Spegillinn - 01.05.1968, Síða 20
20
SPEGILLINN
F055 VOGSSKIPULA GIÐ
SEM EKKI FÉKK VERÐLAUN
ZLUHEltHm
ftbi.uv0i.Lja
. MÆUIWAUC!:
* f—r'i-H
SiNti 4 i-un
b'ul/rt.
FOSSV065-
BLíftua
G£W£/KftflH-íL/
$JÚKR)?H^Í,n LTL^
‘tHIJjc VW m'íLLfi
©+Ki RKj/?
í! Í j!'»■! ! i
OQPi?
HJS HUjKW(o)
1. Reykjavíkurtjörn verður að flytjast tafarlaust
á þennan stað. Það eru síðustu forvöð að
losna við hana úr miðbænum.
2. Þarna verður að koma brú. (Það er einmitt
þarna, sem lækurinn og vegurinn mætast).
Skynsamlegast væri að færa gömlu Foss-
vogslækjarbrúna þangað.
3. Þegar búið verður að fjarlægja brúna af
gamla staðnum (vegamótin Reykjanesbraut/
Fossvogslækur), skal hafa ferju á staðnum
(ef bíl skyldi bera þar að), unz lögð verður ný
brú yfir eða undir lækinn.
4. Tjarnarbrúin hefur í sjálfu sér ekkert að gera
þarna. Einhver bar fram tillögu um, að brú
þessi yrði sett í stað gömlu Fossvogslækjar-
brúarinnar, (þegar búið væri að færa þá brú),
en eins og gefur að skilja hefði slíkt gífurleg-
an kostnað í för með sér.
5. Stöðvunarskylda.
6. Stórt hús með mörgum herbergjum, byggt og
rekið á sama hátt og Eros Center í Hamborg.
7. Þér vitið jú hvað vindmylla er.
8. Hús.
9. Enn þá hefur enginn foss fundizt á þessum
stað, en ef þér finnið einn, skuluð þér leita
til augnlæknis.
10. Hringekja.
11. Fyrir syfjað fólk.
12. 12 hæða háhýsi (á hliðinni af ótta við flug-
vélar).
13. Óhappatala.
14. Verður væntanlega tekið í notkun, þegar búið
er að leggja bílveg að því.
15. Stór og glæsilegur grasvöllur, sem ekki er
ætlaður fyrir knattspyrnu eða frjálsar íþróttir,
en þetta er qrasvöllur enqu að síður.
16. Ekkert.
17. Turninum er ætlað að hafa gát á flugi andanna
18. Þetta er fyrir utan svæði Fossvogsskipulags-
ins, fáráður.
19. Brú. (I athugasemdum 2, 3 og 4 var þvælt
fram og aftur um brýr. Við ætlum því ekki að
hafa neinar málalengingar I kringum þessa
brú; það yrði bara til þess að þreyta lesand-
ann enn meira).
20. Athugasemd númer 20 er ekki merkt inn á
kortið, en þér hljótið þó að skilja það, að það
er miklu skemmtilegra að hafa tuttugu athuga-
semdir en nítján.