Spegillinn - 01.05.1968, Blaðsíða 11
11
SPEGILLINN
V?
Það er ekki nema eðlilegt að ævisögur snillinga
séu festar á blað. Hvar ætti svo sem að festa þær
annars staðar?
Oft rita aðrir menn sögur slikra manna, ýmist
fyrir eða eftir dauða mikilmennisins. Stundum
skrifa stórmennin sögu sína sjálf um það leyti,
er þau eru að renna æviskeiðið á enda, ævinlega
þó fyrir dauðann.
En sjaldan hefur æviferill manna verið tekinn
saman meðan þeir eru á unga aldri og ekkert far-
ið að hilla undir endalokin. En Bítlarnir hafa löng-
um sannað, að þeir eru ódauðlegir. Það var því
ekki eftir neinu að þíða með ævisögu þeirra, en
■hún hefur nú verið send öllum blaðaútgefendum
heims, nema útgefendum Spegilsins. Reyndar
héldu margir að farið væri að halla undan fæti
fyrir þeim (þ.e. Bítlunum), en það tók þá ekki
langan tíma að undirstrika ódauðleika sinn, nánar
tiltekið sjö mínútur með laginu ,,Hey Jude".
Bítlarnir hafa fullyrt, að þeir séu vinsælastir
allra nú- og þálifandi einstaklinga, og ýmsir hafá
að auki staðhæft, að þeir séu einnig frægastir.
Myndirnar að ofan sýna viðleitni foringja næst-
frægustu hljómsveitar Breta, The Rolling Stones,
en um þá hefur verið sagt, að þeir eigi skilið að
verða grafnir í virðingargrafreit — lifandi.
Myndin að neðan er af komu Bítlanna til himna-
ríkis, ef þeir skyldu, þrátt fyrir allt, reynast dauð-
legir.
ÞIÐ GET1Ð
TRLIÐ FOLKINU
trú un....
... fíÐ ÞIÐ
SÉUÐ VltJóSLLI
EN V\Ð..} EN.
... SRNNLEfrR
EG,
y ÐUR...
... VIO
ERUM MÚ
FR&GRRI.