Spegillinn - 01.11.1970, Side 29

Spegillinn - 01.11.1970, Side 29
Ahugavert og listrænt í kvikmyndum Undanfarið hefur verið fjarskalega lít- ið um áhugaveróar myndir í kvik- myndahúsum borgarinnar, og reyndar lokuðu sum bíóin um leið og sjónvarp- ið fór í frí, vegna þess að þá var ekki lengur von til þess, að hrelldar sálir flýðu inn í kvikmyndahúsin undan sjónvarpinu. „Ástandið er sannarlega slæmt“, sagði forstöðumaður hins nýja kvikmynda- húss Lýðháskólans í viðtali við SPEG- ILINN. „Satt að segja erum við alveg að gefast upp á þessu. Konan er öll kvöld í miðasölunni; dóttir okkar vísar til sætis; ég ríf af miðunum og hleyp svo upp til að sýna og svo beint niður aftur í hléinu til að selja gosið. Að sýningu lokinni geri ég upp kassann, og það sem ekki fer í skemmtanaskatt- inn gerir ekki betur en að hrökkva til heimilishalds með ýtrustu sparsemi“. Talið berst að þeirri margvíslegu gagn- rýni, sem komið hefur fram á hendur forráðamanna kvikmyndahúsa: „Þeir segja, að við sýnum ekki nógu nýjar myndir. Fyrst heimtuðu þeir tal- myndir, og nú vilja þeir nýrri myndir. Ég veit ekki til þess, að til séu nýrri myndir en talmyndir, enda höfum við gert okkur far um að fá okkar myndir hingað til lands beina leið frá Tóbín- höfða, þegar hætt er að sýna þær þar“. „Hvaða myndir virðast spjara sig bezt hérlendis?“ / „Einkum mundi ég segja, að áhugi væri fyrir listrænum myndum, dönsk- um og sænskum, einkum sænskum, því að þær eru oft meira krassandi. „Nak- in í skerjagarðinum“ gerði það anzi gott og „Svakaleg sifjaspell" var ekki sem verst. Myndir sem sýna lífíð í allri sinni nekt eru yfirleitt vinsælar, þótt listrænar myndir frá öðrum löndum en Svíþjóð eða Danmörku njóti ekki mik- illa vinsælda. Um daginn ætluðum við til dæmis að sýna geysimerkilega mynd eftir Pier Antonio Fellatiolini, og ég var búinn að fá kunningja stjórnandans til að flytja formálsorð, nema hvað enginn lætur sjá sig nema boðsgestir, ekkert dagblað lætur svo lítið að stinga upp á því, að lögreglustjóri banni myndina, og enginn kemur á næstu sýningu nema nokkrir drykkjumenn, sem voru að sitja af sér skúr, og ældu svo út fyrir mér heila sætaröð. Er þetta kvikmyndaáhugi ?“ „Hvað hafa kvikmyndagagnrýnendur gert til að glæða með fólki sannan kvik- myndaáhuga?" „Czq! !xqwx%%!!! !zzz%zr%! !cx%q!!! zxcq%**qzcx!!“ „Hverjar eru merkilegastar þeirra mynda, sem væntanlegar eru á næst- unni?“ „Það hefur komið á daginn, að kvik- myndahússgestir eru farnir að gerast leiðir á eldri kvikmyndastjörnum, sem eru nú um það bil að bryðja sína síð- ustu svefntöflu, svo að stefnan hlýtur að vera sú að ná í myndir með yngri leikurum, enda eigum við bráðlega von á mynd með Mae West, sem gerir mikla lukku um þessar mundir. Þá er einnig von á mynd með Dustbin Hoff- narr og Spýju Sparrow, sem urðu fræg í „Jón og Gunna“, sem var tekin í baðherberginu hjá negrafjölskyldu í Bandaríkjunum og kostaði í fram- leiðslu 43 dali og,82 sent, en hefur nú nettað 300 milljónir. Myndin, sem við eigum von á, fjallar umJífsfirrtan græn- metissala í Njú Jork (Dustbin Hoff- narr), sem ákveður að skipta um kyn, þegar konu hans lífsfirrtri (Spýju Spar- row) skrikar fótur á bananahýði, þá kemur til skjalanna lestarstjóri (sic) einnig leikinn af Sparrow, sem fær hann til að hætta í grænmetinu og ferðast með sér í kanó til Páskaeynnar. Þessi mynd er býsna vel leikin, einkum aukahlutverkin, en Lex Barker og Johnny Weissmuller hlutu einróma lof gagnrýnenda fyrir frammistöðu sína í hlutverkum tveggja vændiskvenna". „Er von til þess, að einhverjar íslenzk- ar kvikmyndir komi fram á næstunni ?“ „Jú, Róslaugur ku vera að vinna að kvikmyndahandriti um Gunnar á Berg- þórshvoli, en það á að verða dans- og söngvamynd, Kolur Rassel semur dans- ana, en tónlistargagnrýnendur blað- anna sjá um músikina. Framleiðslu- kostnaður, sem við gerum ráð fyrir að fari fram úr áætlun, verður greiddur af þeim gróða, sem Þjóðlmkhúsið hefur skilað að undanförnu“. „Er nokkuð, sem forstjórinn vildi taka fram að lokum?“ „Ég vil gjarna geta þess, að áhuga- mannasamtök eða starfshópar geta fengið húsið leigt til einkasýninga á myndum, sem eru svo listrænar, að ekki þykir ráðlegt að bjóða þær fram á almennum markaði, en slík áhuga- mannastarfsemi færist nú mjög í vöxt, enda velkomin tekjulind, því að skemmtanaskrattinn á erfitt með að koma klónum yfir þær krónur, sem koma í kassann á þennan hátt“. AUGLÝSING UM ÞOTUFLUG Hér með tilkynnist, að þotu Flugfélags íslands er leyft að lenda fullhlaðin af farþegum á Reykja- víkurflugvelli, hvenær sem forseti íslands þarf að skreppa til útlanda. Er þetta gert til að spara benzínkostnað bifreiða forsetans, sem annars þyrftu að aka til Keflavíkurflugvallar. Burðarþolsmæl- ingar á Reykjavíkurflugvelli hafa sýnt, að völlur- inn mun ekki láta undan við slík tækifæri, sé hann látinn vita með nokkurra daga fyrirvara. Flv"málastjóri 29

x

Spegillinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Spegillinn
https://timarit.is/publication/349

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.