Neisti - 20.08.1984, Side 17

Neisti - 20.08.1984, Side 17
Nicaragua ► ► ► X Að ofan: Sandinistar skæruliöar koma inn i höfuðborgina Managua efti'r ósigur (Djóö- varðliöa. Að neðan: Daniel Ortega stýrir stjórnarfundi. að næg atvinna og matur væri í boði. Arið 1980 var atvinnuleysið komið nið- ur í 13%. Verðbólgan fór úr 70% árið 1979 í 35% árið 1980. Á árinu 1980 fengu 112 OOOmannsnýjaatvinnu. Nýja stjómin átti við mikinn skort á erlendu fjármagni að giíma því fýrir utan allt það sem hún þurfti að kaupa erlendis frá hafði mikill fjármagnsflótti átt sér stað úr landinu. Síðustu tvö árin fyrir bylting- una er talið að fjármagnseigendur hafi flutt um 800 milljónir dollara úr landinu. Þrátt fyrir mikla byrjunarörðugleika og vaxandi árásir gagnbyltingarinnar eftir því sem á leið hefur þjóðarframleiðslan farið vaxandi. 1980 jókst hún um 10% og 1981 um 6%. Árið 1982 urðu mikil flóð sem eyðilögðu mikið af landbúnað- arframleiðslunni og þjóðarframleiðslan minnkaði um 1,4%. 1983 tók hún hins vegar aftur við sér og jókst um 3,5%. Segja má að árið 1982 hafi farið að harðna á dainum hjá byltingunni. Þá minnkaði kaupmáttur og neysla á ann- arri framleiðslu en brýnustu lífs- nauðsynjum dróst saman um 23%. Vegna aðgerða stjómvalda minnkaði neysla á nauðþurftum þó aðeins um 4,7%. Þó verðbólgan færi þá aftur upp í 25% minnkaði kaupmáttur lágmarks- launa í þéttbýli aðeins um 1,4%. Stjómin hefur frá upphafi miðað að- gerðir sínar og stefnu við að bæta hag verkafólks og bænda. Henni hefur orðið býsna vel ágengt enda byltingarsinnað fjöldaátak að baki þeim tölum sem hér eru raktar til að sýna það helsta. Matvælaframleiösla eftir byltingu Framleiðslan árið 1977 er 100. Eftirfarandi tölur em hlutfall af framleiðslu ársins 1977. 1980 1982 Kom 80 91.4 Baunir 71 115.1 Hrísgrjón 132 198.4 Sorghum 148 198.4 Sykur 92 117 Sykurreyr 81 117 Baðmullarfræ 17 53 Nautakjöt 100 70 Svínakjöt 76 158 Kjúklingar 68 268 Mjólk 57 67 Þurrmjólk 106 170 Egg 89 348 Matarolía 79 120 Hveiti 103 137 Kaffi 72 156 Fiskur 104 186 (Heimild: Informe del Primer Seminario Sobre Estrragia Alimentaria, bls. 16-18. Birt í IP/Inprecor). 17

x

Neisti

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Neisti
https://timarit.is/publication/343

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.