Fréttablaðið - 17.09.2009, Page 10
10 17. september 2009 FIMMTUDAGUR
VIRKJANIR Hlutabréf í HS Orku eru
eftirsótt og tveir aðilar hafa lýst
áhuga á kaupum í fyrirtækinu.
Magma Energy Sweden AB, sem
keypti hlut Orkuveitunnar nýver-
ið, hefur lýst því yfir að það sækist
eftir að eiga helmings hlut, en eftir
kaupin á það 31 prósent.
Steingrímur J. Sigfússon fjár-
málaráðherra segir að viðræður
standi yfir um kaup á því hlutafé
sem eftir er í HS Orku. Verið sé að
skoða aðkomu sterks hóps sem ætti
þá fyrirtækið á móti Magma.
Viðræður hafa staðið á milli rík-
isvaldsins, sveitarfélaga og lífeyris-
sjóða um kaupin. Steingrímur segir
mögulegt að fleiri innlendir aðilar,
opinberir eða félagslegir, komi að
málinu. Hann segir ríkið hafa haft
mikinn áhuga á að ganga inn í kaup
Magma á hlut Orkuveitunnar. Málið
hafi hins vegar verið komið of langt
og frestur of skammur þegar ríkið
kom að viðræðum um kaupin.
Ríkisstjórnin hefur að und-
anförnu rætt orku-, iðnaðar- og
umhverfismál og mun sú umræða
halda áfram á næstunni. Von er á
tillögum í þeim efnum í haust.
Iðnaðar- og umhverfisráðherra
hafa báðir sagt að þær telji að
breyta þurfi lögum um auðlindir
í eigu hins opinbera. Leigutíminn
sé of rúmur, en í tilviki Magma er
hann 65 ár. - kóp
Ríkisvaldið ræðir hlutafélagakaup við innlenda aðila:
Bitist um kaup á
hlutafé í HS Orku
HS ORKA Magma vill kaupa stærri hlut í félaginu. Ríkisvald, sveitarfélög og lífeyris-
sjóðir eru í viðræðum með kaup. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
JEMEN Tólf ára gömul stúlka frá
Jemen lést eftir að hún hafði
reynt í þrjá daga að fæða barn.
Stúlkan var gift 24 ára gömlum
manni frá Sádi-Arabíu.
Stúlkan, sem hét Fawziya
Abdullah Youssef, lést á föstu-
dag eftir miklar blæðingar, en
barnið sem hún hafði reynt að
ala var andvana.
Stúlkan lá á spítala í héraðinu
Hodeida, um það bil 200 kíló-
metrum frá Sana´a, höfuðborg
Jemens, þegar hún lést.
Danska blaðið Jyllands Post-
en segir að andlátið veki spurn-
ingar um hjónabönd barna sem
tíðkist enn víða í Jemen. Stúlk-
an var einungis ellefu ára gömul
þegar hún giftist.
Þrátt fyrir að kvenfrelsis-
samtök og mannréttindasamtök
berjist fyrir því að lágmarks-
aldur verði settur um hjónabönd
hefur ekki enn tekist að fá þing-
ið til að samþykkja slík lög.
- jhh
Hjónabandslög í Jemen:
Tólf ára lést af
barnsförum
Kannabis í Grafarholti
Fíkniefni fundust við húsleit í íbúð
í Grafarholti síðdegis á föstudag.
Um var að ræða um 100 grömm
af kannabis. Tveir menn á þrítugs-
aldri voru handteknir og yfirheyrðir.
Þeir hafa áður komið við sögu hjá
lögreglu.
LÖGREGLUMÁL
ALÞINGI Gunnar Bragi Sveinsson,
fulltrúi Framsóknarflokks í iðn-
aðarnefnd Alþingis, hefur farið
fram á að nefndin verði kölluð
saman sem fyrst. Hann telur að
fjalla verði um mál sem heyri
undir nefndina og geti flýtt end-
urreisn atvinnulífsins.
Meðal þess sem Gunnar vill
að nefndin fjalli um er staðan á
málefnum tengdum orkuöflun og
olíuvinnslu, stöðuna í ferðamál-
um og hugmyndir um Íslands-
stofu. Þá vill hann fara yfir stöð-
una í byggðamálum, stöðuna á
erlendum kvikmyndaverkefnum
og fá yfirlit um erlenda fjárfest-
ingu hér á landi. - bj
Vill fund í iðnaðarnefnd:
Þarf að ræða
endurreisnina
LÖGREGLUMÁL Skemmdarverk
voru unnin á húsum bræðranna
Karls og Steingríms Werners-
sona, sem kenndir eru við Mil-
estone, í fyrrinótt. Rauðri máln-
ingu var slett á bæði húsin, við
Árland og Engihlíð, og síðan flúið
af vettvangi.
Unnið var að því að þrífa og
endurmála húsin fram eftir degi
í gær. Ekki er vitað hverjir voru
að verki.
Skemmdarverkin eru fráleitt
þau fyrstu sem unnin hafa verið
á húsum fólks úr fjármálalífinu
síðustu misseri.
Aðrir sem hafa orðið fyrir
málningarárásum af þessu
tagi eru meðal annars Bjarni
Ármannsson, Björgólfsfeðgar,
Birna Einarsdóttir, bankastjóri
Íslandsbanka, Hreiðar Már Sig-
urðsson og Hannes Smárason.
Þá hefur einnig verið ráðist að
húsum fólks sem tengist orku-
geiranum.
Lögregla hefur yfirheyrt
nokkra vegna árásanna en eng-
inn hefur þó verið handtekinn.
Fjölmiðlum hafa jafnan bor-
ist yfirlýsingar frá aðila sem
kallar sig „Skap ofsa“ eftir að
skemmdarverkin eru unnin,
þar sem hann lýsir þeim á hend-
ur sér. Ekki er vitað hver stend-
ur á bak við dulnefnið. - sh
Skemmdarverk á húsum fólks úr fjármálalífinu halda áfram:
Hús Wernerssona ötuð rauðu
HJÁ KARLI WERNERSSYNI Blóðrauð máln-
ingin var þrifin af húsinu eins og unnt var í
gær. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
VIRÐULEGUR Sjónvarpsfréttamenn
verða að halda ákveðnum virðuleika
við allar aðstæður. En stundum er
hægt að svindla, eins og þessi íþrótta-
fréttamaður í Ísrael. NORDICPHOTOS/AFP
Dr. Rajendra K. Pachauri, einn helsti forystumaður
veraldar í umræðum um loftslagsbreytingar,
heldur opinn fyrirlestur í boði forseta Íslands og
í samvinnu við Háskóla Íslands, laugardaginn
19. september kl. 11:30.
Fyrirlesturinn ber heitið „Can Science Determine
the Politics of Climate Change“ og verður fl uttur í
Hátíðasal Aðalbyggingar Háskóla Íslands. Í upphafi
fundarins fl ytur forseti Íslands stutt ávarp en Kristín
Ingólfsdóttir rektor stýrir samkomunni.
TB
W
A
\R
EY
K
JA
V
ÍK
\
SÍ
A
\
0
9
5
7
5
4
Dr. Pachauri er formaður loftslagsnefndar Sameinuðu
þjóðanna, IPCC. Hann tók við friðarverðlaunum Nóbels
fyrir hönd IPCC árið 2007, en Al Gore fyrrverandi
varaforseti Bandaríkjanna hlaut þá einnig sömu
verðlaun. Dr. Pachauri er jafnframt forstöðumaður
vísinda- og tæknistofnunarinnar TERI í Delhi á Indlandi
(www.teriin.org) sem fæst öðru fremur við rannsóknir
á orkunýtingu og endurnýjanlegum orkugjöfum.
Samstarfssamningur hefur verið gerður milli Háskóla
Íslands og TERI.
Fyrirlesturinn fer fram á ensku og er öllum opinn.
Vísindin og loftslagsbreytingar
Fyrirlestur dr. Pachauri
Steingrímur J. Sigfússon
fjármálaráðherra
Jóhanna Sigurðardóttir
forsætisráðherra
Ólafur Ragnar Grímsson
forseti Íslands
Sigmundur Davíð Gunnlaugsson
formaður Framsóknarflokksins
Bjarni Benediktsson
formaður Sjálfstæðisflokksins
Birgitta Jónsdóttir formaður
þingflokks Borgarahreyfingarinnar
Hversu mikið eða lítið traust berð þú til eftirfarandi aðila?
Mikið traust Lítið traust Heimild: MMR
KÖNNUN Stórlega hefur dregið úr
trausti almennings á Jóhönnu Sig-
urðardóttur forsætisráðherra sam-
kvæmt nýrri skoðanakönnun MMR
á trausti almennings til forystufólks
í stjórnmálum.
Alls sögðust 36 prósent þeirra
sem tóku þátt í könnuninni treysta
Jóhönnu frekar eða mjög mikið. Í
sambærilegri könnun sem gerð var
í febrúar mældist traust hennar 58,5
prósent, og í desember mældist það
63,6 prósent.
„Það er áhugavert að sjá að
Jóhanna, sem hefur verið í sérflokki
í svona könnunum, hefur tekið
dýfu,“ segir Gunnar Helgi Kristins-
son, prófessor í stjórnmálafræði við
Háskóla Íslands. Það komi reyndar
ekki á óvart þar sem hún hafi haft
sig lítið í frammi undanfarið, og
raunar verið gagnrýnd fyrir það.
Traust almennings á Steingrími
J. Sigfússyni fjármálaráðherra er
meira en á Jóhönnu, og hefur staðið
í stað frá síðustu könnun. Um 37,7
prósent aðspurðra sögðust treysta
honum frekar eða mjög mikið.
„Allir sjá að Steingrímur hefur
borið hitann og þungann af því sem
stjórnin hefur verið að gera. Fyrir
hann er þetta mikil traustsyfirlýs-
ing, hann hefur verið í erfiðu hlut-
verki og uppsker nú fyrir það,“ segir
Gunnar Helgi.
Um 40 prósent þeirra sem þátt
tóku í könnuninni sögðust treysta
Jóhönnu og Steingrími mjög eða
frekar lítið.
Traust á öðrum stjórnmálamönn-
um mældist umtalsvert minna en
traust á Jóhönnu og Steingrími.
Alls sögðust 19,4 prósent treysta
Sigmundi Davíð Gunnlaugssyni,
formanni Framsóknarflokksins, en
18,3 prósent sögðust treysta Bjarna
Benediktssyni, formanni Sjálf-
stæðisflokksins. Ríflega helming-
ur aðspurðra segist ekki treysta Sig-
mundi Davíð og Bjarna.
Niðurstaðan er slæm fyrir
Bjarna, hann hefði þurft að fá mun
hærri tölur út úr þessari könnun
til að ná sér á strik, segir Gunnar
Helgi. Sigmundur Davíð hafi á hinn
bóginn verið í harðri stjórnarand-
stöðu, og njóti trausts vegna þess.
Minnst trausts nýtur Birgitta
Jónsdóttir, formaður þingflokks
Borgarahreyfingarinnar. Um 7,4
prósent sögðust treysta henni, en
63 prósent treysta henni ekki.
Gunnar Helgi segir Jóhönnu og
Steingrím njóta afgerandi trausts
stuðningsmanna stjórnarflokk-
anna. Slæmt sé fyrir Bjarna að njóta
aðeins trausts um 60 prósenta stuðn-
ingsmanna eigin flokks. Sigmund-
ur Davíð sé raunar hálfdrættingur á
við Bjarna innan Sjálfstæðisflokks-
ins, sem geti bent til þess að sjálf-
stæðismenn vilji sjá formann sinn í
harðari stjórnarandstöðu.
Könnunin var gerð 9. til 14. sept-
ember. Alls svöruðu 909 einstakling-
ar á aldrinum 18 til 67 ára. Alls tóku
97,2 prósent þátttakenda afstöðu til
spurningarinnar. brjann@frettabladid.is
Dregur mikið
úr traustinu
Traust á Jóhönnu Sigurðardóttur forsætisráðherra
hefur nærri helmingast á níu mánuðum samkvæmt
könnun. Traustsyfirlýsing við Steingrím J. Sigfússon
fjármálaráðherra, segir stjórnmálafræðiprófessor.
MMR kannaði traust almennings
á Ólafi Ragnari Grímssyni, forseta
Íslands. Alls sögðust 22,9 prósent
aðspurðra treysta Ólafi frekar eða
mjög mikið. Traust á Ólafi mældist
32,5 prósent í febrúar, og í desember
2008 um 43,7 prósent. Tæpur helm-
ingur þátttakenda í könnun MMR nú,
47,7 prósent, sögðust treysta Ólafi
Ragnari frekar eða mjög lítið.
Gunnar Helgi Kristinsson stjórn-
málafræðiprófessor segir litlu skipta
fyrir Ólaf þótt fylgið dali. Þó veki
athygli að jafnvel stuðningsmenn
Vinstri grænna og Samfylkingar virð-
ist hafa snúið við honum bakinu.
FJÓRÐUNGUR TREYSTIR FORSETANUM
40,1%
39,8%
47,7%
51,6%
54,4%
63,0% 7,4%
18,3%
19,4%
22,9%
36,0%
37,7%
0 10 20 30 4030 20 1040506070