Spegillinn - 01.11.1970, Side 5

Spegillinn - 01.11.1970, Side 5
í þeirri sveit, hvar lengst hefur loftað undir menningu á Is- landi, varð mönnum tíðförult milli bæja, þegar líða tók á sláttinn. Léttfættir boðberar fóru dagfari og náttfari um alla sveit með tvíræðar orðsendingar. Eggjan lá í hverju orði. Síma- línur glóðu rauðar undan lág- væru skrafl á kvöldin. Vigorð flugu á dulmáli manna í millum. Þar sem sveitungar hittust, skutu augu gneistum. Nú skyldi helvízk virkjunarmafían á Akureyri fá það óþvegið. Þarna var í deiglu sú innan- sveitarkróníka, sem ekki yrði á valdi neins Nóbelskálds að skrá. Allt varð kyrrt við Súezskurð um stund. Nasser og Dayan sömdu vopnahlé af einskærri kurteisi við þessar væringar norður í Mývatnssveit, þangað sem augu alheimsins beindust rétt einu sinni. Inni í skemmu stóð bóndi við afl og skaraði í glóð. Þar voru bitjárn í deiglu, oddhvassir pálar hertir í óspjölluðu vatni. Hverfi- steinar brýndu hvassa egg á reku. Strákar lágu undir traktorum og jeppum á hlaðinu. Klíndu þykkri feiti í koppa og legur. Kerlingar höfðu belgvíða potta yfír hlóðum, sköruðu eld að skökum, drápu smjöri á brauð, tróðu mali fulla. Gamlingjar steyttu hnefa út í vindinn og tautuðu formælingar. Smádrengir sprændu hæð sína af monti. Hundarnir geltu í for- akt að öllum utansveitar. Svo bar það til tíðinda í Mý- vatnssveit, að kerling nokkur andaðist í hárri elli. Ekki var vitað til, að hún ætti skyld- menni mörg né venzlafólk þar um slóðir. Fjölmenni varð hins vegar svo mikið við útförina, að það yrði engu meira, þótt þrír þjóðhöfðingjar hlytu greftrun samtímis. Undarlega komu menn búnir til kirkju. Höfðu þeir sitthvað inn- anklæða. Sá þar blika á járn undir hverri skikkju. Fáir lögðu eyru að orðum prests, enda voru þau fá. Klerkurinn bar óvenju- hratt yfir bænir og tíðakjörð. Þegar hann gekk úr kirkju, svipti hann hempunni af filmukassa, hinum fágætasta grip. Tók hann að hlaða vopn sitt. Aldrei hefur vígreifara lið geng- ið til erfisdrykkju eftir aldna konu. Rökkvað var orðið, þegar hetjurnar lyftu rósóttum kaffi- bollum og supu orustuskálina. Eysteinn frá Arnarvatni var sjálf- Fógeti sagðist engin lög vilja hafa utan hnefaréttinn SJÖ KORTÉRA STYRJÖLD MÝ VETNING A skipaður Arafat þeirra Mývetn- inga. Hann er vel að manni, snareygur og rangeygur, orð- Garði. Hánn yrti ekki á menn, nema í ljóðum, skáld af skáld- um kominn og kvæntur skáldi. I því liði voru hetjur margar og ekki beygilegar, Grænir og Bald- ar, Gautar, Álftungar og Skútar, Garðsmenn og Vogungar. Þeir þustu fram eins og úlfar og stefndu niður að á. ,,Blessuð sértu sveitin mín“. Hvern andskotann eru þeir að vilja með kísilgúrfabrikku, sem spýr eitri um þig alla? Hvað eru þeir að senda á þig ameríska auðhringa til að drepa fuglalíf og myrða mýið, svo að silungur- inn sveltur? „Engið, íjöllin, áin þín“. Dríslar og djöflar hafa bruggað þér vel- ráð. Hver er að hefta framgang þinn með stíflum og fyrirhleðsl- um? Megi rennsli þitt ná að ósum, óhindrað af túrbínum andskotanna. Við munum brjóta af þér hlekkina og sökkva fénd- um þínum í hylina, þar sem þeir mega kafna úr eimyrju og ólyfj- an, eins og silungurinn, sem þeir hafa drepið. 5

x

Spegillinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Spegillinn
https://timarit.is/publication/349

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.