Spegillinn - 01.12.1947, Blaðsíða 33
SPEGILLINN
213
ar ekki færri en 7 ókostir við það, miðað við þjóðarhag (ef
oss varðar þá nokkuð um hann), og er hver ókostur rétt á
litið heilt þjóðarböl, ef frumvarpið næði fram að ganga, sem
það gerði sjálfsagt, úr því að kommúnistar eru ekki riðnir
við það. Nánar tiltekið myndu allar vörur hækka, kaup lækka,
skuldir vaxa, húsaleiga hækka (sem menn héldu þó að væri
í hærra lagi áður), gjaldeyrisþjófnaðurinn verðlaunaður og
yfirleitt ekki lífvænlegt fyrir nokkurn mann í landinu nema
svartamarkaðs-okrara og aðrar slíkar þjóðarafætur. Þetta
margfalda þjóðarböl, sem kvað vera yfirvofandi, verður
klárlega stjórninni að kenna og samboðið henni, annars væri
hún engin ,,hrunstjórn“. Þó að vér álítum hinsvegar, að hinni
margþjökuðu og hundeltu íslenzku þjóð, sem lifað hefur við
kúgun og harðæri um aldir og lifir enn (Keflavíkurflugvöll-
urinn!), að auki í einu allsherjarhruni, hana munar lítið um
eitt smá-þjóðarböl, eins og áður greinir, til viðbótar, —
þegar vitað er á hinn bóginn, að aldrei kæmi fram gótt dýr-
tíðarfrumvarp, sem samþykkt yrði. Góðu frumvörpin koma
einungis frá stjórnarandstöðunni og eru náttúrlega felld sem
slík. Þau geta aldrei orðið annað í lýðfrjálsu landi en mála-
mynda- og málþófsfrumvörp, sem stela dýrmætum tíma
þingsins.
Áramótauppgjör vor með tilliti til flokksblaðanna í landi
voru, sem vér höfum nákvæmlega stúderað og samanborið
á þessu útlíðandi ári, eru þá þau, að það, sem til bóta horfir,
er aðeins eigin-flokk að þakka. (og svo flokksblaðinu, sem
fyrst benti á úrbæturnar, og þar með talinn Víkverji innan
vísinda og lista), en aftur á móti eru allar skyssurnar hinum
að lcenna. Yfirleitt vill aðeins einn flokkur heill þjóðarinnar,
en hinir tortímingu hennar. Um það eru öll blöðin sammála.
Og þar eð öll blöðin sverja við sannleikann, viljum vér láta
spurninguna, hver segir mest „satt“, verða jólaþraut les-
enda vorra.
Gleðileg jól!
Álfur úr Hól.
orn
En sumir voru
ennþá argir
og töldu, að þeir væru
tveim, of margir.
SVB.
ÆTTARTÖLUM
Skagfirðinga var stolið í sl. mánuði úr bíl é götum höfuðborgnr-
innar, og horfði til vandræða um hríð. Fundust þó aftur í húsasur.di
einu, þar sem þjófurinn hafði fleygt þeim. Hefur sennilega fundið sívia
eigin ættfærslu og ekki litizt á blikuna.
HÁTTVIRTUR
þingmaður Barðstrendinga vill nú láta oss taka 4 milljóna krcna
lán til að kaupa togara með tveim þilförum, í tilraunaskyni. Sann>4st
hér sem fyrr, að ekki þarf að spyrja Gísla, hvort hann vilji nokkuð
upp á dekk.
um að heilsa á götu
Ég heilsa á götu
eða heilsa ekki
upp á mann
allt eftir því,
hvort ég ákveð
eða ákveð ekki
að þekkja hann.
SVB.
BÖÐULLINN
í Frakklandi — „hinn opinberi“ — hefur fyrir skemmstu neitað að
höggva fleiri delínkventa, nema því aðeins, að hann fái sömu laui og
skrifstofustjórar í ráðuneytunum og auk þess aukaþóknun fyrir hvern
haus. Stendur þetta nú í stappi, og síðast er fréttist, voru átta glmpa-
menn enn á lífi, sem lögum samkvæmt áttu að vera dauðir, og veidur
þetta ríkinu miklum kostnaði. Sem betur fer, er það fremur fátítl, að
böðlar stræki. Næsta tilfelli á undan, sem vér munum, var fyrir e;>. 25
árum, vestur á Cuba; en þar var ekki um kaupdeilu að ræða, htldur
sagði böðullinn þar af sér, til þess að fara að lesa guðfræði.
um fullveldishátíó og flugvallarsamning.
F ullveldisminning
með fjálgleik nægum.
Og skál fyrir sjálfstæði
og samning frægum.
Frá Sameinuðu Þjóðunum hefur oss borizt eftirfarandi;
orn
um oróuveitingu:
Menn þreyttust ekki
á því að lof ’ann
og töluðu um sjálfstæði
á samning ofan.
Réttlátt skiptast heimsins hnoss
hugleið staðreyndina:
að sumir eru settir á kross
en settur kross á hina.
SÞ.
Var þjóðin ánægð?
það sýndist svo —
með sjálfstæðisdagana
sína tvo.
LANDHELGISGÆZLA VOR
ætlar á næstunni að bæta við sig tveim varðskipum og ennfremur
tveim helikopterflugvélum, svo að hægt sé að kikja undir tuskumar,
sem þrjótarnir eru vanir að breiða yfir nafn og númer.