Spegillinn - 01.11.1970, Side 20

Spegillinn - 01.11.1970, Side 20
Einþáttungur þessi er þýddur úr fær- eysku. Hann var leikinn hjá Leikfélagi Koppavogs í Færeyjum í fyrra. Jó- hannes Patursson þýddi leikinn á fær- eysku úr indversku, en hann er saminn af prófessor Chakrabortí, sem fæddur er í borginni Sútlej í Damódardalnum í Úrissafylki í Vestur-Bengal. Hér er þessu snarað á íslenzku, en færeysku staðarnöfnunum haldið óbreyttum. Eins og allir sjá, er að sjálfsögðu ekki átt við neinar fyrirmyndir hér á landi að persónum leiksins. Þær eru hrein ímyndun Indverjans. Persónur: Shenoy sparisjóðsstjóri Dilip lögfræðingur og stjórnarmaður í sparisjóðnum, hefur mikinn áhuga á frama í stjómmálum, en skortir dugn- að, er einfaldur og drykkfelldur. Grover lögfræðingur og þingmaður, stjórnarmaður í sparisjóðnum, vill ekki að menn hugsi illt til sín, er atkvæða- lítill í stjórninni. Vajangaonkar valdsmaður í Sútlej (Koppavogi á færeysku) og stjórnar- maður í sparisjóðnum. Leikurinn gerist á stjórnarfundi í Spari- sjóði Koppavogs. Fundurinn er hald- inn í skrifstofu Shenoy sparisjóðsstjóra. Leikendur sitja við ílangt borð og hafa fyrir framan sig tvær viskíflöskur og eina ginflösku ásamt einhverju til blöndunar. Þá hefur Shenoy fyrir fram- an sig möppu með skjölum í. Allir stjórnarmenn hafa farið úr jökkunum. Shenoy: Góðir félagar, ég set hér með fundinn, sem er 15. fundur þessarar stjórnar frá síðasta aðalfundi. Eins og við allir vitum, þá stöndum við illa í Seðlabankanum núna og verðum því að fara varlega í sakirnar. Ég er hér með nokkur mál til afgreiðslu, aðal- lega framlengingar. Helltu í glösin, Dilip. Hérna er fyrst 70 þúsund króna víxill á Byggingavöruverzlun Koppa- vogs, sem óskað er eftir, að við tökum sem framlengingu á 90 þúsund króna víxli þeirra. Þeir áttu hins vegar að borga 25 þúsund af víxlinum, en geta víst ekki meir. Víxillinn er á síðasta í dag. Hvað finnst ykkur, ha? Þeir eru aumir, maður. Vajangaonkar: Ég vil fá þennan víxil í afsögn í fyrramálið, hvað sem við gerum við framlenginguna. Hafa menn- irnir fasteignaveð ? Shenoy: Ég hef nú ekki spurt þá um fasteignaveð, en það eru tíu ábyrgðar- Vessar: Q<2^D' /G?;5590 VÉR LÚTUM ÞÉR MAMMON Einþáttungur menn á víxlinum. Við ættum kannski að heimta fasteignaveð líka ? Vajangaonkar: Ég fæ þá að minnsta kosti þinglýsingu á veðinu til mín, á- samt afsögninni. Dilip: Mér fínnst, að við ættum að af- segja þennan víxil í fyrramálið, og svo skal ég taka hann í innheimtu og stefna út af honum. Ég get þá samþykkt framlenginguna, ef þeir skila veðinu, og náð af þeim hálfum innheimtu- laununum. Þetta eru helvítis kratar þarna í verzluninni. Hvemig var það, skiluðu þeir innleggi fyrir þennan víxil ? Shenoy: Blessaðir veriði, ég lét þá borga 9% fyrir innlegg, þegar við keyptum af þeim víxilinn, hann var upphaflega til sex mánaða. Þeir gátu ekki skaffað innlegg, svo að ég bauðst til að bjarga þeim hjá manni útí bæ, þið vitið, gamla formúlan. Við skipt- um því upp á næsta fundi á eftir. Það væri kannski rétt að láta þá borga aftur fyrir innlegg núna. Grover: Ef Dilip fær þessa innheimtu, þá er farið að halla á mig, ég gef ekki eftir minn hlut. Er ekki einhver íhalds- maður, sem ég get stefnt og samið við ? Svo verður þetta allt að vera pottþétt, því að mér er annt um heiður minn. Dilip: Vertu ekki alltaf að þessu hel- vítis röfli, Grover. Heiður þinn er hvort eð er ekki mikils virði. Þú fékkst nú aldeilis skammtinn þinn um daginn hjá Magnúsi greyinu byggingameist- ara. Það var nú 700 þúsund króna skuld, og þú tókst hálf innheimtulaun og fékkst þar að auki þinn hlut af inn- leggspeningunum. Hvað má ég segja, sem skaffaði peninga hjá tryggingar- félaginu, sem ég hef umboð fyrir, og hef alltaf skipt bróðurlega við ykkur. Ég veit ekki betur en, að við séum búnir að selja þá peninga sex sinnum sem innlegg. Skál. Og þegiðu nú, Grover, þú færð þitt. Grover: Mér er annt um mannorð mitt, það má enginn blettur á mig falla. Þú ert allt of kaldur í þessu, Dilip. Þú færir þokkalega út úr prófkjörinu, ef menn vissu, hvemig þú hagar þér. Shenoy: Jæja, áfram nú. Næst er það eitt af fyrirtækjum Skallagríms lög- manns í Skoruvík. Þetta er 300 þúsund króna víxill, og innleggið er farið út. Billiardinn samþykkjandi og Skalla- grímur útgefandi. Skallagrímur getur borgað 100 af honum og vill fá hitt til þriggja mánaða. Vajangaonkar: Vill fá og vill fá. Heldur þessi helvítis Skallagrímur, að hann stjórni þessari stofnun. Ég heimta, að þessi víxill komi í afsögn í fyrramálið 20

x

Spegillinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Spegillinn
https://timarit.is/publication/349

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.