Spegillinn - 31.12.1970, Qupperneq 27
buxum næfurþunnum að neðan og vel
sjáanlegum og peysugopa í síðara lagi
að ofan. Annan klæðnað skyldi ung-
frúin eftir heima. Þóttust konur nú
hafa komið með krók á móti bragði
og biðu með öndina í hálsinum eftir
viðbrögðum deildarstjórans. Skyldi
hann nú neyddur til að skýra vísinda-
lega hinn vandrataða milliveg í buxna-
málum kvenþjóðarinnar. Öllum að ó-
vörum varð hins vegar kvenpersóna
þessi uppáhald hans og sá hann sig ekki
úr færi að eiga erindi í námunda við
hana.
Sá þá buxnalið Þjóðbankans, að óskir
yfirmanns þeirra um neðanmálsklæðn-
að voru ekki af illgirni einni fram settar,
heldur komu hér önnur og flóknari
vandamál til sögunnar. Var síðan á-
kveðið á allsherjar fundi í kvenfélagi
stofnunarinnar að hætta öllum mót-
þróa í þessu máli, en reyna heldur að
vera yfírmanninum hjálplegar við að
yfirvinna veikleika sinn. Brókarsótt
sína sáu þær nú í nýju ljósi sem hégóma
einn, og hefur engri þeirra síðan dottið
í hug að mæta til vinnu í Þjóðbankan-
um í buxum. Að minnsta kosti ekki í
buxum með síðum skálmum. Er nú
mórall allur miklu betri meðal starfs-
fólks stofnunarinnar, og gengur Von
Bróken deildarstjóri um með bros á
vör og hrósar sigri yfir spillingunni.
Hulda.
Pósthólf 594
Elsku Meyfróður minn!
Ég er nú komin á fímmtugsaldur, og
kannski er það þá of seint fyrir mig.
En alltaf hefur mig langað til þess arna,
svona er maður nú fáfróður á kroppinn.
Þannig er mál með vexti, að ég fór að
sjá þessa mynd, þessa ægilegu klám-
mynd, eftir að þið Allsbersson bentuð
mér á hana. Ég sá, að þarna var á ýms-
an hátt farið svipað og ég hef gert um
dagana og sumt var raunar dálítið út
á skjön. Ýmsir útúrdúrar, sem ég
hugsaði mér að prófa, næst þegar ég
næði í námfúsan kall. Satt að segja fór
ég sæl og ánægð heim úr bíóinu.
Svo les ég það hjá ykkur Allsberssyni,
að þetta sé alrangt. Svona eigi alls ekki
að fara að þessu, heldur einhvern veg-
inn öðruvísi. Nú er ég óskaplega áfjáð
í að vita, hvernig. Satt að segja fannst
mér jú eftir á að hyggja, að þetta væri
ekki svo frumlega að farið þarna í þess-
ari bíómynd. Það hlyti að vera hægt að
gera þetta á eitthvað skemmtilegri hátt.
Og svo kemur það á daginn, að þið
kunnið eitthvað skemmtilegri aðferðir,
þessir öðlingar. Ég vissi það alltaf,
Meyfróður minn, að þú kunnir sitthvað
fyrir þér í þessu.
Æji, gætirðu ekki skroppið til mín eitt-
hvert kvöldið.
Móðfreyja.
HRÚTURINN: Seldu fasteignir þínar í Hafnarfirði, áður en þær verða
alveg verðlausar af mengun. Flyttu norður á Sigló og fáðu þér hús fyrir
ekki neitt. Skráðu þig síðan á biðlistann í bæjarvinnunni og lifðu á at-
vinnuleysisstyrk.
NAUTIÐ: Leyfðu konunni þinni að fara á rauðsokkufund. Þá gæti
verið, að þú kæmir henni út til þess að vinna. Gakktu síðan sjálfur í rauð-
sokkahreyfinguna, segðu upp stöðunni og láttu, sem þú ætlir að gera ó-
dauðlegar kvikmyndir. Passaðu þig bara á því að byrja aldrei á þeim.
TVÍBURARNIR: Settu verðstöðvun á útgjöldin til heimilisins og fórn-
aðu umframtekjunum í kosningasjóð Alþýðuflokksins. Þannig tryggirðu
þér ævinlega ríkisframfærslu. Gefðu framsókn líka undir fótinn.
KRABBINN: Kvensemi þín er orðin meiri, en þú þolir andlega. Mundu
að andinn er veikur, þótt holdið sé að vísu reiðubúið. — Hættu því í há-
deginu.
LJÓNIÐ: Taktu ekki nærri þér, þótt kæmist upp um þig einu sinni.
Mundu að refum er tamast að bíta næst greninu. Segðu upp á skattstof-
unni og fáðu þér pottþéttari sambönd.
MEYJAN: Þú hefðir ekki slefað svona yfir nautasteikinni, hefðirðu
vitað, að þetta var tryppakjöt. Vertu ekki alltaf að spígspora upp Laugar-
ásinn, það veit allur bærinn, að þú átt heima í bakhúsi á Lindargötu.
Gakktu með höfuðið oní bringu.
VOGIN: Þú ert of svag fyrir snapi líknarfélaga. Mundu, að konan og
börnin svelta. Aflátsbréf þín í Úthafi veita þér ekki inngöngu í himnaríki,
reyndu á hinum staðnum.
DREKINN: Reyndu að sjá sjálfan þig í réttu Ijósi. Þú hefur aldrei haft
neina hugmynd um, hvert þú stefnir. Gakktu í Framsóknarflokkinn.
(Reyndu að komast í þátt hjá Ólafi Ragnarssyni í sjónvarpinu).
BOGMAÐURINN: Þú hefur eðli hýenunnar. Þú hefur engan kjark til
þess að ráðast á fólk með ljósaperur og jólapappír. Segðu þig úr Lions-
klúbbnum. Prófaðu Oddfellow.
STEINGEITIN: Reyndu ekki að hafa hemil á náttúrunni. Bannaðu kon-
unni pilluna og farðu að hlaða niður börnum. Þú munt stórgræða á því,
samkvæmt nýja framfærsluvísitölufiffinu. — Lestu Vísi, áður en þú háttar.
VATNSBERINN: Láttu ekki þessa nýju fasteignasala plata út úr þér
kjallarann. Ef þú kæmist í skrána hjá þeim, Sæirðu að hann er eina íbúðin,
sem þeir hafa í einkasölu. — Klagaðu þjónustuna hjá þeim fyrir Neytenda-
samtökunum.
FISKARNIR: Það voru ekki skemmtikraftarnir sem voru lélegir á Sögu.
Þú hefur ekki betri sans fyrir húmor en þetta. Reyndu að lesa þig betur til
í Agnari Boga. Farðu á Borgina næst. (Þú ert orðinn illa séður hjá þjónum
í bænum, fyrir hvað þú hefur minnkað drykkjuna).
27