Fréttablaðið - 17.09.2009, Síða 58
38 17. september 2009 FIMMTUDAGUR
Kaplakrikavöllur, áhorf.: 951
Breiðablik KR
TÖLFRÆÐIN
Skot (á mark) 9–18 (6–9)
Varin skot Ingvar 5 – Hansen 5
Horn 4–6
Aukaspyrnur fengnar 14–10
Rangstöður 1–2
KR 4–3–3
Andre Hansen 7
Skúli Jón Friðgeirss. 5
Grétar Sigurðsson 6
Mark Rutgers 5
Jordao Diogo 6
Bjarni Guðjónsson 6
*Baldur Sigurðsson 7
Atli Jóhannsson -
(22. Guðm. Ben. 6)
Óskar Örn Hauksson 6
(86. Gunnar Kristj. -)
Björgólfur Takefusa 5
Gunnar Örn Jónsson 6
(84. Guðm. R. Gunn. -)
*Maður leiksins
BREIÐAB. 4–5–1
Ingvar Þór Kale 6
Árni K. Gunnarsson 5
Guðmann Þórisson 5
Kári Ársælsson 5
Kristinn Jónsson 6
Olgeir Sigurgeirsson 4
(63., Haukur Baldv. 4)
Finnur O. Margeirss. 6
Guðm. Kristjánsson 5
Andri Rafn Yeoman 7
Kristinn Steindórss. 6
(78. Evan Schwartz -)
Elfar Freyr Helgason 6
(88. Aron Smáras. -)
0-1 Gunnar Örn Jónsson (40.)
0-2 Grétar Sigfinnur Sigurðsson (66.)
0-2
Einar Örn Daníelsson (6)
sport@frettabladid.is
Fræðslukvöld ÍSÍ haust 2009!
Íþróttamiðstöðinni í Laugardal og á Akureyri kl.
17.00 - 21.00 á fimmtudögum. Öllum opin og einnig
liður í alm. hluta þjálfaramenntunar ÍSÍ á 2. stigi. Nánari
uppl. í síma 460-1467 eða á vidar@isi.is
Sjá einnig á www.isi.is
Landsliðsþjálfarinn Sigurður Ragnar Eyjólfsson er sannfærður
um að kvennalandslið Íslands mæti vel stemmt til leiks gegn
stöllum sínum frá Eistlandi þegar þjóðirnar mætast í undan-
keppni HM 2011 á Laugardalsvelli í kvöld kl. 20. Sigurður Ragnar
viðurkennir að hann viti ekki mikið um mótherjana en að
íslenska liðið sé mun sterkara á pappírunum.
„Þessi leikur leggst mjög vel í mig. Það er alltaf
gaman að spila á Laugardalsvelli og stelpurnar
mæta tilbúnar til leiks. Við vitum hins vegar
nánast ekki neitt um mótherja okkar og
höfum hvorki mætt þeim áður né séð
myndband frá leikjum þeirra þannig
að við rennum dálítið blint í sjó-
inn með þetta. Af fyrri úrslitum að
dæma eigum við hins vegar að vera með
sterkara lið,“ segir Sigurður Ragnar, sem segir
markmiðin skýr fyrir undankeppni HM.
„Við höfum sett okkur það markmið að komast
á lokakeppni HM og það er enn erfiðara en að
komast á lokakeppni EM. Við þurfum að vinna riðilinn okkar og
vinna svo sigurlið úr öðrum riðli á leið okkar þangað því það eru
ekki nema fjögur eða fimm lið frá Evrópu sem komast á loka-
keppnina, Þetta verður því mjög erfitt en það hefur verið styrkur
okkar undanfarið að spila vel á heimavelli og vonandi heldur það
áfram.“
Sigurður Ragnar er ekki smeykur þó svo að hann hafi þurft
að gera breytingar á landsliðshópi sínum eftir að Guðrún
Sóley Gunnarsdóttir, Dóra Stefánsdóttir og Katrín Ómarsdóttir
forfölluðust.
„Það er vissulega slæmt að vera án þriggja góðra leik-
manna eins og staðreyndin er fyrir þetta verkefni. En sem
betur fer eigum við góða leikmenn í staðinn og þeir fá tæki-
færi núna. Maður hefur alltaf komið í manns stað hjá okkur
og það verður þannig líka núna. Breiddin er að aukast hjá
okkur og það er án vafa mjög jákvætt að geta bara kallað inn
næsta leikmann og vita til þess að sá leikmaður er klár í slaginn. Ég
veit því að við munum byrja með ellefu góða leikmenn inni á gegn
Eistlandi,“ segir Sigurður Ragnar.
SIGURÐUR RAGNAR EYJÓLFSSON: ER FULLUR TILHLÖKKUNAR FYRIR LEIKINN GEGN EISTLANDI
Maður hefur alltaf komið í manns stað hjá okkur
FÓTBOLTI Keflavík vann í gær 1-0
sigur á Grindavík en fyrrnefnda
liðið hafði fyrir leikinn ekki fagn-
að sigri í deildinni síðan í júlí.
Það var Magnús Sverrir Þor-
steinsson sem skoraði eina mark
leiksins á 61. mínútu.
Leikurinn fór afar rólega af
stað en helst bar að Keflvíking-
urinn Haukur Ingi Guðnason átti
skot í slá í fyrri hálfleik. Grinda-
vík byrjaði betur í seinni hálf-
leik en heimamenn komust engu
síður yfir þegar Magnús Sverrir
skoraði eftir laglega sókn Kefl-
víkinga.
„Við fengum nokkur dauðafæri
í seinni hálfleiknum en
það er svekkjandi
að hafa ekki náð
að brjóta ísinn. Þá
hefðu fleiri mörk
fylgt í kjölfarið,“
sagði Orri Freyr
Hjaltalín,
fyrirliði
Grindvík-
inga.
- esá, egm
Keflavík vann Grindavík:
Langþráður sig-
ur Keflvíkinga
MAGNÚS
SVERRIR
ÞORSTEINSSON
Meistaradeild Evrópu
E-RIÐILL
Liverpool - Debrecen 1-0
1-0 Dirk Kuyt (45.).
Lyon - Fiorentina 1-0
F-RIÐILL
Inter - Barcelona 0-0
Dinamo Kiev - Rubin Kazan 3-1
G-RIÐILL
Stuttgart - Rangers 1-1
Sevilla - Unirea Urziceni 2-0
H-RIÐILL
Standard - Arsenal 2-3
1-0 Eliaquim Mangala (2.), 2-0 Milan Jovanovic,
víti (5.), 2-1 Nicklas Bendtner (45.), 2-2 Thomas
Vermaelen (78.), 2-3 Eduardo (81.).
Olympiakos - AZ Alkmaar 1-0
Pepsi-deild karla
FH 20 15 2 3 54-20 47
KR 20 13 3 4 46-26 42
Fylkir 20 12 3 5 37-23 39
Fram 20 9 4 7 37-30 31
Keflavík 20 7 8 5 30-34 29
Breiðablik 20 8 4 8 33-33 28
Stjarnan 20 7 4 9 41-36 25
Valur 20 7 4 9 24-36 25
Grindavík 20 6 4 10 33-38 22
ÍBV 20 6 4 10 21-36 22
Fjölnir 20 3 5 12 26-44 14
Þróttur 20 3 3 14 20-46 12
ÚRSLIT
FÓTBOLTI FH-ingar fögnuðu ekki
Íslandsmeistaratitlinum á æfingu
í gær því KR á enn þá möguleika
á því að ná þeim eftir 2-0 sigur
á Blikum í Kópavoginum. KR er
þar með fimm stigum á eftir FH
þegar sex stig eru eftir í pottinum.
KR-ingar höfðu heppnina með sér
framan af leik á móti Blikum en
þegar á leið tók Vesturbæjarliðið
völdin og landaði góðum sigri.
Eftir fjörugan fyrri hálfleik þar
sem bæði lið fengu góð færi kom
Gunnar Örn Jónsson KR yfir í
leiknum með þrumuskoti rétt fyrir
hálfleik. „Ég negli bara þegar ég
hef tíma og sé markið. Það var
blautt úti þannig að það var um
að gera að skjóta á markið,“ sagði
Gunnar Örn sem var ekki mikið að
hlusta á það þegar það var púað og
kallað á hann úr stúkunni.
Grétar Sigfinnur Sigurðarson,
fyrirliði KR, innsiglaði síðan sig-
urinn með góðu skallamarki en
eftir markið hans var allt bit farið
úr Blikum. „Þetta var kærkominn
sigur eftir bikarleikinn á laug-
ardaginn. þetta var líka flottur
sigur hjá okkur, við sýndum kar-
akter og börðumst allan tímann,“
sagði Grétar eftir leikinn. KR á
enn möguleika á Íslandsmeist-
aratitlinum en til þess þarf liðið
að vinna upp fimm stiga forskot
FH í síðustu tveimur umferðun-
um. „Ég veit ekki hvort við eigum
einhverja von á titlinum því ég
hef ekki séð Valsara svona slaka
í langan tíma. Mér finnst þeir
vera búnir að gefast upp og ég hef
enga trú á þeim á móti FH,“ sagði
Grétar. „Við ætlum að klára þessa
tvo leiki sem eftir eru og tryggja
okkur í það minnsta annað sætið.
Auðvitað vonar maður að Valur
geri eitthvað en miðað við hvern-
ig þeir eru búnir að vera í sumar
þá eru þeir búnir að gefast upp,“
sagði Grétar.
„Ég held að úrslitin hafi alveg
verið sanngjörn,“ sagði Ólafur
Kristjánsson, þjálfari Blika, eftir
leikinn og hann sagði liðið sitt ekk-
ert vera með hugann við bikarúr-
slitaleikinn. „Við erum auðvitað
ekki að bíða eftir bikarúrslita-
leiknum, við erum ekki búnir að
ná markmiðunum okkar í deildinni
og meðan svo er þá reynum við að
keppa að þeim,“ sagði Ólafur. - óój
Grétar Sigfinnur Sigurðsson, fyrirliði KR, var ánægður með sigur 2-0 á Blikum í Kópavogi í gær:
Ég hef enga trú á Valsmönnum á móti FH
MARKAHETJAN Gunnar Örn Jónsson fer
hér framhjá Kristni Jónssyni, leikmanni
Blika. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
FÓTBOLTI Stórliðin Inter og Bar-
celona skildu í gær jöfn í marka-
lausum leik í Meistaradeild Evr-
ópu í gær þegar fyrstu umferð
riðlakeppninnar lauk. Ensku liðin
Liverpool og Arsenal unnu bæði
nauma sigra í sínum leikjum.
Það var beðið eftir leik Inter
og Barca með mikilli eftirvænt-
ingu, sérstaklega þar sem félögin
skiptu á sóknarmönnunum Zlatan
Ibrahimovic og Samuel Eto‘o.
Sá fyrrnefndi leikur nú með
Barca og fannst sínir menn
betri í leiknum.
„Barcelona spilaði
betur í þessum leik,“
sagði Zlatan sem fékk
þrátt fyrir allt ekkert
svo slæmar viðtökur hjá
stuðningsmönnum Inter, eins
og margir bjuggust við.
„Ég átti ekki von á neinu
sérstöku. Ég hafði heyrt
orðróm um að það yrði
púað á mig en það reynd-
ist svo ekkert alvarlegt. Ég
var mjög einbeittur í leikn-
um sem gekk vel,“ bætti
hann við.
„Það er mín skoðun að
við spiluðum betur en
það er ágætt að hafa
náð stigi hér. Inter
er með nokkra
nýja leikmenn
í sínu liði
og virðist
liðið þétt-
ara en á síð-
asta tíma-
bili.“
Zlatan fékk nokkur færi í leikn-
um sem og Lionel Messi en allt
kom fyrir ekki. Greinilegt var að
Jose Mourinho, stjóri Inter, lagði
höfuðáherslu á að verjast í leikn-
um en heimamenn reyndu
að sækja meira í síðari
hálfleik. Bæði Wesley
Sneijder og Dejan Stank-
ovic áttu fínar marktil-
raunir.
Dirk Kuyt skoraði
eina mark Liverpool
gegn ungverska liðinu
Debrecen á heima-
velli í gær. Mark-
ið kom í lok fyrri
hálfleiks. Jamie
Carragher, leikmað-
ur Liverpool, sagði
sína menn hafa
verið langt frá
sínu besta í
leiknum.
„Við spiluðum
ekki vel og vitum við það
vel. Við unnum bara 1-0 en
við vildum fyrst og fremst
landa sigrinum eins og við
viljum komast upp úr þess-
um riðli eins snemma og
mögulegt er,“ sagði Carrag-
her.
Rafa Benitez, stjóri Liver-
pool, var nokkuð sáttur við sína
menn. „Við fengum þrjú eða
fjögur góð færi og þetta hefði
gengið betur hefðum við nýtt
fleiri færi. En aðalatriðið var að
fá þrjú stig.“
Arsenal lenti í miklum hremm-
ingum strax í upphafi síns leiks
gegn Standard Liege í Belgíu.
Heimamenn komust í 2-0 forystu
strax eftir fimm mínútur.
Nicklas Bendtner minnkaði mun-
inn í lok fyrri hálfleiks og þeir
Thomas Vermaelen og Eduardo
skoruðu mörk Arsenal með stuttu
millibili undir lok síðari hálfleiks.
Mark Vermaelen þótti afar
umdeilt og þá var banni Eduardo
aflétt fyrir skömmu. Hann hafði
áður verið dæmdur í tveggja leikja
bann í Meistaradeildinni vegna
leikaraskapar.
„Við vorum hægir í upphafi
leiksins og þeir nýttu sér það,“
sagði Arsene Wenger, stjóri Arsen-
al. „Svona lagað getur hent öll lið í
heiminum en menn þurfa að leggja
mikið á sig til að vinna svona öflugt
lið og það er það sem við gerðum.
Við lögðum allt í sölurnar og var
mikilvægt að ná að minnka muninn
í fyrri hálfleik. En þetta var afar
erfiður leikur.“
eirikur@frettabladid.is
Mourinho hafði stig af Barcelona
Ítalíumeistararnir í Inter héldu jöfnu gegn Evrópu- og Spánarmeisturum Barcelona á heimavelli í Meistara-
deild Evrópu í kvöld. Greinilegt var að Jose Mourinho, stjóri Inter, lagði höfuðáherslu á varnarleikinn.
SKORAÐI Í HEIMALANDINU Belginn
Thomas Vermaelen skoraði jöfnunar-
mark Arsenal gegn Standard Liege.
NORDIC PHOTOS/AFP
LEGGUR LÍNURNAR Jose Mourinho ræðir hér við sóknarmanninn Samuel Eto‘o í leik
Inter og Barcelona í gær. NORDIC PHOTOS/AFP
> Lítið gengur hjá Reading
Ekkert virðist ganga hjá Reading í ensku B-deildinni í
knattspyrnu. Í gær tapaði liðið fyrir Cardiff á heimavelli,
1-0, og hefur aðeins unnið einn af fyrstu sjö leikjum
sínum í deildinni. Það eru góðar fréttir fyrir
Íslendinga að hinn ungi Gylfi Sigurðsson
hefur átt fast sæti í byrjunarliði Reading
í undanförnum fjórum leikjum og
lék hann allan leikinn í gær. Ívar Ingi-
marsson var á bekknum hjá Reading
en hann er nú að jafna sig eftir erfið
meiðsli. Brynjar Björn Gunnarsson var ekki
í leikmannahópi Reading en hann á við
meiðsli að stríða.