Fréttablaðið - 17.09.2009, Side 52

Fréttablaðið - 17.09.2009, Side 52
32 17. september 2009 FIMMTUDAGUR tonlist@frettabladid.is TÓNNINN GEFINN Trausti Júlíusson Nú er verið að smala tónlistarmönnum á tónlistarhátíðina Réttir sem fer fram dagana 23.–26. september á sjö tónleikastöðum í Reykja- vík. Þegar þetta er skrifað er dagskráin ekki alveg fullmótuð, en yfir hundrað nöfn eru staðfest. Flest þeirra eru íslensk, en samt eru nokkur erlend, þar á meðal norska tónlistarkonan Hanne Hukkel- berg, danska dúóið Bodebrixen, New York- búinn Jesse Hartman og svo hinn skoski Hudson Mohawke. Hudson Mohawke er listamannsnafn Glas- gow-búans Ross Birchard. Hann hefur verið að búa til tónlist og spila sem plötusnúður í nokkur ár og var á mála hjá skoska fyrir- tækinu Lucky Me, en eftir að hann gerði samning við Warp-útgáfuna í fyrra hefur stjarna hans risið hratt. Hann sendi frá sér EP-plötuna Polyfolk Dance í vor, en á henni er meðal annars smellurinn undarlegi Polk- adot Blues. Fyrsta stóra platan hans, But- ter, er svo væntanleg 12. október. Það fyrsta sem flaug í gegnum hausinn á mér þegar ég hlustaði á Butter var „Vá, brjálað sambland af Aphex Twin og Prince“. Það er óhætt að segja að Hudson Mohawke skorti ekki hugmyndir. Á Butter má heyra áhrif frá hip-hoppi, proggi, fönki, R&B og rave-tónlist, en útkoman er engu lík. Bæði brjáluð og grípandi. Sannkölluð 21. aldar tónlist. Sjálfur segist Ross einfaldlega vera að reyna að búa til hljóð sem fólk er ekki vant að heyra. Hudson Mohawke spilar á breakbeat.is kvöldinu á Jacobsen laugardaginn 26. september. Spennandi gestur 21. ALDAR TÓNLIST Skotinn Hudson Mohawke er einn af gestum tónlistarhátíðarinnar Rétta. Níunda hljóðversplata Seattle-rokkaranna í Pearl Jam, Backspacer, kemur út eftir helgi. Hún hefur feng- ið fína dóma og þykir þeirra besta í þó nokkurn tíma. Upptökur á Backspacer hófust snemma á síðasta ári. Pearl Jam fékk til liðs við sig upptökustjór- ann Brendan O´Brien sem hafði áður tekið upp fjórar plötur sveit- arinnar: Vs., Vitalogy, No Code og þá síðustu, Yield, árið 1998. Hann tengist einnig íslenskri tónlist- arsenu því hann var einn af upp- tökustjórum Jinx með Quarashi. Í nýlegu viðtali segja þeir félag- ar að upptökurnar hafi gengið mjög vel og eiginlega betur en nokkru sinni fyrr. Skemmdi það ekki fyrir að lögin voru nánast fullmótuð áður en þeir stigu fæti í hljóðverið og því gátu þeir ein- beitt sér betur að spilamennsk- unni. „Ed er eiginlega listrænn stjórnandi plötunnar,“ segir gít- arleikarinn Stone Gossard um söngspíruna Eddie Vedder. „Hver og einn leggur fram sína hluti en á endanum bindur hann þá saman í eina heild.“ Vedder hefur verið forsprakki Pearl Jam í átján ár og hefur ýmsa fjöruna sopið. „Þegar maður eldist fer maður að einbeita sér að því að viðhalda orkunni sem býr innra með manni. Fyrir tíu árum tók ég henni ekki bara sem sjálfsögðum hlut heldur þjösnaðist á henni. Ég hef ekki lengur áhuga á því. Ég er búinn með þann pakka.“ Eins og söngvarinn gefur til kynna hafa þeir félagar þroskast mikið síðan þeir slógu í gegn með meistarastykkinu Ten árið 1991 og urðu fljótt ein fremsta rokksveit heims. Viðbrigðin voru mikil, sér- staklega fyrir Vedder sem þurfti að glíma við mestu fjölmiðlaat- hyglina, og síðan þá hefur Pearl Jam verið þekkt fyrir hlédrægni sína. Reyndar hefur aðeins dreg- ið úr henni á undanförnum árum með fleiri tónlistarmyndböndum og smáskífum og svo virðist sem þeir félagar séu loksins farnir að sætta sig við sviðsljósið. Fyrsta smáskífulag Back- spacer, hið poppaða The Fixer, er vafalítið það mest grípandi á plötunni enda hefur það komist ofarlega á vinsældalista. Tíma- ritin Q, Mojo, Rolling Stone, Spin og Uncut eru líka yfir sig hrif- in og splæsa fjórum stjörnum á plötuna af fimm mögulegum, sem sýnir svo ekki verður um villst að þeir Vedder, Gossard, Ament, McCready og Cameron hafa engu gleymt. Til að fylgja plötunni eftir ætlar Pearl Jam í tónleikaferð um Bandaríkin sem hefst 21. sept- ember og í nóvember spilar sveit- in í Ástralíu og á Nýja-Sjálandi. Evrópubúar fá síðan að öllum lík- indum að berja goðin sín augum á næsta ári. freyr@frettabladid.is Pearl Jam hefur engu gleymt EDDIE VEDDER Rokkararnir í Pearl Jam eru mættir með sína níundu hljóðversplötu, sem nefnist Backspacer. NORDICPHOTOS/GETTY Önnur plata DJ Music- ian er komin út. Hún heitir Sehr Gut Cock- tail, en sú fyrri heitir My Friend Is a Record Player og kom út fyrir fimm árum. Þarna á milli kom þriggja laga platan Klinski. „Það gekk dálítið erfiðlega að finna út í hvaða átt ég vildi fara,“ segir Pétur Eyvindsson, sem er DJ Musician. „Þegar ég fann það út, fyrir svona þremur mánuðum, fór allt í gang. Það varð eins konar keðjuverkun þar sem eitt lag fæddi af sér annað lag.“ Eins og lagaheiti á borð við „Vodka Meloni“ og „I Love Happy Hour“ gefa til kynna er stutt í part- ístemmarann á plöt- unni. „Það er mikið partí í plötunni, en ekk- ert endilega eitthvað tengt áfengi samt,“ segir Pétur. „Titillinn „Sehr Gut Cocktail“ vísar ekki endilega til áfengis – „kokkteill“ getur bara verið annar titill yfir lífið sjálft. Með plötunni ákvað ég bara að fara alla leið í hressleikanum og stuðinu.“ Plata DJ Musician er fáanleg í 12 tónum og hjá Gogoyoko og Pétur sér fram á að spila nokkuð stíft á næstunni. - drg Farið alla leið í stuðinu PARTÍSTEMMARI Sehr Gut Cocktail með DJ Musician. Hljómsveitin Muse hefur áhuga á að semja aðallag næstu James Bond-myndar. „Við myndum örugglega segja já við því, eða að minnsta kosti reyna,“ sagði trommarinn Dom Howard. Á nýj- ustu plötu Muse, The Resistance, er blandað saman rokki, strengja- tónlist og óperu. „Mikið af okkar tónlist passar vel við James Bond- stílinn og ég held að þetta gæti gengið upp,“ sagði Howard. Jack White og Alica Keys sungu síðasta Bond-lag, Another Way to Die. Tut- tugu ár eru aftur á móti liðin síðan bresk hljómsveit átti Bond-lagið. Þá söng Duran Duran lagið A View to a Kill í samnefndri mynd. Muse vill prófa Bond > Í SPILARANUM Magic Arm - Make Lists Do Something Hjálmar - IV Muse - The Resistance Þóra Björk - I Am a Tree Now GusGus - 24/7 MAGIC ARM GUSGUS Lagið Svefn-G-Englar með Sigur Rós er 36. besta lag tíunda áratugarins samkvæmt lista yfir 500 bestu lögin á bandarísku tónlistar- síðunni Pitchforkmedia.com. Lagið er tekið af annarri plötu sveitarinnar, Ágætis byrjun. „Þrátt fyrir gifturíkan áratug sem fylgdi í kjöl- farið hjá Sigur Rós finnurðu ekki betri kynn- ingu á hljómsveitinni en Svefn-G-Englar. Bjag- aður gítarinn og rödd Jónsa búa til hljóðbylgjur þar sem hljómborðsspilið og trommuleikurinn svífa áfram,“ segir í umsögninni. „Lagið spurði margra spurninga, eins og : Hvaða tungumál er þetta? Hvernig eru þessi hljóð búin til? Verður öll tónlistin í framtíðinni svona falleg?“ Besta lag áratugarins var valið B.O.B. með Outkast og í næstu sætum á eftir voru All My Friends með LCD Soundsystem, Paper Planes með M.I.A., Crazy in Love með Beyonce og One More Time með Daft Punk. Á meðal laga sem eru lentu fyrir neðan Sigur Rós voru Take Me Out með Franz Ferdin- and, Can´t Get You Out Of My Head með Kylie Minogue og Time To Pretend með MGMT. Sigur Rós í 36. sæti SIGUR RÓS Hljómsveitin á 36. besta lag tíunda áratugarins samkvæmt síðunni Pitchforkmedia. com. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.