Spegillinn - 01.07.1958, Síða 19

Spegillinn - 01.07.1958, Síða 19
5FEGILLINN 163 ekki út fyrir aldur fram. Aðeins örfátt verður hér nefnt af væntan- legum afrekum hans, eða nægilegt til að sýna, að hér verður enginn meðalmaður á ferð. Undir em- bættið heyrir t. d. allur aðbúnaður verkamanna er hjá bænum vinna, ekki sízt skal hann sjá um, að þeim verði ekki kalt á veturna meðan þeir eru að taka í nefið, en bæjarvinnan er á þessu sviði alveg stórhættuleg, svo að kvef er orðið þar atvinnusjúkdómur. Þessu verð- ur þegar í stað kippt í lag. Ef nú hlutaðeigandi verkamönnum þykir þetta óþarfa kuss og afskiptasemi og klaga til borgarstjóra yfir því, að verið sé að tefja þá við vinnuna, verður það hlutverk félagsfulltrú- ans að sætta sjálfan sig og bæjar- yfirvöldin og verkamenn með svo- kölluðu þríköntuðu samkomulagi. Ennfremur skal hann koma á vinnustaði og lesa upp fyrir verka- mönnum nýjustu löggjöf um kaup og kjör, svo að þeir geti fylgzt með því, sem gerist á þessu sviði. Svo á hann að „kynna verkamönn- um og öðrum starfsmönnum starf- semi bæjarfélagsins og bæjarstofn- ana“. Hér er sýnilega á ferð bana- tilræði við hið forna spakmæli: „Oft má satt kyrrt liggja“. Það yrði of langt mál í stuttri blaðagrein eða útvarpserindi að telja allt, sem lagt verður á hið (vonandi) breiða bak þessa aum- ingja manns, en skemmst frá að segja, að hann á að verða þarna eins og landafjandi fram og aftur um alla starfsemi bæjarins, meðal annars á hann að koma á hverju ári og athuga framfarirnar á Miklu- brautinni. Það segir sig því sjálft, að hann þarf að hafa við hönd sér fjölda dragvanta, sem starfa í umboði hans, því að ef t. d. á að romsa upp alla félagsmálalöggjöfina á hverjum vinnustað, yrði hann að tafsa svo að enginn skildi neitt. En kannske verður hann líka lagður inn í hinn ágæta útvarpsþátt „Við Iieitrofi, heitrofi . . . ! Það hefur vakið heldur en ekki eftirtekt og sumpart hneykslan í stjörnuheiminum, að hin einkar vinsæla kvikmynda- og sjónvarps- stjarna, Adrienne Corri, hefur kært brezkan aðalsmann, sem er hvorki meira né minna en barnabarn sjálfs hertogans af Westmeister fyrir heitrof við sig, en hertoginn af Westmister á helminginn af lóð- unum í London og er í króniskum stóreignaskatti þar í landi. Hinn ungi maður, sem lent hefur í þessu klandri, heitir Patrick Filmer- Sankey, og bendir fyrri hluti ætt- arnafnsins á, að hann hafi lengi gengið með kvikmyndadellu, eða þá foreldrar hans, og er reyndar ekkert nýtt um aðalspakkið í Bret- landi. Unglingur þessi, sem annars var nýgiftur, er borinn þeim sök- um að hafa trúlofað sig ungfrú Corri í partíi, en hann ber af sér allar sakir, og segir, að þau hafi bæði verið hálf og ekki samninga- hæf. En hann reiknaði ekki með vinnuna“, og gæti orðið þörf breyt- ing á þeim þætti. Þessi orð eru rituð til þess eins, að menn geti haft hugmynd um á hverju þeir eiga von á næstunni, þegar félagsmálafulltrúinn fer að grassera, og reki hann ekki öfugan út, þegar hann kemur að dyrum manns og spyr, hvort maður geti ekki munað eftir einhverju, sem tengdapabbanum fyrrverandi til- vonandi. Hann er bareigandi norð- ur í Glasgow og þegar hann heyrði, að hinn ungi aðalsmaður ætlaði að fara að hlaupa út undan sér, stakk hann út einn pænt á kostnað húss- ins, og kallaði saman lögfræðinga sína. Má hinn ungi aðalsmaður nú fara að biðja fyrir sér, því að skozkir lögfræðingar þykja snúnir, enda venja að borga þeim eftir ár- angri. Annars er ungfrú Corri einna frægust fyrir það að hafa nýlega lent í lífsháska miklum, er hún var að hita sér mjólk á gasvél, en mjólkin sauð upp úr og drap á gasinu, sem þá streymdi út og hafði næstum kæft stjörnuna. Eitt af því sem aðalsmaðurinn hefur svikið hana um, er að gefa henni rafmagnsvél. Málið er í rannsókn. Fæddur meybarn. Það er máske ekki á allra vit- orði, að sjálfur Slark Gjeibel hefur einusinni verið kvenmaður. Hann mætti vera öðruvísi og betra. Auð- vitað verða menn látnir fylgjast með störfum hans í blöðum og út- varpi, og því mun óhætt að lofa, að innan skamms verður bæjar- vesenið orðið að einu kærleiks- heimili, sem ekki skal gefa eftir útvarpinu eins og það var áður en Hjörvar fór að skríða þar um eins og höggormur í grasinu.

x

Spegillinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Spegillinn
https://timarit.is/publication/349

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.