Spegillinn - 01.11.1970, Side 9
SMÁAUGLÝSINGAR
Sálfræðingur óskast til að lækna
ofsóknarbrjálæði starfsmanna
minna. Þarf að vera þýzk-
menntaður og hafa starfað í
fangabúðum, svo að hann þekki
andrúmsloftið hjá okkur.
Slökkvilið Sveins á Vellinum.
Óskum eftir lélegri trillu, sem
hægt er að gera út til flóa-,
djúp- og póstferða á kostnað
ríkisins.
Steindór og Matthías.
Allir viðskiptavinir Landsíma
íslands eru beðnir að muna
eftir prósentunum í þágu bættr-
ar þjónustu.
Yflrmenn Landssímans.
Óska hér með eftir einhverjum
almennum samtökum til að
demonstrera í. Er þaulvanur
formennsku í hvers konar fé-
lögum. Gott væri, ef viðkom-
andi samtök gætu opnað leið
inn í pólitíkina.
Arinbjörn Kolbeinsson.
Ljóstæknifélag íslands vill
benda á, að flest hótel í ná-
grenni Reykjavíkur hafa of
mikla lýsingu, en það er baga-
legt fyrir gesti, sem ekki vilja
láta bera mikið á ferðum sín-
um.
Aðalsteinn Guðjohnsen.
Þeir lóðaeigendur í Garða-
hreppi, sem vilja selja lóðir í
íbúðarhverfum, eru beðnir að
gefa sig fram sem fyrst.
B.P.
Þeir lóðaeigendur á Akureyri,
sem vilja selja lóðir í íbúðar-
hverfum, eru beðnir að gefa
sig fram sem fyrst.
Shell.
Þeir húsbyggjendur, sem finnst
betra að láta okra á sér undir
eftirliti lögfræðings, hafi sam-
band við Valgarð sem fyrst.
Hf. Útboð og samningar.
Og enn vantar okkur fram-
kvæmdastjóra.
Dentalía.
Tek fyrir hönd Reykvíkinga við
ógreiddum barnsmeðlögum.
Helgi Vigfússon.
Kaupum dýnamit. Má vera
gamalt.
Laxárvirkjun.
Óska eftir starfi. Allt kemur til
greina.
Gunnar Thoroddsen.
Styðjum flugvélarán og spreng-
ingar.
Ragnarslýðsfylkingin.
Enn hefur horfið rafgeymir úr
birgðastöð okkar.
Orkustofnunin.
Það er rangt, að átök séu um
forustu Sjálfstæðisflokksins.
Það hefur aldrei leikið neinn
vafi á, hvar hennar væri að
leita.
Árvakur hf.
Náið yður niðri á náunganum
á ódýran og hagkvæman hátt.
Sendið smáauglýsingar til
Spegilsins.
Jóhannes Nordal.
Skreiðarkaupmenn eru beðnir
að láta okkur í friði.
Skreiðarsamlagið.
Saminn hefur verið sérstakur
taxti fyrir tannlækna sem
standa í húsbyggingum.
T annlæknafélagið.
Eins og undanfarin ár flyt ég
lambakjöt vikulega til Mall-
orka. Nú vantar mig líka lax,
því að Spánverjar vilja fá eitt-
hvað að éta með lambakjöt-
inu.
Guðni í Sunnu.
Óskum að gerast meðeigendur
í fjölritunarstofu vegna um-
fangsmikillar útgáfu dreifi-
bréfa.
Sveinn Ben og Eykon.
Vegna stækkunar húsnæðis
vors óskum við eftir nýjum
félagsmönnum. Verða að hafa
flekkað mannorð.
Frímúrarareglan.
Hér með tilkynnist, að ég biðst
eindregið undan því að skipa
efsta sæti listans í Austurlands-
kjördæmi, þrátt fyrir eindreg-
in tilmæli ykkar allra.
Jónas Pétursson.
Er aðeins til viðtals í febrúar-
mánuðum.
Guðmundur I.
Óska eftir notaðri kennslubók
í pólitísku tafli.
Geir almáttugur.
Hér með tilkynnist, að öll
fyrirtæki, sem ekki standa í
skilum og eru ekki skráð á
Akureyri, verða snarlega gerð
upp og afhent krötum til um-
ráða.
Magnús Jónsson í Sanu.
Knattspyrnusambandið, það cr
ég-
Albert Guðmundsson.
Ákveðið hefur verið að breyta
fræðslumálaskrifstofunni í
steingervingasafn.
Skólarannsóknir.
Höfum ráð undir rifí hverju.
Tökum að okkur að reka
fræðslumál og annast stjórn
landsins.
Stjórnunarfélag íslands.
Hér með tilkynnist, að við
höfum aldrei rætt fullir um
Laxármál á Hótel Sögu.
Hermóður og Ottersted.
Útgáfu símaskrárinnar er frest-
að um óákveðinn tíma. Sím-
notendur geta sjálfum sér um
kennt að vera alltaf að breyta
heimilisföngum og skipta um
númer. Að því ófremdarástandi
loknu munum við gefa út nýja
símaskrá.
Landssími íslands.
Munið, að ódýrara er að aka
yfír lömb fyrir 1.500 krónur og
fá svið og gæru í kaupbæti,
heldur en að borga 5.000 kr.
fyrir þau á venjulegan hátt.
Neytendasamtökin.
í samræmi við hugsjónir okkar
um góða þjónustu, höfum vér
ákveðið, að afnotagjald sima
þurfi ekki endilega að greiða
á skrifstofu okkar, og má nú
einnig greiða það í gíródeild
Hambrós banka, London.
Landssími íslands.
íslenzkir hestar með leikhæfi-
leika eru beðnir að hafa sam-
band við Dirk Passer í Dan-
mörku sem fyrst. Nánari upp-
lýsingar hjá Tímanum.
Gunnar Bjarnason.
Óska eftir meðeiganda að reyk-
húsi.
Sigurður Samúelsson.
Umsækjendur um embætti for-
manns dg forsætisráðherra eru
beðnir um að fylla þar til gerð
eyðublöð á skrifstofu okkar.
Árvakur hf.
Óskum eftir hugmyndum að
nýjum aðferðunt til að eyða
biskiskógum landsins.
Skógrækt ríkisins.
Framkvæmdastjóri útgerðar-
samtaka óskar eftir einkaritara
á ferðalögum, er getur ekið
bíl. Tilboð sé merkt Inoxa.
Útgerðardeild Spegilsins.
9