Fréttablaðið - 17.09.2009, Blaðsíða 6

Fréttablaðið - 17.09.2009, Blaðsíða 6
6 17. september 2009 FIMMTUDAGUR Er það að vera atvinnulaus eitt af því versta sem fólk lendir í? JÁ 64,5% NEI 35,5% SPURNING DAGSINS Í DAG Er eðlilegt að opið sé fyrir það í lögum að seðlabankastjóri geti haft hærri laun en forsætisráð- herra? Segðu þína skoðun á visir.is Taktu þér tíma með fjölskyldunni einu sinni í mánuði og farið saman yfir reikningana. Var símareikningur- inn til dæmis að hækka eða lækka? Hægt er að gera fjármálin að skemmtilegri fjölskyldustund. Þannig lærir barnið á skemmtilegan hátt að það sem það telur sjálfsagt kostar í raun pening. Kynntu þér dag fjármálalæsis nánar á fé.is Stofnun um fjármálalæsi er sjálfstæð stofnun við Háskólann í Reykjavík og beitir sér fyrir bættu fjármálalæsi íslensku þjóðarinnar. Byr sparisjóður er aðalstyrktaraðili stofnunarinnar. Okkar markmið er að efla fjárhagslega heilsu allra. Skoðaðu reikningana með allri fjölskyldunni Hollráð: Dagur fjármálalæsis 18. september LÖGREGLUMÁL Lögregla varar við atvinnuauglýsingum í Morgun- blaðinu dagana 19. og 29. ágúst og 8. september, undir yfirskriftinni „Job opportunity“. Hafi einhver samband við aug- lýsendurna eftir þeim leiðum sem upp eru gefnar fær sá hinn sami sendan tékka til að skipta í íslenskum bönkum. Hann er síðan beðinn um að senda megin- hluta andvirðisins á heimilisfang í Nígeríu. Sjálfur heldur hinn áhugasami upphæð eftir fyrir sig sjálfan. Lögregla minnir á að við- skiptavinurinn er ábyrgur fyrir andvirði tékka sem íslenskur banki innleysir. - sh Lögreglan varar við svikum: Svindlarar aug- lýstu í dagblaði LÖGREGLUMÁL Vararæðismaður Pól- lands bíður nú eftir að fá lista frá íslensku lögreglunni með nöfn- um pólsku mannanna sem hafa verið handteknir á síðustu vikum á Íslandi. Þeir eru grunaðir um fjöl- mörg innbrot á og í kringum höfuð- borgarsvæðið. Ræðismaðurinn, Michal Gier- watowski, segir þetta gert til að láta pólsk lögregluyfirvöld og dóm- stólakerfið vita af meintum gjörð- um mannanna, en einnig svo fjöl- skyldur þeirra fái að vita um afdrif mannanna. Þannig geti pólska lögreglan látið þá íslensku vita hvort mennirn- ir hafi glæpaferil að baki í heima- landinu, en íslenska lögreglan kanni þetta eflaust einnig sjálf. Michal segir að íslensk fangelsi séu ef til vill ekki vel búin til að taka við pólskum glæpamönnum. Samkvæmt lögum skuli mennirnir þó afplána þar sem glæpurinn var framinn. „Að minnsta kosti til að byrja með, en seinna, eftir einhver ár, geta íslensk yfirvöld ákveðið að vísa þeim úr landi. Þá ljúka þeir fangels- isvistinni í Póllandi,“ segir hann. Í viðtali við pólsku fréttasíð- una Wirtualna Polska í gær sagði Michal einnig að hinir handteknu hefðu verið nýkomnir til landsins. - kóþ Vararæðismaður Pólverja bíður eftir nafnalista innbrotsþjófanna: Lætur pólsku lögregluna vita MICHAL GIERWATOWSKI Vararæðismað- ur Póllands lætur fjölskyldur meintra innbrotsþjófa vita að þeir séu í haldi hér á landi. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON SAMFÉLAGSMÁL Kröftug viðbrögð landsmanna í kjöl- far neyðarkalls ABC barnahjálpar hafa orðið til þess að hægt verður að fjármagna starfsemi barnaheim- ilis í Keníu næstu mánuði, segir Guðrún Margrét Pálsdóttir, formaður ABC barnahjálpar. Alls söfnuðust tæplega fjórar milljónir króna inn á reikning ABC, og hefur obbi þeirrar upphæðar farið í að greiða skuldir sem höfðu safnast upp og greiða rekstur mánaðarins, segir Guðrún. „Þetta kom okkur verulega á óvart, þetta var ynd- islegt bænasvar,“ segir Guðrún. Hún segir neyðar- kallið hafa verið síðasta hálmstráið, og það hafi skil- að árangri langt umfram væntingar. Að auki hafa bæst við um 300 þúsund krónur af mánaðarlegum greiðslum, sem renna munu til skóla- starfsins. Guðrún segir að þessi viðbót sé þó ekki nægjanlega mikil til að fastar mánaðarlegar greiðsl- ur landsmanna til ABC barnahjálpar dugi til að greiða allan fastan kostnað. Afgangurinn af milljónunum sem söfnuðust ætti að duga til að borga mismuninn eitthvað áfram. Guð- rún segist vonast til þess að þegar þær verði uppurn- ar hafi tekist að fjölga þeim sem greiði mánaðarlega. „Þörfin er gríðarleg og hefur ekki minnkað, lík- lega hefur hún frekar aukist,“ segir Guðrún. Hægt er að fá upplýsingar um hvernig styrkja má ABC á vef félagsins, www.abc.is. - bj Milljónir söfnuðust eftir neyðarkall ABC barnahjálpar vegna barna í Keníu: Framlögin yndislegt bænasvar BÖRN Þörfin fyrir starfsemi ABC barnahjálpar í Keníu hefur aukist undanfarið segir formaður barnahjálparinnar. FRÉTTABLAÐIÐ/AP LÖGREGLUMÁL Maðurinn sem tal- inn er hafa staðið fyrir umfangs- miklu pýramídasvindli í Svíþjóð er staddur í Grundarfirði, samkvæmt heimildum Fréttablaðsins. Sam- kvæmt upplýsingum frá alþjóða- deild lögreglu hefur ekki borist framsalsbeiðni frá Svíþjóð vegna mannsins og er hans ekki leitað. Maðurinn heitir Sveinn Frið- finnsson og er 45 ára gamall Grundfirðingur. Sænsku blöðin Dagens Industri og Dagens Nyheder sögðu frá því í gær að Sveinn hafi, í félagi við aðra, staðið fyrir umfangsmiklu svindli sem um þúsund Svíar hafi orðið fyrir barðinu á. Samkvæmt fréttum blaðanna telur sænska fjármálaeftirlitið að svindlið nemi milljörðum íslenskra króna. Svindlið mun hafa gengið þannig fyrir sig að fólki var lofað mikilli ávöxtun fyrir gjaldeyrisviðskipti við félagið Investa Select Offshore og fóru viðskiptin meðal annars fram í gegnum vefsíðunna Zierra. net. Enginn hinna þúsund Svía sem tóku þátt hafi fengið krónu til baka. Málið sé til rannsóknar hjá sænskum saksóknara. Smári Sigurðsson hjá alþjóða- deild lögreglunnar sagðist í gær- kvöldi ekki hafa heyrt af máli Sveins. „Ef það væri verið að leita að honum þá myndi ég vita af því,“ segir Smári. Árið 2005 fjallaði DV um meint svik Sveins í Danmörku. Áður en hann fluttist þangað mun hann hafa átt í vafasömum viðskipt- um um margra ára skeið og feng- ið marga upp á móti sér í þeim efnum. Sveinn er kvæntur franskri konu og leigja þau hús í Grundar- firði. Kona hans eignaðist annað barn þeirra hjóna síðastliðið sumar. Sveinn er eigandi matstof- unnar Krákunnar í Grundarfirði, en húsið sem hún er í hefur verið boðið upp. Ekki tókst að ná í Svein í gær þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir. Heimildir blaðsins herma þó að hann sé staddur í Grundarfirði og hafi verið um hríð. Sveinn hafi komið fyrir öryggismyndavélum við húsið sem hann leigir. Um þarsíðustu jól hafi hann dvalið í bænum en haft með sér tvo lífverði sem fylgdu honum hvert fótmál. Inntur eftir útskýr- ingum bæjarbúa á þessu uppátæki hafi Sveinn svarað því til að Hells Angels væri á hælunum á sér og því þyrfti hann á vernd að halda. kjartan@frettabladid.is kristjan@frettabladid.is Meintur svindlari býr í Grundarfirði Maður sem talinn er hafa staðið fyrir milljarðasvindli í Svíþjóð er staddur í Grundarfirði. Málið er í rannsókn í Svíþjóð en mannsins er ekki leitað af al- þjóðadeild lögreglu. Sagði meðlimi Hells Angels vera á hælunum á sér. Í GRUNDARFIRÐI Sveinn býr í Grundarfirði. Hann hefur komið upp eftirlitsmyndavélum við húsið sem hann leigir þar. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM KJÖRKASSINN
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.