Spegillinn - 01.07.1958, Síða 20
164
5PEJ3 1.LLIN.Cj
var svo óheppinn að fæðast í in-
flúensufaraldri miklum, og lækn-
irinn, sem hjálpaði honum inn í
heiminn, hafði svo mikið að gera,
að hann skráði Slark litla (sem
seinna varð) sem stelpu. Hlaut
Slark að líða miklar þjáningar fyr-
ir þetta meðal skólabræðra sinna,
sem stríddu honum og kölluðu
hann stelpustrák.
Giftist tuddabana.
Lucia Bose, sem er ein ung og
fögur stjarna, hefur gert sér það til
frægðar að giftast spænskum
nautabana og einum þeim fræg-
asta, að nafni Luis- Miguele Dom-
iniguin. Hafði sá lengi gengið á
eftir henni með grasið í skónum,
og þegar ekkert dugði, bauð hann
henni á nautaat, þar sem hann
skyldi eiga við frægasta tudda
Spánar. Og þar var hann klókur,
því að varla var tappurinn fallinn
í sandinn, þegar Lucia kom hlaup-
andi til banans og sagðist elska
hann. Ekki er vitað, hvar þau hjú-
in ætla að eyða hveitibrauðinu, og
er þess helzt til, að þau ætli að
halda því leyndu, svo að nautgripa-
ræktarmenn nái ekki í þau.
Dýr mundi Gína öll.
Líklega hefur Gína Lollóbrígída
eitthvað verið farin að dala í vin-
sældunum, að minnsta kosti hefur
hún nú reynt að vekja á sér athygli
með því að fara í mál við kvik-
myndajöfur einn í Milano og
heimtar 200 milljónir líra í skaða-
bætur, en annars er það nú engin
ósköp, og mun lítið fara fram úr
stóreignaskatti Silla og Valda.
Samt þrjóskast jöfurinn við að seil-
ast svo djúpt í lírukassa sinn og
heimtar 40 milljónir af Gínu fyrir
samningsrof, en þá upphæð hafði
hún fengið fyrirfram fyrir að leika
í klámmynd um Pálínu Bónaparte,
sem ku hafa verið heldur betur
upp á karlhöndina, meðan hún var
og hét til þeirra hluta. En svo varð
klámið svo dýrt, samkvæmt áætl-
un sérfræðinga í þeirri grein, að
jöfurinn hætti við allt saman og
því er það sem Gína er svo frek til
auranna. En svo er ekki allt þar-
með búið, því að Les Barker, sem
átti að leika síðasta og versta frið-
il Pálínu, og þiggja að launum stór-
fé, stefnir nú Gínu fyrir að hafa
gert myndatökuna að engu, og seg-
ist tapa mörgum milljónum á því.
Stendur nú hnífurinn í kúnni, seg-
ir heimild vor, og á þar líklega við
Gínu.
Óskilin enn.
Glaudette Colbert hefur þá sér-
stöðu meðal stjarnanna í Hollí-
vúdd, að hún hefur aldrei skilið
enn, heldur býr alltaf með sama
manninum, sem enginn veit hvað
heitir. Um daginn var einhver að
komplímentera hana fyrir ungleg-
heit, en þá kom það í ljós, að þau
stöfuðu af því, að Claudetta litla
þvær sér alltaf úr sápu, og er enn-
þá gift fyrsta manninum sínum. Er
nú mikil eftirspurn bæði eftir sáp-
unni og manninum.
Nefið á Gary.
Gary Cooper þurfti nýskeð að
láta skera af sér smáæxli, sem var
honum eitthvað til trafala og hljóp
þá í að láta laga á sér nefið um
leið, úr því að verið var að þessu
á annað borð. Þetta tiltæki hans
vakti kvíða og gremju meðal að-
dáenda hans og meira að segja
fékk hann slangur af hótunarbréf-
um, ef úr þessu yrði, og líklega hef-
ur hetjunni ekki litizt meira en svo
á þau, nokkuð var það, að næst
þegar hann sýndi sig á götu, þusti
að honum múgur manns til að
skoða hann og fann sér til mikillar
gleði, að hann var enn með gamla
nefið. Nýtur Gary nú enn meiri
vinsælda en nokkru sinni fyrr og
margar stjörnur, sem farnar eru
eitthvað að dala, eru farnar að
leika þetta sama bragð, en með
þeim árangri, að aðdáendurnir
segja strax, að þeir skuli bara
breyta á sér fésinu; það geti hvort
sem er ekki breytzt nema til batn-
aðar. Já, það er ekki sama, hver
maðurinn er, lesendur góðir.
Kömmbakk hjá Bette Davis.
Bette Davis, sem hefur varla
heyrzt nefnd um alllangt skeið, er
nú komin fljúgandi til London og
segist ætla að fara að leika á ný“,
„ef þá nokkur vill sjá mig“, bætti
hún við, með ekta Hollívúdd-hœ-
versku, lítt grunandi, hversu nærri
hún fór sannleikanum, því að sann-
ast að segja saknaði hennar eng-
inn. Bette er nú orðin fimmtug,
samkvæmt kirkjubókum (en er
auðvitað miklu eldri), enda er sagt,
að Jósep Rank hafi strax sagt við
hana: „Það er mesta furða hvað
eftir er af þér, Bette“. Ekki inn-
lósséraði Bette sig á dýru hóteli í
Westend, heldur rann Ródmaster-
inn — sem ku vera tvíburabróðir
þess, sem Seðlabankinn okkar á —
með hana beint upp í sveit, þar
sem nóg var af kúm og kindum.
Bette segist sem sé vera komin af
traustum bændaættum að lang-
feðgatali, og er stolt af. Nú er eftir
að vita, hvernig henni verður tek-
ið, þegar hún birtist á léreftinu.
•— --ooOoo—
Konan mín talar við sjálfa sig.
Blessaður, það gerir mín líka, en hún
veit bara ekki af því. Hún heldur, að ég
hlusti á hana.
—o—
Tíminn er liinn mikli læknir.
Hann er að minnsta kosti ekki neinn
fegrunarlæknir.
Og svo var það gamli maðurinn, sem las
alltaf blaðið sitt í rúminu á morgnana, og
ef nafnið hans var ekki í dánarfregna-
dálknum, fór hann á fætur.
ERNEST MARPLES,
sem er póst- og símamálastjóri Bretlands
ins mikla, lét svo um mælt fyrir skemmstu,
að landar Jians notuðu símann aHtof lítið,
er aðeins tvö samtöl kæmu á hvem sína
(á ári?), en innlagning símans kostaði 110
sterlingspund. Þó sé mest tapið á símaklef-
um fyrir almenning, en þeir em fleiri í
Bretlandi en nokkm öðru landi, enda eiga
þeir merkilegu hlutverki að gegna í öllum
almennilegum glæpareyfuram. Heyrzt hef-
ur, að stjórnin ætli nxi að leita samvinnu
við kvenfélög landsins og fá þau til að taka
almennilega símatöm, til þess að bæta úr
ófremdarástandi þessu, svoi að stofnunin
flosni ekki upp.