Spegillinn - 01.07.1958, Page 5

Spegillinn - 01.07.1958, Page 5
7. TÖLUBLAÐ Júlí 1958 33. ÁRGANGUR ÁRBÆ J ARS AFNIÐ varð fyrir lieldur en ekki óþægilegri heim- sókn uni J ónsmessuleytið, er einn gestur- inn ■—- eða fleiri — brutu upp sýningar- kassa og stal merkilegasta hlut safnsins, gömlu vaktaraúri, sem er einstakt í sinni röð. Virðist þjófurihn liafa haft nokkra kímnigáfu til að bera, auk ófrómleikans, og viljað sýna forráðamönnum safnsins, að það væri ekki ofvel vaktað. NORSKUR KARLAKÖR kom fyrir nokkru hingað til landsins, en aðalerindi hans var þó til Akureyrar, sem er vinabær Álasunds, en þaðan var kórinn. Sú þarfa nýlunda var þarna viðhöfð, að kórinn gróðursetti 2000 trjáplöntur norð- anlands. Er hér farið inn á nýja og betri braut, og gæti verið til fyrirmyndar. Ætt- um vér framvegis að láta svona gesti gera eitthvað þarft af sér, er þeir koma í heim- sóknir, og reyndar er hér um að ræða gamlan og góðan íslenzkan sið. Auk þess færði kórinn Akureyrarbæ öll verk íbsens, sem var óþarfa kurteisi, þar sem engin liætta er á, að menn fari að lesa þau sér til óbóta. „TIL FRAMANDI HNATTA“ heitir bók eftir Gísla Halldórsson, sem AI- menna bókafélagið hefur gefið út og lesum vér í umsögnum, að hún höndli um geim- ferðir. Hér virðist oss vera seilzt um hurð til lokunnar, þar sem alls ekki þarf að fara til framandi hnatta til þess að komast í geim. ÞRIGGJA MÁNAÐA KÁLFUR gerði fyrir nokkru nafn sitt ódauðlegt með því að synda yfir þveran Dýrafjörð og það svo hratt, að memi sem reru lífróður á eftir honum, náðu ekki í hann fyrr en liann var kominn á þurrt land og hljóp óstuddur heim til bæjar. Er nú hafður mik- ill viðbúnaður fyrir sex mánaða afmæli kálfsa og Iielzt talað um að útvega honum Breiðafjörð að synda yfir. KARTÖFLU SKORTUR hefur verið landlægur hjá oss undanfarið og er enn þegar þetta er ritað, en svo kveð- ur rammt að, að margir kjósa haim heldur en kartöflurnar frá Gómúlku, sem vér höf- um búið við upp á síðkastið. Er um kennt gjaldeyrisskorti, sem er miklu fínna nafn en blánklieit. Nú bregður þó svo við, að farið er að halda þjóðinni uppi á snakki um kartöflur, sem væntanlegar séu frá Hollandi. Er með því gefið í skyn, að oss liafi opnazt einhver gylliniæð þar í landi, og trúi liver sem vill. TÓNSKÁLDAFÉLAGIÐ liefur sótt um leyfi til að stofna og reka sérstaka útvarpsstöð og ber fyrir sig Kan- ann, sem slíkt geri í fullu trássi við ís- lenzka löggjöf um útvarpsrekstur. Án þess að vilja halda því fram, að vér séum þurf- andi fyrir meira af slíku trássi, mælum vér samt með umsókninni, þar eð með fram- gangi hennar hverfa „íslenzku lögin“ úr ríkisútvarpinu, og munu þá þrír fjórðu hlutar þjóðarinnar losna við þau fyrir fullt og allt, þar eð nýja stöðin mun draga ekki alllangt út fyrir nágrenni höfuðstaðarins. ÖLL DAGBLÖÐ YOR geta þess með viðhöfn, að Ólafur Noregs- kouungur, hinn fimmti með því nafni (sem amiars er vafamál), hafi verið skírð- ur konungsskírn í Niðaróssdómkirkju, ekki alls fyrir löngu. Oss finnst það nokkur ágalli á þessum fréttaflutningi, að ekkert hlaðið getur þess, livað hann var látinn heita. Höfum vér grun um, að jöfur liafi með þessu verið að losa sig við nafn Ólafs Tliórsar og heiti framvegis Hermann. RUNINGARNÁMSKEEÐ hefur verið auglýst (og væntanlega þegar lialdið, þegar þetta er lesið), .og er Bún- aðarfélag íslands látið meðganga það, til þess að plata sveitamanninn, en nasvísir menn þykjast vita, að það sé fjármálaráðu- neytið, sem að því stendur, í sambandi við hin einkar vinsælu bjargráð. Sumir telja þetta þó óþarft tiltæld, og benda réttilega á, að flestir sauðirnir hafi þegar verið svo vendilega rúnir, að varla muni annað eftir á þeim en illhærurnar. DAIJÐUR ÍTALI, Primo Rosselli að nafni, gerði það krafta- verk fyrir skemmstu að rísa upp í kistu sinni, fimm klukkustundum eftir andlát sitt og heimta að fá eittlivað að éta; kvaðst rétt aldeilis vera að forganga af sulti! Síð- an stjáklaði hanu út úr líkhúsinu og heim

x

Spegillinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Spegillinn
https://timarit.is/publication/349

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.