Fréttablaðið - 17.09.2009, Side 64

Fréttablaðið - 17.09.2009, Side 64
SÍMANÚMER FRÉTTABLAÐSINS: 512 5000, fax: 550 5099 Ritstjórn: 512 5313, fax: 512 5301, ritstjorn@frettabladid.is PRENTUN: Ísafoldarprentsmiðja Auglýsingadeild: auglysingar@frettabladid.is DREIFING: dreifing@posthusid.is Veffang: visir.is EF BLAÐIÐ BERST EKKI: 512 5060 VIÐ SEGJUM FRÉTTIR SMÁAUGLÝSINGASÍMINN ER 512 5000 GÓÐAN DAG! Sólarupprás Hádegi Sólarlag Reykjavík Akureyri Heimild: Almanak Háskólans Í dag er fimmtudagurinn 17. sept- ember 2009, 260. dagur ársins. 6.57 13.22 19.46 6.39 13.07 19.32 Margir taka mikið mark á innihaldi Biblíunnar, þótt það sé svo þversagnakennt að það megi leggja til grundvall- ar nánast hvaða skoðun sem er. Þannig má bæði nota bókina til að fara með eldi gegn óvinum sínum og rétta hinn vangann – allt eftir því hvernig maður sjálf- ur er þenkj andi. Höfundurinn, Guð, á auðvitað ágætis spretti, til dæmis finnst mér „Sannleikur- inn mun gera yður frjálsa“ flott- ur frasi. Höfundurinn var reynd- ar mjög sjálfmiðaður þegar hann setti þetta fram, en ég vil skilja frasann þannig að „sannleikur- inn sé sagna bestur“ – að maður verði frjáls í höfðinu og andanum ef maður viðurkenni bara strax hvernig hlutunum sé háttað. Segi sannleikann. SANNLEIKURINN er þó fjandi flókið fyrirbæri, eins og þessi þrasgjarna örþjóð ætti nú að þekkja vel. Ég held líka hrein- lega að sumir séu svo blindir á sannleikann að þeir sjái hann ekki, hversu augljós sem hann er. Margir eru svo forhertir að þeir eru sannfærðir um að sannleikur- inn sé einhver allt annar en hann er. Þeir hafa talið sér trú um sína eigin útgáfu af honum. ÞEGAR ég var smábarn í míní- kreppunni um 1969 fór Ási bróðir til Ástralíu. Eftir ævintýralíf kom hann tveimur árum síðar til baka og hafði með sér hákarla tennur og ópalsteina. Ég stal steinun- um, gróf þá úti í garði og þóttist svo finna þá daginn eftir. Sjáiði, ég fann ópal úti í garði! sagði ég hróðugur, en allir föttuðu nátt- úrlega plottið. Ási varð reiður og skammaði mig, en svo forhertur var ég, svo sannfærður um þann sannleika sem ég hafði talið mér trú um, að ég var öll æskuárin hálf fúll út í Ása fyrir að þjóf- kenna mig. Víst fann ég ópal- steinana úti í beði! Það var ekki fyrr en löngu síðar að rökhyggj- an fór að færa mér sanninn um að ópalfundurinn í garðinum var auðvitað bara uppspuni og smá- barnarugl. KANNSKI komast þeir sem nú afneita sannleikanum að hinum rétta sannleika á endan- um. Kannski ekki. Við munum ábyggilega þurfa að horfa upp á fjölmarga í viðbót gera sig að fífli með því að ljúga framan í alþjóð. Hressandi væri þó að heyra ein- hvern játa upp á sig sannleikann strax. Það gerir mann frjálsan. Varla lýgur Guð. Fjandans sannleikurinn BAKÞANKAR Dr. Gunna Nóatúni 4 · Sími 520 3000 www.sminor.is Bæklingur fylgir með inni í blaðinu í dag

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.