Fréttablaðið - 21.08.2009, Blaðsíða 50
38 21. ágúst 2009 FÖSTUDAGUR
FRJÁLSAR Það er um fátt meira talað
í íþróttaheiminum þessa dagana
en hina 18 ára hlaupakonu frá
Suður-Afríku, Caster Semenya.
Hún ruddist fram á sjónarsviðið
fyrir þrem vikum og vann síðan
ótrúlegan sigur á heimsmeistara-
mótinu í 800 metra hlaupi. Hljóp
hún úrslitahlaupið á besta tíma
ársins.
Hún gaf engin viðtöl eftir
úrslitahlaupið en einhverjir blaða-
menn kölluðu að henni spurning-
ar. Svarið sem þeir fengu var ein-
falt: „Mér er alveg sama um þetta
próf,“ sagði Semenya. Hún hefur
nefnilega verið skikkuð til þess
að gangast undir próf til að sann-
reyna kyn hennar enda leikur
grunur á því að hún sé karlmaður
en ekki kvenmaður.
Alþjóða frjálsíþrótta-
sambandið fór fram á
prófið þegar hún hljóp
á besta tíma ársins á
Afríkumóti unglinga í
lok júlí. Hún hefur því
skotist úr því að vera
óþekktur hlaupari yfir í
að verða heimsmeistari
með yfirburðum á
mettíma. Það
tekur marg-
ar vikur að fá
niðurstöður úr
kynprófum og
því liggur ekki
ljóst fyrir hvort
hún sé karl eða
kona fyrr en
eftir nokkrar
vikur.
Svona mál eru eðli-
lega erfið meðferðar
en Alþjóða frjálsíþrótta-
sambandið hefur feng-
ið bágt fyrir að greina
frá þessu skömmu
áður en úrslitahlaup-
ið fór fram.
„Það má ekki
gleyma því að hún
er að keppa í þeim
flokki sem Suður-
Afríka setur hana
í. Þessi uppá-
koma er vissulega
ósanngjörn og
niðurlægjandi fyrir keppandann
en miðað við hversu mikið hefur
verið svindlað í þessari íþrótta-
grein þá verður að leiða öll svona
mál til lykta,“ sagði Michael John-
son sem vann fjögur Ólympíugull
í spretthlaupum á sínum tíma. „Ég
tel að það sé rétt hjá sambandinu
að taka á málinu en það fer kolvit-
laust að því.“
Breska hlaupagoðsögnin Steve
Cram er einnig gagnrýninn á
frjálsíþróttasambandið. „Þessi
tímasetning á tíðindunum er ótrú-
lega ósanngjörn gagnvart keppand-
anum,“ sagði Cram og fjölmargir
aðrir hafa tekið í sama streng.
Suður-Afríkumönnum blöskrar
þessi umræða og þeir standa með
„stelpunni“ sinni.
„Þessi umræða er niðurlægjandi
fyrir konur og gefur til kynna að
konur séu hægar. Caster er ekki
eina konan í heiminum sem er
sterklega byggð,“ segir í yfirlýs-
ingu frá helsta stjórnmálaflokki
landsins.
henry@frettabladid.is
Er Semenya úlfur í sauðargæru?
Heimsmeistarinn í 800 metra hlaupi kvenna, Caster Semenya, hefur að mörgu leyti stolið senunni á HM
í frjálsíþróttum. Ekki bara fyrir frábæra frammistöðu og heimsmeistaratitil heldur fyrir þá staðreynd að
margir telja að hún sé karlmaður. Hefur hin 18 ára Semenya verið skikkuð í kynpróf.
KARLMANNLEG Hin 18 ára Semenya er ákaflega kraftalega byggð og þykir að margra mati ekki mjög kvenleg. Verður áhuga-
vert að sjá hvað kemur út úr kynprófinu. NORDIC PHOTOS/AFP
FRJÁLSAR Fjölmiðar í Suður-Afr-
íku hafa setið um foreldra Caster
Semenya eftir að í ljós kom að
Alþjóðafrjálsíþróttasambandið
vildi sannreyna kyn hennar.
Foreldrarnir hafa báðir tjáð sig
um málið við fjölmiðla.
„Hún er litla stelpan mín. Ég
ól hana upp og hef aldrei verið
í vafa um kynferðið. Hún er
kona og ég get vel endurtekið
það milljón sinnum,“ sagði faðir
hennar, Jacob.
Meira að segja amma Semenya
hefur tjáð sig um málið sem hún
segir vera vitleysu.
„Hvað get ég gert þegar hún er
kölluð karlmaður þó svo hún sé
ekki karlmaður? Guð lét hana líta
svona út,“ sagði amman ákveðin.
„Hún sagði við mig að hún
skildi ekki allt þetta fjaðrafok.
Hún trúir því að hún hafi fengið
þessa hæfileika frá Guði og hún
mun nýta sér þessa hæfileika,“
sagði liðstjóri suðurafríska liðs-
ins á HM í Berlín. - hbg
Foreldrar Semenya:
Hún er litla
stelpan okkar
SIGURVEGARI Semenya kemur hér lang-
fyrst í mark í 800 metra hlaupinu.
NORDIC PHOTOS/AFP
FÓTBOLTI Hávær orðrómur fór í
gang á miðvikudaginn um að Rafa-
el Benitez væri við það að labba út
hjá Liverpool. Svo hátt fór orð-
rómurinn að veðmangarar hættu
að taka við veðmálum um að hann
væri að hætta með liðið.
Christian Purslow, fram-
kvæmdastjóri Liverpool sem er
að taka við flestu af því sem Rick
Parry sinnti hjá félaginu, segir
ekkert vera til í þessum orðrómi.
Benitez verði um kyrrt hjá félag-
inu.
„Þessi orðrómur er 1000 pró-
sent kjaftæði. Ég snæddi kvöld-
verð með Rafa og sú staðreynd
að ég hafði ekki einu sinni heyrt
þennan orðróm ætti að gefa fólki
til kynna hversu mikið hafi verið
að marka hann,“ sagði nýliðinn
Purslow ákveðinn.
Liverpool fór illa af stað í deild-
inni og á sama tíma komu fréttir
um að Benitez myndi ekki fá mikl-
ar fjárhæðir til að spila úr á leik-
mannamarkaðnum. Það kveikti
orðróminn sem fór eins og eldur
í sinu um netheima og tók á sig
hinar ýmsu myndir.
Svo hangir alltaf yfir Liverpool
sú staðreynd að Real Madrid hefur
lengi haft Benitez í sigtinu en hann
gerði einmitt frábæra hluti með lið
Valencia áður en hann fór til Liver-
pool.
„Ég hef sagt það áður og ég segi
það enn að ég er 100 prósent skuld-
bundinn því verkefni sem ég er að
vinna hjá Liverpool. Það kemur
ekki til greina að svíkja félagið,
stuðningsmennina og leikmenn-
ina,“ sagði Benitez og má því lík-
ast til byrja að veðja um framtíð
hans á nýjan leik.
- hbg
Orðrómur um að Benitez væri að hætta:
Benitez er ekki á
förum frá Liverpool
RAFA BENITEZ Var mikið í slúðurfréttunum en er ekki á förum. NORDIC PHOTOS/AFP