengið alveg hreint glimrandi,“ segir
Pétur Grétarsson, skipuleggjandi Jazzhátíðar
Reykjavíkur. „Fyrsta vikan er að klárast. Við höfum
oft verið dálítið seinir í gang en núna startaði
hún með miklum látum. Við erum alveg búnir að
sprengja utan af okkur Rosenberg.“
Þetta er þriðja árið í röð sem Pétur stjórnar hátíð-
inni og segir hann viðbrögðin í ár þau bestu hingað
til. „Við erum að selja aðgangspassa og fólk nýtir þá
mjög vel. Það er ótrúlega gaman fyrir okkar lista-
menn að hafa svona fjölsótta tónleika.“
Hátíðin stendur yfir í þrjár vikur til viðbótar. Í
kvöld verða fyrstu stóru tónleikarnir þar sem sann-
kölluð gítarveisla verður haldin á Nasa. Á meðal
þeirra sem stíga þar á svið eru Hilmar Jensson
ásamt franska gítarleikaranum Marc Ducret og
bandaríska trommaranum Jim Black, Björn Thor-
oddsen, með sænska gítarsnillingnum Ulf Wakeni-
us, og Guðmundur Pétursson ásamt hljómsveit. - fb
Fullt út úr dyrum á Jazzhátíð
ÁNÆGÐIR DJASSARAR Pétur Grétarsson (í miðjunni) ásamt
hópi íslenskra djassspilara sem spila á hátíðinni í ár.
FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Aðstandendur sjónvarps-
þáttaraðarinnar Ástríðar
fögnuðu frumsýningu á
skemmtistaðnum Barböru
við Laugaveg 22.
Þættirnir eru sýndir á Stöð 2 og fór
fyrsti þátturinn í loftið á miðviku-
dagskvöld en mörgum af þekkt-
ustu gamanleikurum þjóðarinn-
ar bregður fyrir í þeim. Þættirnir
segja frá Ástríði sem hefur störf
hjá fjármálafyrirtæki í Reykjavík
þegar góðærið stendur sem hæst.
Þættirnir eru sagðir vera í róman-
tískum dúr en þeir fjalla um áður-
nefnda Ástríði sem gengur betur
að finna þann ranga í lífi sínu en
þann rétta.
Ilmur Kristjánsdóttir leik-
ur aðalhlutverkið í þáttunum en
meðal annarra sem koma við sögu
í þeim má nefna Hilmi Snæ Guðna-
son, Friðrik Friðriksson, Margréti
Vilhjálmsdóttur og Þóri Sæmunds-
son, ungan leikara sem nam sín
fræði í Noregi. Leikstjóri er Silja
Hauksdóttir en handritshöfund-
ur Íslands, Sigurjón Kjartansson,
hafði yfirumsjón með gerð hand-
ritsins og naut þar dyggrar aðstoð-
ar þeirra Silju og Ilmar auk Kötlu
Maríu Þorgeirsdóttur. - fgg
Nýjum sjónvarpsþætti fagnað
LEIKSTJÓRINN OG LEIKKONAN Silja Hauksdóttir leikstýrir Ástríði en Ilmur Kristjáns-
dóttir leikur aðalhlutverkið. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
STJARNAN OG MENNIRNIR Á BAK
VIÐ TJÖLDIN Sjónvarpstjórinn Pálmi
Guðmundsson ásamt sinni hægri
hönd, Skarphéðni Guðmundssyni
dagskrárstjóra og stjörnu þáttanna, Ilmi
Kristjánsdóttur.
NÝSTIRNI Þóra Karítas leikur eitt
aðalhlutverkanna í Ástríði ásamt Þóri
Sæmundssyni (t.v.). Með þeim er Sig-
urður Guðjónsson.
SÁTT Kjartan Guðjónsson, Harpa Elísa
og Friðrik Friðriksson voru að sjálfsögðu
kampakát í frumsýningapartíi Ástríðar.