Spegillinn - 01.11.1970, Side 16

Spegillinn - 01.11.1970, Side 16
ingunni og stakk á mig því, sem eftir var af mjólkurpeningunum. Restina fékk ég úr bauknum hjá stráknum. Það verður víst lítill vandi fyrir mig að borga þetta tífalt, þegar keðjan fer að hala inn peninga fyrir mig. Ég skrif- aði fjögur bréf í snatri eftir for- skrift Júlla. Eitt til mömmu, annað til tengdapabba, og hin- um ætlaði ég kellingunni að koma út í saumaklúbbnum. Þús- undkallana sendi ég eins og um var talað til velunnara minna, bláókunnugra manna, sem voru svo almennilegir að hlekkja mig inn í keðjuna. Svo settist ég inn í stofu og beið eftir því, að fólk kæmi hlaupandi til mín með peninga. Mér kom ekki til hugar að mæta í vinnunni. Ég símaði niður á Rafveitu og sagði verkstjóra- blókinni einfaldlega, að ég mætti ekki vera að því að sinna skít- verkum. Það held ég verði up’p- lit á helvítinu, þegar ég kem á nýrri Cortinu einn daginn elleg- ar bara Citroen, og segi honum að fara til andskotans, eins og mig hefur alltaf langað að gera. Ég gaf mér snöggvast tíma til þess að skreppa út í sjoppu til hans Sigga sótó um kaffíleytið. Ég útskýrði málið fyrir honum, og auðvitað varð helvítið strax uppveðrað. Hann setti sig óðara í samband við háttsetta menn í Stekk og O.K. og okkur tókst einnig að koma okkur inn í þann sænska með því að nota öll sam- bönd. Ég sló víxil daginn eftir fyrir startgjaldinu. Síðan skipaði ég kellingunni að hætta í vinnunni og annast símavörslu fyrir mig og taka á móti peningum, sem ég átti nú von á á hverri mínútu. Þetta var nú eitthvað fyrir mig. Mér varð hugsað með lítilsvirð- ingu til popkornsfabrikkunnar, . ... að útvega tvo miða hjá honum Guðna .... Kerlingin var byrjuð að naga á sér neglurnar, og drakk fjóra pakka af kaffi fram að hádegi.... sem við Siggi vorum einu sinni með á prjónunum. Allar hug- leiðingar um hænsnabú og trillu- útgerð fuku út í veður og vind. Þetta var eitthvað við mitt hæfi. Ég fann það bezt núna, að ég var engin týpa til að sinna þessu venjulega dagstriti. Eiginlega var ég af sama kaliber og nóbel- prísuð skáld. Ég átti hvergi heima annars staðar en í smekklegri villu utan við stórborgina. Hlægi- legir svona nýríkir streberar eins og þessi Rolf Bridgestone. Nei, það þarf aristokrat til þess að þola ríkidæmi. Kellingin var strax byrjuð að mjálma um Mallorka. Ég lét það eftir henni að útvega tvo miða hjá honum Guðna. Hann lánaði undireins ferðina, þegar hann vissi, hvernig ástatt var. Hefði líka getað kostað hann bisniss að neita svona manni eins og mér. Ég ákvað að fara hægt í sak- irnar og ofkeyra mig ekki, eins og þessir íjármálaspámenn, sem nú eru flestir komnir til Suður- Afríku eða eitthvað ennþá neð- ar á landakortið. Ég gat ómögu- lega verið að draga kellinguna lengur á þvottavélinni, búinn að lofa þessu undanfarin þrjú jól. Ég beið sallarólegur eftir pen- ingunum. Þetta gat ekki klikkað. Við Siggi sátum uppi á næturnar 16

x

Spegillinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Spegillinn
https://timarit.is/publication/349

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.