Spegillinn - 01.05.1968, Blaðsíða 4

Spegillinn - 01.05.1968, Blaðsíða 4
4 SPEGILLINN £OROVDUR E. ÐÓK830M EAFNAR3TJVBTIÍS - SIMI li’iHI YERDLAUNAGETRAUNIN Eins og við bjuggumst við, varð gifurleg þátttaka í myndgátusam- keppninni í síðasta tölublaði. Sum- ir kvörtuðu yfir því, að skilafrest- ur hefði verið of stuttur og munum við taka það til greina við næstu myndgátu, sem verður væntanlega í 6. tölublaði. Aðrir hafa óskað þess, að Spegillinn birti krossgátu á síðum sínum og er það mál nú í athugun hjá ritstjórninni. Tillögur um efni sem þetta eru vel þegnar frá lesendum Spegilsins, en þeim fjölgar nú óðum. Dregið var úr réttum lausnum á myndgátunni, en verðlaunin voru þrisvar fimmhundruð krónur. Rétta lausnin var: ÞJÓÐIN GETUR EKKI ÁN SPEGILS VERIÐ. (Þ JÓÐ ING ETUR EKKI Á N SPEGILL — L ESS VER IÐA — A). Eftirtaldir heiðursmenn hlutu verðlaun að þessu sinni: Bergþór Jóhannsson, Hjarðarhaga 40, Reykjavík, Jakob Ó. Pétursson, Fjólugötu 1, Akureyri og Hallgrím- ur Jónsson frá Ljárskógum, Búð- ardal. Verðlaunahöfum verða send verðlaunin við fyrsta tækifæri, en Spegillinn vill óska þeim til ham- ingju, um leið og hann þakkar hin- um þátttakendunum fyrir góðar undirtektir (og frímerkin).

x

Spegillinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Spegillinn
https://timarit.is/publication/349

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.