Spegillinn - 01.05.1968, Blaðsíða 9

Spegillinn - 01.05.1968, Blaðsíða 9
SPEGILLINN g kemur, og því lætur hann vaxa dýrindis ávexti, ekki bara kræki- berin svörtu, heldur einnig vín- drúfur. Frá örófi alda hefur mannskepn- an liðið af sjúkleika á sál og lík- ama. Sjúkur líkami leiðir til sjúk- leika í sálinni, en bendir þá ekki Guð okkur á hverskonar aldin, ávexti og kálmeti til að gera af drykki, sem styrkja og hressa. Og þannig hefur manneskjunni tekizt með handleiðslu Drottins að gera þennan drykk af aldinum hausts- ins“. Með hátíðlegum svip dró séra Hómelíus úr hempuvasa sínum risavaxna líkjörflösku, saup til- heyrandi sopa af glitrandi vökvan- um, hóf ásjónu til himins og var sæll .... Hann lagði flöskuna í grasið við hlið sér og mælti: „Já, ungu vinir, takmarkalaus miskunnsemi Drottins birtist okkur í mörgum myndum, en bezt er og happasælast að gefa sig á vald henni úti í guðsgrænni náttúrunni, sem tignar dýrð Drottins og birtir hana í jafnvel hinni smæstu pöddu. Ó, hér er dásemdanna staðurl Lambagrasið Ijómar og hunangs- flugan suðar, eða fiðrildin, sem flögra um í logninu. En niður í læknum veltir sér gljáandi silungur og sjórinn er kvikur af fiski og öðru lifandi, sem lofar verk Skap- arans. Allt er þetta ásamt fugla- skaranum í björgunum og hverju því sem lifir og hrærist, allt er það Guðs handarverk. En með þessu öllu vildi skaparinn sýna velþókn- un sína á manneskjunni, því allt kemur það henni að notum og vitnar um sanna elsku vors himn- eska föður á okkur mönnunum. Þessvegna kveikti Guð lífið í ám og vötnum, á landi og sjó, svo við gætum dásamað nafn Hans. Vafa- laust hafið þið, elsku drengir, séð hvernig æðarfuglinn sækist eftir því að verða fyrir skoti veiði- mannsins og hvernig hann hnígur í valinn og verður í himneskri náð að gómsætri næringu manna. Og hvað sannar það betur en safa- mikil æðarbringan hversu smá manneskjan er frammi fyrir Skap- ara sínum; því án hans vilja og ást- ar hans til okkar vanmegnugra mannanna barna væri engum kleift að fara svona í vasa sinn og draga þaðan upp kollusteik vafða í pappír, eins og ég nú geri. Ég spyr, gæti syndum spillt mannleg vera gert þvílíkt án guðlegrar náð- ar? Og þegar ég ber hnífinn í þetta,“ hélt hann áfram um leið og hann risti sundur kollubringuna og skóflaði upp í sig stórum bitum, „þá fyrst geri ég mér grein fyrir óendanlegri handleiðslu Guos og lít náttúruna alla, fullkomnasta handaverk Skaparans, líkt og í svipleiftri." Þegar hann hafði rennt niður kollusteikinni með vænum sopa af líkjörnum, hélt hann áfram: „Hversu umkomulaus væri ekki mannveran og endalausar þjáning- ar hennar, ef Guð varnaði henni svefns. Hvílíka dýrðarsálma mætti ekki skálda um það þegar þreytt- ur maður fellur í væran blund. Hvað þá ekki fremur þegar Drott- inn ann honum endurnærandi blundar undir berum himni mitt í guðsgrænni náttúrunni, þar sem hann sofnar með bænir á vörum í dýrð Drottins

x

Spegillinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Spegillinn
https://timarit.is/publication/349

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.