Fréttablaðið - 17.09.2009, Qupperneq 64
SÍMANÚMER FRÉTTABLAÐSINS: 512 5000, fax: 550 5099 Ritstjórn: 512 5313, fax: 512 5301, ritstjorn@frettabladid.is PRENTUN: Ísafoldarprentsmiðja
Auglýsingadeild: auglysingar@frettabladid.is DREIFING: dreifing@posthusid.is Veffang: visir.is EF BLAÐIÐ BERST EKKI: 512 5060
VIÐ SEGJUM FRÉTTIR SMÁAUGLÝSINGASÍMINN ER 512 5000
GÓÐAN DAG!
Sólarupprás Hádegi Sólarlag
Reykjavík
Akureyri
Heimild: Almanak Háskólans
Í dag er fimmtudagurinn 17. sept-
ember 2009, 260. dagur ársins.
6.57 13.22 19.46
6.39 13.07 19.32
Margir taka mikið mark á innihaldi Biblíunnar, þótt
það sé svo þversagnakennt að
það megi leggja til grundvall-
ar nánast hvaða skoðun sem er.
Þannig má bæði nota bókina til
að fara með eldi gegn óvinum
sínum og rétta hinn vangann –
allt eftir því hvernig maður sjálf-
ur er þenkj andi. Höfundurinn,
Guð, á auðvitað ágætis spretti, til
dæmis finnst mér „Sannleikur-
inn mun gera yður frjálsa“ flott-
ur frasi. Höfundurinn var reynd-
ar mjög sjálfmiðaður þegar hann
setti þetta fram, en ég vil skilja
frasann þannig að „sannleikur-
inn sé sagna bestur“ – að maður
verði frjáls í höfðinu og andanum
ef maður viðurkenni bara strax
hvernig hlutunum sé háttað. Segi
sannleikann.
SANNLEIKURINN er þó fjandi
flókið fyrirbæri, eins og þessi
þrasgjarna örþjóð ætti nú að
þekkja vel. Ég held líka hrein-
lega að sumir séu svo blindir á
sannleikann að þeir sjái hann
ekki, hversu augljós sem hann er.
Margir eru svo forhertir að þeir
eru sannfærðir um að sannleikur-
inn sé einhver allt annar en hann
er. Þeir hafa talið sér trú um sína
eigin útgáfu af honum.
ÞEGAR ég var smábarn í míní-
kreppunni um 1969 fór Ási bróðir
til Ástralíu. Eftir ævintýralíf kom
hann tveimur árum síðar til baka
og hafði með sér hákarla tennur
og ópalsteina. Ég stal steinun-
um, gróf þá úti í garði og þóttist
svo finna þá daginn eftir. Sjáiði,
ég fann ópal úti í garði! sagði ég
hróðugur, en allir föttuðu nátt-
úrlega plottið. Ási varð reiður og
skammaði mig, en svo forhertur
var ég, svo sannfærður um þann
sannleika sem ég hafði talið mér
trú um, að ég var öll æskuárin
hálf fúll út í Ása fyrir að þjóf-
kenna mig. Víst fann ég ópal-
steinana úti í beði! Það var ekki
fyrr en löngu síðar að rökhyggj-
an fór að færa mér sanninn um
að ópalfundurinn í garðinum var
auðvitað bara uppspuni og smá-
barnarugl.
KANNSKI komast þeir sem
nú afneita sannleikanum að
hinum rétta sannleika á endan-
um. Kannski ekki. Við munum
ábyggilega þurfa að horfa upp á
fjölmarga í viðbót gera sig að fífli
með því að ljúga framan í alþjóð.
Hressandi væri þó að heyra ein-
hvern játa upp á sig sannleikann
strax. Það gerir mann frjálsan.
Varla lýgur Guð.
Fjandans
sannleikurinn
BAKÞANKAR
Dr. Gunna
Nóatúni 4 · Sími 520 3000
www.sminor.is
Bæklingur fylgir með
inni í blaðinu í dag