Fréttablaðið


Fréttablaðið - 17.09.2009, Qupperneq 12

Fréttablaðið - 17.09.2009, Qupperneq 12
12 17. september 2009 FIMMTUDAGUR Mikið reynir á gjaldþrota- lögin um þessar mundir, en stór og viðamikil fyrirtæki og eignarhaldsfélög hafa mörg hver farið illa út úr kreppunni. Lögin hafa verið gagnrýnd; þau eigi ekki við það ástand sem nú er uppi. Þá sé hagsmuna stærsta kröfuhafans, þjóðarinnar, ekki alltaf gætt. Sennilega hefur aldrei reynt eins mikið á gegnsæi og gagnvirkni gjaldþrotalaga og um þessar mund- ir. Vissulega hafa fyrirtæki orðið hér gjaldþrota í gegnum tíðina, en trauðla í jafnmiklum mæli og eftir hrun bankakerfisins. Og það sem meira er, samsetning og eignasafn þeirra fyrirtækja sem fara í gjald- þrot hefur aldrei verið jafn flókið og nú. Þar af leiðir að vald þeirra sem um þrotabúin véla er mikið. Þegar við bætist að ríkið − og þar með þjóðin − er orðið óbeinn eigandi að mörgum fyrirtækjanna verða hags- munirnir enn flóknari. Lögfræðingar skipta búi Þegar fyrirtæki er tekið til gjald- þrotaskipta er skipaður skiptastjóri yfir þrotabúið. Ferlið er þannig að annaðhvort eigendur sjálfir eða kröfuhafar óska eftir úrskurði um gjaldþrot hjá héraðsdómi. Þeirri beiðni þurfa að fylgja gögn sem sýna fram á að ekki sé hægt að standa við fjárhagslegar skuldbindingar. Sé beiðnin samþykkt skipar hér- aðsdómari skiptastjóra. Sá skal vera með embættispróf í lögum og eru héraðsdómarar með lista yfir þá lög- menn sem hafa sérhæft sig í slíkum málum. Sé gjaldþrotið umfangsmik- ið er heimild fyrir því að ráða tvo skiptastjóra. Það gerðist á dögun- um við gjaldþrot Baugs, en þó ekki fyrr en eftir nokkrar umræður þar um. Séu tveir bústjórar getur annar verið endurskoðandi. Skiptastjórar eru á tímakaupi og leggja reikninga fram fyrir vinnu sinni. Þeir reikningar fá stöðu for- gangskrafna í búinu. Skiptastjór- arnir geta ráðið sér fólk til aðstoð- ar og þekkist það til dæmis þegar eignir eru seldar úr búinu. Þeim er þó í sjálfsvald sett hvernig þeir haga vinnu sinni og í raun stýra þeir sjálf- ir umfangi vinnu sinnar. Það er þó kröfuhafanna að sýna skiptastjóran- um aðhald og hann verður að standa skil á reikningum gagnvart þeim. Hagsmunir kröfuhafa Skiptastjórar eru skipaðir til að gæta hagsmuna kröfuhafa. Þeir hagsmun- ir geta hins vegar verið mjög mis- munandi og aðstaða kröfuhafanna mismunandi til að fylgja kröfunum eftir. Það þarf engum blöðum um það að fletta að aðstaða stórs við- skiptabanka til að fylgja eftir kröf- um sínum er allt önnur en lítils vélaverkstæðis, svo dæmi sé tekið. Skiptastjórinn á samkvæmt lögum hins vegar að gæta allra hagsmuna jafnt, enda getur lítil krafa skipt smáfyrirtæki meira máli en háar upphæðir banka. Eftir að skiptastjóri hefur verið skipaður lýsir hann eftir kröfum í þrotabúið. Kröfur eru flokkaðar eftir forgangi. Séu eignir í búinu sem sannað er að aðrir eigi eru þær afhentar réttum eigendum, sem og ágóði af sölu á slíkum eignum sé hann fyrir hendi. Næstar slíkum kröfum eru til dæmis kostnaður af skiptunum sjálfum, kröfur sem orðið hafa til eftir uppkvaðningu úrskurðar um gjaldþrotaskipti og kröfur sem orðið hafa til eftir frest- dag, en það er sá dagur þegar beiðni um greiðslustöðvun barst dómara. Þar næst koma kröfur sem njóta veðréttar eða annarra tryggingar- réttinda í eign búsins. Þar á eftir koma til dæmis launakröfur, bætur vegna slita á vinnusamningi, orlofs- fé, lífeyrissjóðsgjöld og ýmislegt er lýtur að réttindum launamanna. Breyttar aðstæður Gjaldþrot er vissulega alltaf erfitt og sársaukafullt fyrir þá sem í því lenda, hvort sem það er stórt eða smátt, og það er harmleikur fyrir þá sem í hlut eiga. Lögin um gjald- þrot gera ráð fyrir eðlilegu árferði, ef svo má að orði komast. Efnahags- ástandið hefur orðið til þess að álag- ið á það kerfi sem er um gjaldþrot og þrotabú er orðið gríðarlega mikið. Síðan lögin voru sett, árið 1991, hafa fyrirtæki þróast og eignatengsl eru orðin flóknari. Það á ekki síst við um eignarhalds- félögin, en að baki núverandi stöðu þeirra getur verið flókinn kaupferill, oftar en ekki á milli skyldra aðila. Þannig eru dæmi um eignarhalds- félög sem eiga mjög skuldsett dótt- urfélög. Móðurfélagið, eða jafnvel nýtt félag stofnað eingöngu í þeim tilgangi, kaupir síðan eignirnar frá dótturfélaginu, en skilur skuldirn- ar eftir. Eftir stendur skel utan um skuldir og engar eignir upp í. Í slíkum tilfellum getur verið flók- ið ferli að meta hver er raunveruleg- ur eigandi og hvort einhverjir gjörn- ingar gangi til baka. Þegar kemur að sölu eignanna úr slíku gjaldþroti verða skiptastjórar að vera öllum hnútum kunnugir og þekkja til raunverulegra verðmæta og hvern- ig hægt er að hámarka gróða af söl- unni. Skiptastjórinn sjálfur ræður því hvort sala eigna úr búinu er opin eða ekki. Hann þarf þó að skýra ákvörðun sína fyrir kröfuhöfum. Þá koma aðrir hagsmunir inn í, svo sem samkeppnissjónarmið. Síð- astir, en fráleitt sístir, eru svo hags- munir almennings. FRÉTTASKÝRING: Gjaldþrot - fyrirtæki Úrelt lög við núverandi aðstæður „Mörg þeirra félaga sem orðið hafa gjaldþrota á síðustu mánuðum eða stefna í gjaldþrot eru mun stærri og flóknari en verið hefur áður. Þeim fylgja flókin reikningsskil og málefni þeim tengd. Ég tel að lögfræðingar búi almennt ekki yfir nægri þekkingu á þeim málum. Það mundi styrkja afgreiðslu gjaldþrotamála ef skipaðir væru bústjórar sem hefðu sérþekkingu í reikn- ingsskilum. Mér finnst eðlilegt að tveir bústjórar séu skipaðir í stórum og flóknum fyrirtækjum, lögfræðingur og endurskoðandi,” segir Alexand- er Eðvarðsson, endurskoðandi hjá KPMG. Alexander segir undir hælinn lagt hvort bústjórar leiti aðstoðar endurskoðenda. Hann þekki bæði til að lögmenn sendi heilu spurningarlist ana um stöðu fyrirtækja, en einnig að þeir hafi ekkert samband til að afla upplýsinga um fjárhagsleg mál- efni þeirra. Þá sé staðan stundum þannig að þekking endurskoðanda á innviðum og fjárhag félaga sem hann hefur jafnvel starfað fyrir í áratugi fari í súginn þar sem skiptastjóri setur sig ekki í samband við hann. Þannig tapist verðmæti. Alexander segir stærstu kröfuhafana, sem yfirleitt hafa bestu tryggingar fyrir sínum lánum, hafi mest áhrif við skiptin. Þeirra hagsmunir kunna þó ekki alltaf að vera þeir sömu og hjá almenn- um kröfuhöfum. Þeir kunna að þrýsta á um sölu á eignum, sem þeir hafa veð í, og eru að sjálfsögðu sáttir ef söluandvirði þeirra nægir fyrir veðkröfum. Bankarnir eru nú að eignast fyrirtæki og aðrar eignir. Gríðarlega mikið vald er með þessu komið inn í bankana. „Ég veit ekki hvort þeir sem eru í stjórnunarstöðum í bönkunum gera sér grein fyrir því hve ofboðslega mikil völd þeir hafa. Slíku valdi fylgir mikil ábyrgð. Tryggja þarf að sem hæst verð fáist fyrir þessar eignir þegar þær eru seldar. Það er því mikilvægt að hafa sölu eigna í sem opnustu ferli þar sem allt er uppi á borðinu. Ef slíkt er ekki gert er hætt við því að tortryggni og ásakanir komi fram um að annarleg sjónarmið kunni að hafa ráðið. Slík staða er óheppileg fyrir alla, sérstaklega þá sem taka ákvarðanir og ekki er sanngjarnt að setja menn í þá stöðu.” HAFA ALLT UPPI Á BORÐINU Sigurður Tómas Magnússon, lögfræðingur og kennari við Háskólann í Reykjavík, segir að aldrei hafi verið mikilvægara en nú að gæta að því að skiptastjórar séu lausir við öll hagsmunatengsl og vinni eingöngu að hagsmunum kröfuhafanna. Sigurður segir kröfuhafana sjálfa þurfa að vera vel á varðbergi og gæta hagsmuna sinna vel. „Það verður að hafa í huga að þrotabúin eru á forræði kröfuhafanna, þeir hafa æðsta vald í málefnum búsins og eignum er ráðstafað í þágu þeirra. Það eru hagsmunir kröfuhafanna að það fáist sem best verð fyrir eignirnar.“ Sigurður segir almenning eiga ríkra hagsmuna að gæta. „Það er mjög mikilvægt að hagsmuna almennings sé gætt sem og samkeppnissjónarmiða. Við fjöldagjaldþrot eins og við búum við nú, þá riðlast allt í þjóðfélaginu. Þær venjulegu aðstæður sem við þekkjum með dreifðri eignaraðild riðlast. Því er mjög mik- ilvægt að samkeppnisyfirvöld fylgist með því sem kemur út úr sölu þrotabúa.“ Sigurður minnir á að oft séu skiptastjórar í þeirri stöðu að það sé brýnt að koma verðmæt- um mjög hratt í verð. Það eigi sérstaklega við um fyrirtæki í rekstri, miklir hagsmunir geti tapast hratt af því að stöðva rekstur. Spurður hvort rétt sé að sala úr þrotabúum sé alltaf opin segir Sigurður það æskilegt, sé hægt að koma því við vegna tímapressu. Oft geti verið brýnt að koma starfsemi í rekstur sem fyrst og einnig geti sú staða komið upp að aðeins fáir aðilar komi til greina sem kaupendur. Best sé þó að beita öllum eðlilegum viðskiptaháttum og útbúa sölu- gögn sem áhugasamir fái. Þannig sé samkeppni best tryggð og að sem best verð fáist. ÞROTABÚ ER Á FORRÆÐI KRÖFUHAFANNA FRÉTTASKÝRING KOLBEINN ÓTTARSSON PROPPÉ kolbeinn@frettabladid.is SIGURÐUR TÓMAS MAGNÚSSON ALEXANDER EÐVARÐSSON AUÐ HVERFI Fjöldi fyrirtækja hefur orðið gjaldþrota að undanförnu, ekki síst í byggingariðnaðinum. Það eru hins vegar fyrirtæki með flókin eignatengsl sem erfiðust eru þegar kemur að uppskiptingu búa. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM Ferlið þegar fyrirtæki kemst í greiðsluvandræði Greiðslustöðvun Reynt að koma nýrri skipan á fjármál með aðstoð lög- manns eða endurskoðenda. Ef endurskipulagning tekst lýkur ferlinu og fyrirtækið starfar áfram ■ Skipaður skiptastjóri ■ Hann lýsir eftir kröfum í búið ■ Fundur kröfuhafa ■ Reynt að koma eignum í verð Búið gert uppGjaldþrot (að eigin ósk eða kröfuhafa) Nauðasamningar Kröfuhafar sem ósáttir eru geta kvartað við kröfuhafa- fund eða farið með málið til dómstólaHluti krafna greiddur, kemur í veg fyrir gjaldþrot
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.