Spegillinn - 01.05.1968, Blaðsíða 29
SPEGILLINN
29
„Já en góði maður, skilurðu ekki
að við erum vinir ykkar. Við erum
hingað komnir til að hjálpa ykkur,
mennta krakkana ykkar, reisa
skóla, spítala, vegi, brýr. Við mun-
um veita ykkur það sem kallað er
erlend aðstoð, birgja ykkur upp af
vopnum og góðum stríðsbúnaði
svo þið getið varið ykkur og verið
frjálsir menn í frjálsu landi."
,,Okkur finnst að við séum á-
gætlega frjálsir eins og við erum".
„Uss, ekkert píp vinurinn. Láttu
okkur alveg um það hvað ykkur er
fyrir beztu. Og vel á minnzt. Hvar
eru spæjaramir?"
„Spæjararnir, hvað áttu við
Hvíti höldur?"
„Láttu ekki svona lagsi, hér hlýt-
ur að vera gnótt spæjara, einhverj-
ir hafa frætt ykkur á því að þið
heitið indíánar, ha?"
„Já, en við heitum alls ekki indí-
ánar. Það er þú Hvíti höldur sem
gafst okkur þetta nafn. Ég held þú
sért ekki búinn að átta þig á því
hvar þú er staddur á hnettinum."
Höfðinginn benti á réttan stað á
kortinu.
„Og Kúba?"
Aftur benti höfðinginn.
„Nú — þá ættu Bahamaeyjar
eftir öllum sólarmerkjum að vera
hér. Ja mikill asskoti lagsmaður.
Hvers vegna fór ég ekki beina leið
þangað ha?"
„Sennilega af sömu ástæðu og
aðrir, ferðamannatíminn er ekki
byrjaður hjá þeim og þessvegna
ósköp dauft þarna niðurfrá?"
Þá mælti Kolumbus landaleitir
þessum orðum: „Nú skaltu Ijúfur-
inn púnga út öllu þínu gulli svo og
ættmenna þinna og muntu þá lífi
halda".
„Þið hvítskinnar eruð okkur
rauðskinnum bjargvættir miklir og
veit ég ógerla hvernig við getum
launað ykkur svo sem vert er.“
Um leið og Kolumbus bjástraði
við að sekkja gullið mælti hann
svofelldum orðum og var þá ekki
beint smáfríður framaní sér: „Ég
ætla að ráðleggja þér kall minn
að minnast aldrei framar á Leif
þenna heppna, enda þótt hann hafi
verið góður sjóari svo sem gamlar
bækur herma, þá hefur hann á-
reiðanlega komið til einhvers ann-
ars lands en þessa því ekki hef ég
fundið neitt sprútt hérna. Ég er
hræddur um að piltar mínir myndu
ekki spara ykkur rispurnar ef ýað
væri að því að ég sé ekki sá fyrsti
sem stígur hér á land."
„Kvíddu engu um það Kolum-
bus sæll. Við munum þegja; sá
einn sem þetta fær að vita er arfi
minn Litli Haukur".
„Og hvar er hann niðurkom-
Vnn?“
„Hann er að stúdera veraldar-
sögu í Boston".