Spegillinn - 01.05.1968, Blaðsíða 17

Spegillinn - 01.05.1968, Blaðsíða 17
SPEGILLINN 17 ÞRJÁR BÓKAFRÉTTIR rnnrnm VERÞUf? ÓBAR4NN BISKUP SIGURBOORN MORGUMSTUND GEFUR GULL I MUND KR. KEELER r MYNDLISTARGAGNRÝNI Nú eru liðnir rúmir þrír mánuðir síðan erlendur sveinn hermannsson hélt síðustu málverkasýningu sína I Hringsalnum, en þrír mánuðir milli sýninga þykja alllangur tími nú til dags. erlendur lærði á sínum tíma I handlistaskólanum og lauk þaðan námi á skömmum tíma. Eftir það fór hann til París- ar og drakk þar bjór veturlangt og lagði síðan leið sína til Italíu til að skoða vertshúsin þar og kynna sér næturlíf Rómar. erlendur hefur getið þess rétti- lega í blaðaviðtali, að ekkert atriði sé að skoða listasöfn I útlöndum, en hitt sé nauðsynlegra, að kynna sér mannlífið á þessum stöðum og það hef- ur hann iðulega gert síðan námsferli lauk. Myndir þær sem erlendur sveinn sýnir að þessu sinni eru allar unnar út frá sama temanu, eða form- inu, og skyldu sýningargestir gæta þess vandlega að hefja skoðunina á réttum stað, þ.e.a.s. að byrja að skoða mynd nr. 1 og halda síðan skoðuninni áfram réttsælis. Með þvi móti einu getur áhorfand- inn skilið þróunina I list erlends sveins. Mynd no. 3 finnst undirrituðum einna sterkust I forminu, þar byrjar sú útþensla þess sem síðar á eftir að hafa svo afdrifaríkar afleiðingar. Ljóðrænn litur þess- arar myndar færir oss heim sanninn um það, að erlendur sveinn vex með hverri raun, ef svo mætti að orði komast. Hið kosmiska rúm I mynd no. 1 gefur til kynna ómælisvíddir þess óþekkta, en mál- arinn er ekki I rónni fyrr en honum.hefur tekizt að uppfylla þetta rúm og kemur það bezt fram I mynd no. 6 sem er síðasta myndin á sýningunni. Þess má að lokum geta að allar myndirnar eru fyrirfram seldar, og er það Listasafn Islands sem kaupin gerði. Ég verð að láta I Ijós aðdáun mína á sýningarnefndinni fyrir þá framsýni sem lýsir sér í þessum kaupum, en geta má nærri hversu dýrt það hefði orðið fyrir listasafnið að ná í restina af myndunum hefði það aðeins keypt eina þeirra, en hver heilvita maður getur séð að myndirnar verða að standa saman. Að lokum vil ég hvetja allt hugs- andi fólk til að sjá þessa sýningu og óska hinum ört vaxandi listamanni til hamingju. (Hann er nú 169'/2 cm á hæð). Týri Tursson. - NN

x

Spegillinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Spegillinn
https://timarit.is/publication/349

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.