Spegillinn - 01.07.1958, Side 7

Spegillinn - 01.07.1958, Side 7
BPEBILLINN 151 til fjölskyldu sinnar, sem sat grenjandi yfir andláti hans, en grenjaði nú fyrst fyrir al- vörur er karl reyndist lifandi. Gamalt fólk þarna á staðnum kvaðst samt (gegn venju) muna annað eins. Hafi karlinn, faðir Prim- os, á sínum tíma leikið nákvæmlega sama bragðið, en hans fjölskylda var bara það raunsæjari, að hún keyrði hann öfugan niður í kistuna aftur og var búið að moka ofan á hann áður en hann fengi gert fleiri upprisutilraunir. ALLMIKH) KARP hefur staðið undanfarið milli Framsóknar- flokksins og íhaldsins um það, hverjum beri að þakka sementsverksmiðjuna og all- an hinn glæsilega framgang þess máls. Vilja Framsóknarmenn þakka hana Her- manni, en íhaldið Ólafi Thórs, og er hvort- tveggja að vonum. Ástæðan til deilunnar mun vera væntanleg uppsetning ferlíkis af upphafsmanni smiðjtmnar. Vér sjáum ekki annað fært en fela Ásmxmdi að fara til beggja t>g búa til einhverja skrípamynd, sem gæti heitið Hermann Thórs. Auk þess má síðar bæta við mynd af þeim fjármála- ráðherra, sem innir af hendi lokagreiðsl- una fyrir smiðjuna, en hún er öll reist upp á krít og meira en það. PRESTASTEFNAN, sem er fyrir nokkru afstaðin hér í höfuð- staðnum, „taldi ógerlegt að flytja biskup í Skálholt“, lesum vér í góðu blaði. Það mun mála sannast, að kirkja vor sé íhalds- söm og fylgist því ekki vel með í nútíma- tækni. og hefur ekki séð sum stykkin, sem flutt hafa verið til Sogsvirkjananna. Er engu líkara en klerkar haldi, að ekki sé hægt að flytja biskupinn nema á klökkum, eins og gert var í gamla daga þegar bisk- upar komu fullir úr yfirreiðmn sínum. Auk þessa lýsti stefnan yfir hryggð sinni yfir aftökunum í Ungverjalandi, en það mun hafa verið — eins og víðar — átylla til þess að breiða yfir ódugnað sinn við biskupstransportina. SPRENGJUÁRÁS var fyrir nokkru gerð á rússneska sendi- ráðið hér, en ekki var þó um kjarnorku eða vetnissprengju að ræða, heldur einn hinna gamalkunnu kínverja, sem eldri Reykvíkingar kannast við frá eymdarárum þjóðarinnar. Samt var árásarmaðurinn handtekinn og höfum vér heyrt, að hann hafi verið konuni. Þótt svo kunni að vera, gerir það ekki svo ýkjamikið til; það má alltaf ákæra hami fyrir títóisma. MORGUNBLAÐIÐ er að hafa það eftir fréttaritara sínum í Kaupinhafn, að H. C. Hansen forsætisráð- herra þeirra frænda vorra ætli að taka að sér að gerast sáttasemjari milli íslendinga og Breta um landhelgismálið. Þar eð oss er eigi krmnugt um, að téður H. C. hafi verið til þess arna kvaddur af neinum á- byrgum aðila, vildum vér beina því til hans að fara sér hægt þar til óskir þar um berast honum utan héðan. Það kynni að vera, að einhverjir menn séu svo gamlir til í landinu,- að þeir muni meðferð Dana á utanríkismálum vorum og séu ekkert sérlega æstir í að afhenda þeim þau aftur á einn eða annan hátt. H V ÍT ASUNNUMENN í Svíþjóð hafa ráðizt með offorsi á kynlífs- fræðslu þá er nú er um hönd höfð í sænsk- um skólum, og kveða hana ekki vera ann- að betra en einn anga af klámritaútgáfu og öðrum slíkum óþverra. Er árásum þeirra aðallega beint gegn forstöðukonu kynlegheitastoifnunar ríkisins, en hún hef- ur nýskeð verið sæmd doktorsnafnbót fyr- ir að klæmast við blessuð börnin. Vilja Hvítsynningar láta bömin læra það sem læra þarf á þessu sviði á sama hátt og fyrr gerðu afar þeirra og önimur, og þótti tak- ast eftir öllum vonum. LANDNÁMSMAÐUR einn úr Snobbhill hefur átt tárumdöggvað viðtal við Hannes á homum sér, og borið sig mjög upp undan vatnsleysi því er þá byggð hrjáir. Virðist þar ekki renna vatn nema rétt um blá-lágnættið, en þá liafa snobbarnir annað þarfara að gera en safna að sér vatni. Vér sjáum ekki annað en stórauka verði innflutning á dönskum bjór og jafnframt endurreisa Þvottalaugarnar. Munu jafnvel ráðstafanir í gangi þar að lútandi, er bærinn hefur keypt Þvottakonu Ásmundar, til að setja upp í Þvottalaug- unum. HELGAFELL hefur nú hafið nýstárlega listkynningu, með sýningu þar sem gestimir geta fengið listaverkin „lánuð heim“ og svo keypt þau upp á afborgun, ef um semst. Er hér um að ræða hina þörfustu nýung, sem vonandi er að vel takist; aðeins má hún ekki hafa í för með sér samskonar listkynningu á grammófónplötum. BUNAÐARSAMBAND Borgarfjarðar auglýsti fyrir nokkru (og að sjálfsögðu í Tímanum) eftir manni, sem hefði bíl, til aðstoðar við tónamælingar. Hér mun um að ræða mann til þess að aðstoða Jón Leifs við mælingar á lang- drægni nýju útvarpsstöðvarinnar, og mun búnaðarsambandið hafa farið þess á leit, að hún næði til Borgarfjarðar. NORSKIR VÍKINGAR liafa nýskeð farið frægðarför mikla vestur til Ameríku á víkingaskipi, sem þó var með loftskeytaútbúnaði og hjálparmótor, sem ekki er getið um, að forfeður vorir liafi notað á víkingaferðum sínum. Hrepptu þeir veður stór og hafvillur, en verst var þó, að þeir urðu vatnslausir löngu áður en markinu væri náð. Eigi pissuðu þeir þó í austurstrogið og blönduðu sjó, half and half, svo sem gerðu fommenn, heldur réðust þeir á portvínsbirgðir skipsins, en þær liöfðu þeir einnig fram yfir fornmenn. Voru þeir því orðnir vel kjaftliýrir, er til Nefjorkar kom, og þótti öll förin hafa tek- izt með miklum ágætum.

x

Spegillinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Spegillinn
https://timarit.is/publication/349

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.