Spegillinn - 01.05.1968, Qupperneq 19

Spegillinn - 01.05.1968, Qupperneq 19
SPEGILLINN 19 noti orðfæri eins frægasta rithöf- undar heims, Hagalíns. Yfir- leitt segi ég, sölustarfið fyrir ís- lenzkar afurðir er frábært, þeir gera alltaf samninga sem miðast við lágmarksframleiðslu, og þeg- ar því er náð stoppa þeir bara móttökuna á aflanum. Á tímum sölutregðu er þetta fullkomnasta kerfi sem hugsast getur. Þú hefur náttúrlega komið við á höfuðbólinu? Jú hú. Ég skil fyrr en skellur í plúmpnum. Þó að lögbannað sé að minnast á þennan stað, eruð þið að dylgja það eftir Agnari Boga- syni að nýju húsbændurnir hafi komið þar að öllu í rúst — manni finnst kominn tími til að þessi menningarviti fari að skipta um peru. En ég sá ekki betur en kirkj- an væri á sínum stað; blöð fölna á hausti og hver fjargviðrast út af þeim? Á maður að skilja þetta svo að þú sért hætt að lesa Reykjavíkur- bréfin? Þegar menn sem næstum eru almáttugir fara að bera mistök upp á sjálfa sig, þá eru blöðin ekki les- andi lengur. Að hika er sama og tapa. Sá sem selur ríkinu hús er farsæll. Byggir þú stálgrindahús þarf einhver pð hafa umboð fyrir stálgrindum. Hvað þá um þjóðlegu atvinnu- vegina? Allt sem er gott er þjóðlegt, allt sem er vont er óþjóðlegt. Blessun varnarliðsins verður ekki mæld, ekki einusinni í hjólbörum, því hún liggur einkum í þeim siðferðis- styrk sem okkur veitist í sambýl- inu. Landbúnaður er kækur eða sérsinni sem lagast með betra uppeldi. Þó að sjávarútvegurinn — svokölluð undirstaða þjóðlífsins, beri sig ekki, teldi ég ekki hyggi- legt að leggja hann niður með öllu svo lengi sem við getum beitt rán- yrkju á öllum miðum — að því hlýtur að koma að skipaflotinn fer í brotajárn til uppbyggingar stór- iðjunni. Nú þegar eru 24% þjóð- arinnar vinnandi við þjónustu, en betur má ef duga skal. En ekki býst ég við að allt verði fullkomið fyrr en Heimdallur hefur fram- kvæmt Menningarbyltinguna. Þú lítur með öðrum orðum björt- um augum á framtíðina? Líttu á þingmennina okkar, ekki fara þeir á nauðungaruppboð. Hvað sem kann að vera í poka- horninu byggja verktakar veginn. Eða með öðrum orðum: svo lengi sem Alþýðuflokkurinn hefur hrein- an skjöld mun verkalýðurinn engu kvíða. Afturámóti er lýðræðið svo rótgróið með þjóðinni að 11 Bol- víkingar verða til þess að breyta gangi veraldarsögunnar. Kjarni málsins er auðvitað sá að þjóðar- sálin er sjálfri sér samkvæm, þess- vegna munu þeir svarabræður Björn og Bali komast langt á braut kærleikans. Þar er nú ekki kalið í stjórnmálunum. Eða eins og Jónas segir: Fagrar heyrði ég raddirnar um sumarlanga tíð. Þú er sem sé viss um að iðn- aður blómstri? Svo lengi sem verkalýðsforingj- arnir hræða verkalýðinn með at- vinnuleysi mun kaupið haldast ó- breytt. Og um menninguna almennt? Boxhanskar munu hækka í verði innan Alþýðubandalagsins. Og svo lengi sem vér morðingjar slá- um út Puntila mun Islandsklukkan klingja. Og nú hvísla ég: Hver verður rekkjunautur þinn í nótt eiskan? I ástum samlyndra hjóna veitist mér allt sem ég þrái.

x

Spegillinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Spegillinn
https://timarit.is/publication/349

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.