Spegillinn - 01.12.1947, Blaðsíða 14
194
SPEGILLINN
LANDBÚNAÐARJEPPAR
hafa fyrir nokkru fengið auka-benzínskammt, samkvæmt dagskipan
skömmtunarstjóra. Hefur þetta vakið mikla ánæg'ju hjá mannfólkinu,
en kýrnar láta sér hinsvegar fátt um finnast og kvíða fyrir næsta sumri
í þeim sveitum, þar sem það var komið í móð að menn ráku þær í hag-
ann með tilstyrk jeppanna.
HÁTTVIRTIR
Sameinuðuþingmenn vorir komu úr vesturför sinni um miðjan nóv-
embei’, og kom þá í ljós, að þeir höfðu allir haft konur sínar með sér,
hvað sem öllum gjaldeyrisvandræðum líður. Þetta þótti mörgum
óþarfi, en aðgætandi er nú samt, að köld eru jafnan kvenna ráð, en
þingmennirnir þurftu fyrst og fremst að vera kaldir þarna, og að eigin
sögn hefur þetta tekizt með þeim ágætum, að þeir hafa jafnan farið
eftir sannfæringu sinni og hvergi látið draga sig í dilk.
STÁLÞRÁÐURINN,
sem undanfarið hefur verið rækilega reyndur á ýmsu og m. a. náð
snilldarlega upp rollujarmi, Hjöi-vari og öðrum náttúruhijóðum, hefur
ekki reynzt að sama skapi vel, er hann kom i þinghelgina, enda er þar
við erfiðari hljóð að etja. Ku það jafnvel hafa komið fyrir, að ræður
kommanna hafa komið aftur úr þræðinum sem lofgerð um Bjarna
Ben. Nú hefur verið reynt að taka ræðurnar upp á svokallaðan scigte-
vals, og komu þá óbrjálaðar, eða réttara sagt jafnbrjálaðar og þær
komu úr ræðumönnum.
FORSETINN
í Mexico var fyrir nokkru sektaður um fjórar krónur, fyrir að hafa
látið undir höfuð leggjast að færa nýfæddan son sinn inn á manntalið.
Af þessu má það læra, að engin skömmtun sé í Mexico, annars hefði
forsetinn liklega verið fljótur að fá seðla út á þessa fjölskylduviðbót.
Þess í stað borgaði hann sektina brosandi, með fjórum krónuseðlum.
FLUGFÉLAG ÍSLANDS
hefur tekið upp þá nýjung að skíra allar vélar sínar íslenzkum
hestanöfnum, svo sem til heiðurs við þarfasta þjóninn og forföður
traktorsins. Skulu öll nöfnin enda á -faxi. Ekki var þó í þetta ráðizt
fyrr en sprenglærður maður hafði samið lista með eitthvað á annað
hundrað slíkum nöfnum, til þess að tryggja félaginu, að það yrði ekki
í nafnahraki fyrst um sinn. Heyrt höfum vér, að fyrsta vélin verði
skírð Lúrífaxi.
DALTON,
fjármálaráðherra Breta, lenti í þeirri ógæfu, í síðasta mánuði, að
kjafta í blaðasnáp nokkurn efni fjáraukalagaræðunnar, sem hann ætl-
aði að fara að halda, og snápurinn var þá eiginlega ekki lengi að
drauja upplýsingunum á prent. Bað ráðherrann þegar afsökunar á
þessari hrösun sinni og sagði af sér samstundis. Ekki er ofsögum sagt
af íhaldssemi Breta. Fyrir hálfum mannsaldri þótti það engum tíðind-
um sæta hér, ef Jónas gamli skrifaði óvinum sinum meinleg bréf í
embættisnafni, sem viðtakandi var búinn að lesa í Tímanum daginn
áður. Og ekki sagði Jónas af sér fyrr en hann þurfti.
ELÍSABET
prinsessa hlaut sokkabandsorðuna að gjöf frá föður sínum nokkru
áður en hún inngekk í hið margumtalaða heilaga hjónaband. Sá er
galli á þessari orðu, að hún er ekki nema á aðra löppina, og þetta
hefur kóngur líka fundið, því að daginn fyrir brúðkaupið gaf hann
Filpusi sömu orðu. Mun vera meiningin, að þau skiptist á að nota
báðar orðurnar, þegar þau fara í stáss, og þarf þá ekki nema annað
að vera með sokkana niðrum sig.
ENGIN JÓLATRÉ
verða í ár hér á landi, og þykir mörgum súrt í broti, vegna barn-
anna. Er fjárhagsráð nú sem óðast að hugsa út eitthvað, sem geti
komið í stað þessa húsgagns. Oss finnst, hvað höfuðstaðinn snertir, að
minnsta kosti, þá gætum vér látið oss nægja tréð, sem borgin fékk gef-
ins í fyrra og kostaði ekki nema rúmlega 20 þúsund krónur, um það
leyti, sem það hafnaði á sorphaugum vorum.
BÆJARSTJÓRN
hefur samþykkt allvíðtækar breytingar á rekstri strætóanna, og hef-
ur vakið óskipta ánægju, er það fréttist, jafnvel löngu áður en nokkur
vissi, hverjar breytingarnar voru, þar sem öllum var það ljóst, að ekki
var hægt að breyta rekstrinum nema til batnaðar.
REYKVÍKINGAFÉLAGIÐ
hefur í hyggju að koma af stað allsherjar-örnefnasöfnun innan
endimarka höfuðstaðarins. Morgunblaðið getur lofsamlega um þessa
framtakssemi og lætur þess um leið getið, að félagið eigi eftir að
koma mörgu góðu til leiðar.