Fréttablaðið - 17.09.2009, Síða 50
30 17. september 2009 FIMMTUDAGUR
■ Pondus Eftir Frode Øverli
■ Gelgjan Eftir Jerry Scott & Jim Borgman
■ Handan við hornið Eftir Tony Lopes
■ Kjölturakkar Eftir Patrick McDonnell
■ Barnalán Eftir Jerry Scott & Rick Kirkman
Risaeðl
u-
beinaþ
jóf-
urinn s
nýr
aftur!
Ertu
eitthvað
stress-
aður?
Jæja, hvað
fannst þér
Sara?
Ehh... mér
fannst ekkert
varið í þetta.
Ekkert varið
í þetta?
Þetta var
ástarljóð!
Mér finnst
bara ekkert
rómantískt
við „Ertu
með á
skrall“.
Ég hélt að
þú værir
rómantísk!
Konur eru
gáta.
Lalli, af hverju elta hundar
eigin hala?
Af sömu
ástæðu og við
náum honum
aldrei.
... af því hann
er þarna.
Stundum finnst mér
eins og við förum beint
frá Prúðuleikurunum
í endursýningar á
Matlock.
Heyrðu, það varst þú
sem vildir bíða með
að eignast börn!
Í gær las ég merkilega frétt um að kvik-mynd um ævi Darwins hefði ekki verið sett í dreifingu vestanhafs. Þetta var
vegna hræðslu um að hún myndi vekja reiði
þeirra fjölmörgu Bandaríkjamanna sem
taka fallegu biblíusöguna um Adam og Evu
bókstaflega. Það er auðvitað hreinlega ótrú-
legt að einungis 37 prósent íbúa stórveld-
isins skuli samþykkja þróunarkenninguna.
Í kjölfarið fór ég af einhverjum ástæðum
að hugsa til litla kvikindisins sem tók sér
búsetu á svölunum hjá okkur síðla sum-
ars. Þessi smávaxna dýrategund,
köngulóin, hefur verið til í yfir
350 milljónir ára og hefur lítið sem
ekkert breyst allan þennan tíma.
Þetta vitum við vegna þess að
steingervingar þeirra og ótelj-
andi fjölda annarra dyra hafa fundist
og verið aldursgreindir. Þeir Banda-
ríkjamenn sem kalla sig creation-
ists halda því fram að steingervingar séu
ekkert nema eitt stórt samsæri guðlausra
vísindamanna. En aftur að köngulónni. Hún
ákvað að spinna ægifagran og stóran vef í
efra horninu á svölunum og breytti heim-
ilisfólkinu í forvitna náttúrufræðinga. Það
var samt aðallega snemma kvölds sem við
urðum vitni að rándýrseðli hennar. Eitt sinn
slysaðist hunangsfluga til þess að fljúga inn
í vefinn. Hún barðist um á hæl og hnakka
en köngulóin, sem var dálítið minni, æddi af
stað til að fanga þessa feitu bráð. Við horfð-
um agndofa á könguló bíta og hunangsflugu
reyna að stinga þar til sú fyrri hörfaði og
sú síðari gat loksins losað sig úr klístruð-
um þráðunum og flogið reið og fegin í áttina
að Miklatúninu. En nú er haustið komið og
vefurinn horfinn. Síðast þegar ég leitaði að
köngulónni lá hún samanhnipruð í skoti með
fótleggina í kringum sig eins og teppi. Ég
vona að hún sofi vel og lifi veturinn af.
Af Darwinisma og ævafornri dýrategund
NOKKUR ORÐ
Anna Margrét
Björnsson
Hafnarfjarðarleikhúsinu
Miðasala í síma 555 2222 og á midi.is
18.sept kl.21 (fös) Örfá sæti laus
19.sept kl.21 (lau) Örfá sæti laus
Síðustu sýningar!
9 grímutilnefningar
PBB, Fréttablaðið
Augnháralitur og augnbrúnalitur
Tana® Cosmetics
SÖLUSTAÐIR: APÓTEK OG SNYRTIVÖRUVERSLANIR
NÝTT!!
Plokkari með ljósi
SÚKKULAÐIVAX
HAFRAVAX
SÚKKULAÐISTRIMLAR
F. ANDLIT OG LÍKAMA
ATH. Súkkulaðivax hentar vel fyrir viðkvæma líkamshluta
ÚTSÖLUSTAÐIR: Apótek og snyrtivöruverslanir
Háreyðingavax sem hægt er að hita í örbylgjuofni
og einnig vaxstrimlar
Auglýsingasími
– Mest lesið