Fréttablaðið - 17.09.2009, Blaðsíða 20

Fréttablaðið - 17.09.2009, Blaðsíða 20
20 17. september 2009 FIMMTUDAGUR greinar@frettabladid.is FRÁ DEGI TIL DAGS FRÉTTABLAÐIÐ Skaftahlíð 24, 105 Reykjavík SÍMI: 512 5000, ritstjorn@frettabladid.is FRÉTTASTJÓRAR: Arndís Þorgeirsdóttir arndis@frettabladid.is, Kristján Hjálmarsson, kristjan@frettabladid.is Trausti Hafliðason trausti@frettabladid.is og Höskuldur Daði Magnússon (dægurmál) hdm@frettabladid.is MENNING: Páll Baldvin Baldvinsson fulltrúi ritstjóra pbb@frettabladid.is VIÐSKIPTARITSTJÓRI: Óli Kr. Ármannsson olikr@markadurinn.is HELGAREFNI: Anna Margrét Björnsson amb@frettabladid.is og Sigríður Björg Tómasdóttir sigridur@frettabladid.is ALLT OG SÉRBLÖÐ: Roald Eyvindsson roald@frettabladid.is og Sólveig Gísladóttir solveig@frettabladid.is ÍÞRÓTTIR: Henry Birgir Gunnarsson henry@frettabladid.is LJÓSMYNDIR: Pjetur Sigurðsson pjetur@frettabladid.is FRAMLEIÐSLUSTJÓRI: Kolbrún Ingibergsdóttir kolbrun@frettabladid.is ÚTGÁFUFÉLAG: 365 miðlar ehf. STJÓRNARFORMAÐUR: Ingibjörg S. Pálmadóttir FORSTJÓRI OG ÚTGÁFUSTJÓRI: Ari Edwald RITSTJÓRI: Jón Kaldal jk@frettabladid.is AÐSTOÐARRITSTJÓRI: Steinunn Stefánsdóttir steinunn@frettabladid.is Fréttablaðið kemur út í 90.000 eintökum og er dreift ókeypis á heimili á höfuðborgarsvæðinu og Akureyri. Einnig er hægt að fá blaðið í völdum verslunum á landsbyggðinni. Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. Issn 1670-3871 Hlutur Alþjóðagjaldeyris-sjóðsins í efnahagsáætlun ríkisstjórnarinnar og Seðlabank- ans vekur tvær spurningar, sem varða umheiminn auk okkar sjálfra. Fjárþörf landsins árin 2008-10 er metin á fimm millj- arða Bandaríkjadala og er mun meiri en svo, að sjóðurinn megni að svala henni. Þessa fjár er þörf til að tryggja, að ríkið geti staðið skil á erlendum skuldbindingum sínum, og til að verja krónuna enn frekara gengisfalli, þegar slakað verður á gjaldeyrishöftunum. Aðgangur Íslands að fyrirgreiðslu sjóðsins er bundinn við umfang efnahagslífsins. Miðað við reglur sjóðsins teygir hann sig út á yztu nöf með því að lána hingað tvo milljarða dala. Fjárhæðin nemur 6.500 dölum á hvern Íslending. Aðstoð sjóðsins við Ungverjaland og Lettland nú nemur 1.600 dölum á hvern Ungverja og 600 dölum á hvern Letta. Það, sem á vantar, þurfa Íslendingar að taka að láni á Norðurlöndum (tvo milljarða dala) og í Færeyjum, Póllandi og Rúss- landi (einn milljarð). Hér þykknar þráðurinn. Skilyrði hverra? Það er skiljanlegt, að aðrir lánveit- endur telji sig líkt og sjóður inn þurfa að binda lánveitingar skil- yrðum til að aga og örva lántak- andann, tryggja skilvísar endur- greiðslur og stuðla að endur heimt glataðs trausts. Þó er ekki ljóst, að skilyrði utanaðkomandi lánveit- enda fari að öllu leyti saman við þaulreynd skilyrði sjóðsins, sem fylgir föstum reglum. Legið hefur fyrir um langa hríð, að Norður- löndin kjósa, að Íslendingar leysi ágreining sinn við Breta og Hol- lendinga um IceSave-málið. Það kom þó ekki á daginn fyrr en nýlega, að Norður löndin binda stuðning sinn við efnahagsáætlun stjórnvalda við lausn málsins. Í þessu ljósi þarf að skoða fyrirheit stjórnvalda í samkomulagi sínu við sjóðinn frá nóvember 2008 um að leysa deiluna. Takist það ekki, vaknar spurning um stuðning Norðurlanda við áætlunina. Gangi þau úr skaftinu, þarf að smíða nýja áætlun um aðgerðir í fjár- málum ríkisins og framhald gjald- eyrishafta til að ná endum saman án frekara gengisfalls. Án gagn- gerrar endurskoðunar mun gengi krónunnar þá falla enn frekar en orðið er. Efnahagsáætluninni eins og hún er nú var einmitt stefnt að því að aftra slíku gengisfalli. Reglur sjóðsins kveða ekki á um, hvernig farið skuli með þau skilyrði, sem utanaðkomandi lán- veitendur vilja leggja á lántak- endur. Þetta dregur úr því gagn- sæi, sem sjóðurinn stefnir að í samskiptum sínum við aðildar- lönd. Sjóðurinn þarf að marka sér skýrar reglur um meðferð slíkra skilyrða. Fólkið í landinu þarf að fá að vita, hvort til dæmis Bretar og Hollendingar skipta sér af samningum Íslands við sjóðinn að tjaldabaki. Þarna hefur sjóðurinn brýnt verk að vinna. Alþjóðleg rannsóknarnefnd Æ síðan bankarnir hrundu hafa verið uppi kröfur um erlenda rannsókn á hruninu frekar en innlenda rannsókn. Fjármála- eftirlitið hefur staðfest, að grun- ur leikur á alvarlegum lögbrotum fyrir hrun, svo sem margir töldu einsýnt frá byrjun. Krafan um erlenda rannsókn helgast af hætt- unni á, að ýmis tengsl banka- manna, stjórnmálamanna og viðskiptaforkólfa geti skaðað innlenda rannsókn og gert hana tortryggilega. Dómskerfið er skilgetið afkvæmi stjórnmála- stéttarinnar og nýtur að því skapi lítils trausts meðal almennings eftir allt, sem á undan er gengið. Samt hefur ríkisstjórnin, hvorki fyrri stjórn né hin, sem nú situr, ekki fallizt á erlenda rannsókn hrunsins, heldur hefur hún látið sér duga að þiggja fyrir annarra tilstilli og með hangandi hendi aðstoð Evu Joly rannsóknar- dómara og fáeinna erlendra sérfræðinga á hennar vegum. Tilfinnanlegt sinnuleysi ríkis- stjórnarinnar um rannsókn hruns- ins vekur tortryggni hér heima og erlendis. Þegar bankar valda erlendum lánardrottnum skaða, sem nemur margfaldri landsframleiðslu, eiga heimamenn og útlendingar heimt- ingu á að fá að vita, hvernig slíkt gat gerzt. Ef innlend yfirvöld virð- ast reyna að leiða málið hjá sér, á heimsbyggðin tveggja kosta völ. Hún getur annaðhvort sett upp nýja alþjóðaskrifstofu til að skipu- leggja rannsóknir á efnahags- hamförum eða falið einhverri alþjóðastofnun, sem fyrir er og málið er skylt, svo sem AGS, að setja sér reglur um, hvernig hægt sé að tryggja óháða rannsókn á hamförunum. Öllum þykir sjálf- sagt, að flugslys séu rannsökuð til hlítar og án undanbragða. Sama máli ætti að gegna um bankahrun. Þegar bankakerfi lands hrynur, þurfa boðlegar almannavarnir að vera til taks. Ef yfirvöld hika, til dæmis vegna þess, að þau hafa eitthvað að fela, getur umheimur- inn þurft að grípa í taumana, helzt í góðri sátt við innlend stjórnvöld. Stólar fyrir dyrum Í DAG | ÞORVALDUR GYLFASON Enn um Ísland og AGS Vilji grasrótarinnar? Efnahags- og skattanefnd Alþingis breytti frumvarpi fjármálaráðherra um laun æðstu embættismanna og setti inn undanþágu svo að greiða mætti seðlabankastjóra, einum embættis- manna, fyrir aukasporslur eins og störf i peningastefnu- nefnd. Í hópi þeirra þingmanna sem lögðu þessa breytingartillögu fyrir Alþingi með nefndaráliti var Val- geir Skagfjörð, nýkjörinn for- maður Borgarahreyfingarinnar, sem sat á þingi í forföllum Þórs Saari þegar breytingin var gerð. Valgeir leiddi uppreisnarhóp, sem var óánægður með hvernig þing- menn hreyfingarinnar ræktuðu gras- rótina. Ætli grasrótin hafi kallað eftir því að Valgeir beitti sér fyrir þessari fyrirgreiðslu til seðlabankastjóra? Ný Já-hreyfing? Gísli Tryggvason, talsmaður neytenda, og Sveinn Andri Sveinsson hæstaréttarlögmað- ur eru að ræða hugmyndir um að stofna nýja Já-hreyfingu til að berjast fyrir ESB-aðild Íslendinga. Gísli átti frumkvæði að málinu og kviknaði hugmyndin á Facebook. Aðrir sem nefndir eru til sögunnar sem þátttakendur í hinni nýju hreyfingu eru gamalkunnir Evrópusinnar eins og Benedikt Jóhannesson, trygginga- stærðfræðingur og útgefandi, Vil- hjálmur Egilsson, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins, Eiríkur Berg- mann Eiríksson dósent, Jón Steindór Valdimarsson, framkvæmdastjóri Samtaka iðnaðarins, og Hallur Magnússon framsóknarmaður. Gísli er líka áhugasamur um að fá þarna inn menn sem ekki hafa gefið sig upp í Evrópu- málum og hefur nefnt Árna Þór Sigurðsson, þingmann VG, í því sambandi. peturg@frettabladid.is UMRÆÐAN Dofri Hermannsson skrifar um samgöngur og umhverfis mál Á þriðjudaginn var lagði Sam fylkingin fram tillögu í borgar stjórn þess efnis að Reykjavíkurborg setti sér mark- mið um að 2020 yrði annar hver bíll knúinn innlendri, vistvænni orku. Ríki, önnur sveitarfélög, samtök og einstakl- ingar innanlands sem utan yrðu fengnir til liðs við borgina um að ná því markmiði. Þjóðir heims leita nú leiða til að gera bílaumferð vistvænni og losa sig undan oki olíuhagkerfisins. Þróunin hefur orðið hraðari ár frá ári og útlit er fyrir stórstígar breytingar á næstu árum. Sam- stillt átak þjóða heims um að draga úr útblæstri gróðurhúsalofttegunda og ákvörðun um að gera Bandaríkin óháð olíuinnflutningi hefur þar mikið að segja. Í þessum aðstæðum felast gríðarleg tækifæri fyrir Reykjavíkurborg og Ísland í heild ef rétt er á spilum haldið. Við höfum aðgang að vistvænni raf- orku á hagstæðum kjörum, við eigum talsvert af metani og rannsóknir á líf- og gervidísil lofa góðu. Við eigum fyrirtæki og starfsfólk með reynslu og þekkingu á sviði vistvænna orkulausna og vegna smæðar samfélagsins geta breytingar hér tekið mun styttri tíma en víðast hvar annars staðar. Tækifæri okkar eru margs konar en fyrir utan gjaldeyrissparnað og minni mengun getur metnaðar full stefna kallað á umtalsverða erlenda fjárfestingu í rannsóknum, þróun og innleiðingu nýrrar tækni og skapað með því þúsundir nýrra starfa á næstu tíu árum. Gott dæmi er heimsþekkt vetnisstrætóverkefni Íslenskrar nýorku en yfir 70% af kostnaði við það verkefni var erlent fjár- magn. Hér er um metnaðarfullt en raunhæft markmið að ræða en eins og oftast er reyndin með stór og flókin viðfangsefni þurfa margir að koma að málinu til að markmiðin náist. Samþykkt var að vísa tillögunni til umfjöllunar í umhverfis- og samgönguráði. Þar mun koma í ljós hvort núver- andi meirihluti treystir sér til forystu um þetta metnaðar fulla verkefni. Höfundur er varaborgarfulltrúi Samfylkingarinnar. Annar hver bíll árið 2020 DOFRI HERMANNSSONVEITINGAHÚS ATHUGIÐ! M arkaðsrannsóknafyrirtækið MMR birti í gær athygl- isverðar niðurstöður úr skoðanakönnun á því hversu mikið traust þjóðin ber til forystumanna stjórnmála- flokkanna. Slíkar kannanir á trausti og vinsældum einstaka stjórnmálamanna þegar langt er til kosn- inga eru auðvitað fyrst og fremst ákveðin gerð af dægrastyttingu. Raunverulegt mat á frammistöðu manna kemur í ljós þegar kjör- kassar eru opnaðir, sem verður tæplega á næstunni. Það sem gerir könnun MMR sérstaklega fróðlega er tímasetning- in. Hún er gerð beint í kjölfar einhverra mestu átaka í stjórnmála- sögu lýðveldisins og er fyrir vikið viss punktmæling á frammistöðu forystumanna flokkanna í þeim atgangi öllum. Útkoman er mis- uppörvandi fyrir flokksformennina og er reyndar beinlínis slæm fyrir alla nema einn. Er það þó sá sem mestur eldur hefur brunnið á undanfarna mánuði. Á sama tíma og traust annarra dalar stendur Steingrímur J. Sig- fússon fjármálaráðherra óhaggaður, líkt og hann gerði í allt sumar. Uppskeran er sú að hann nýtur nú mest trausts meðal þjóðarinnar af öllum flokksformönnunum. Þessu til viðbótar er Steingrímur líka sterkastur á heimavelli, því hann nýtur meiri stuðnings í eigin flokki en aðrir forystumenn í sínum flokkum. Samkvæmt könnun MMR nýtur hann trausts 93,2 prósent þeirra sem segjast myndu kjósa VG. Aðeins einn formaður kemst nálægt Steingrími í þeim efnum og það er Jóhanna Sigurðar- dóttir, forsætisráðherra og formaður Samfylkingarinnar, með 82,9 prósent meðal sinna flokksmanna. Ýmsir hávaðaseggir hafa veist að Steingrími með brigslum um svik við hugsjónir VG. Sá mikli stuðningur sem hann fær innan úr eigin röðum sýnir þó að sú gagnrýni hefur að mestu misst marks. Þar á bæ virðist fólk almennt átta sig á því að það getur verið ákveðin hugsjón í því að velja sér það stjórnarsamstarf þar sem líklegast er að stefnumálin komist í framkvæmd, gegn vissum málamiðlunum, fremur en að dæma sig til áhrifaleysis með ein- strengingshætti. Þetta er þó ekki einhlítt innan VG. Ögmundur Jónasson hefur verið í forystu fyrir andstæð sjónarmið. Niðurstaða könnunar MMR hlýtur að verða honum tilefni til að hugsa sinn gang. Og könnunin er örugglega fleirum íhugunarefni. Þar á meðal Jóhönnu Sigurðardóttur því traustið á henni snarfellur frá fyrri slíkum mælingum. Má það örugglega meðal annars rekja til þess að forsætisráðherra hefur ekki sinnt því hlutverki sínu að eiga í samræðum við fólkið í landinu. Vissulega birtist Jóhanna reglulega í fréttum og segir nokkur orð um þau mál sem eru á dagskrá hverju sinni en meira þarf að koma til en það. Mestar áhyggjur hljóta þó formenn og flokksmenn Sjálfstæðis- flokks og Framsóknarflokks að hafa. Þeir Bjarni Benediktsson og Sigmundur Davíð Gunnlaugsson eiga greinilega langt í land með að fylkja sínu liði að baki sér. Bjarni nýtur aðeins trausts 60 prósent flokksmanna sinna og traust Sigmundar meðal stuðningsmanna Framsóknarflokksins er 67 prósent. Það er auðvitað sitthvað að vera formaður og foringi. Og menn eru ekki það fyrra lengi nema þeir séu líka það seinna. Steingrímur J. styrkir stöðu sína. Formenn og foringjar JÓN KALDAL SKRIFAR
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.